Frjáls verslun - 01.07.1943, Síða 6
samanborið við að þær væru haldnar í stærri
salarkynnum. — Eins og að líkum lætur, þá er
það mikið verk og vinna fyrir þá sem að þeim
standa.
Jólakvöldvöku hélt félagið fyrir félagsmenn
og gesti þeirra 29. desember, með tilheyrandi
hátíðarblæ. Séra Jón Auðuns flutti erindi og
Guðmundur Jónsson, söngvari söng einsöng og
jólasálmar voru sungnir.
52. afmæli félagsins var haldið hátíðlegt að
Hótel Borg 29. jan. með samsæti og dansi. Ræður
voru fluttar og sungið. Salir hótelsins voru
fullskipaðir og skemmtu menn sér hið bezta.
Við burtfararpróf nemenda Verzlunarskóla
Islands var 4. bekk skólans boðið að kvöldi til
dansskemmtunar og kaffidrykkju að heimili fé-
lagsins. Auk nemenda var mættur skólastjóri
Verzlunarskólans, Vilhj. Þ. Gíslason. Flutti for-
maður félagsins stutt erindi um tilgang félags-
ins og starfsemi þess. Valgarð Briem þakkaði
fyrir hönd 4. bekkinganna. Egill Guttormsson
skýrði fyrir nemendum .myndir þær sem eru á
veggjum stjórnarherbergisins, af stofnendum
og heiðursfélögum félagsins. Var síðan stíginn
dans til ld. 2 og skemmtu boðsgestir sér hið
bezta.
Um 15 dansleikir hafa verið haldnir fyrir
félagsmenn og gesti þeirra að félagsheimiiinu
undir stjórn skemmtinefndar. Hefur skemmti-
nefndin staðið sig þar prýðilega og á miklar
þakkir skilið fyrir sitt óeigingjarna starf. En
skemmtanir þessar eru einn meginþátturinn í
því að sameina hið unga verzlunarfólk og laða
það að heimili félagsins.
Starfsemi félagsheimilisins hefur gengið með
ágætum, aðsóknin mikil, svo að oft komast færri
að en vilja. Efnahagur félagsins hefur aldrei
staðið í slíkum blóma sem við lok síðasta starfs-
árs.
Munu formenn hinna ýmsu starfandi nefnda
gefa skýrslur, samkv. fyrri venjum.
Þess skal getið að form. Bókasafnsnefndar
Bogi Benediktsson, er veikur og mætir því ekki
á fundinum til að gefa skýrslu. — Útlán bóka
hefur gengið fyrir sig með líkum hætti og
áður. Heldur hefur þó dregið úr því upp á
síðkastið, að menn notfærðu sér safnið og bóka-
lán því minni en áður tíðkaðist.
Hvað snertir blaðið Frjáls verzlun, þá hefur
útgáfa þess á síðasta starfsári ekki gengið eins
vel og æskilegt hefði verið, aðallega hvað snertir
útkomu þess, sem stafar af tvennu, að prent-
6
smiðja sú, sem prentar blaðið, hefur haft yfir-
.fullt að gera ásamt því, að skortur á rafmagni
til reksturs prentvélanna hefur hamlað prent-
uninni, og annað, að ritstjóriblaðsinshefurverið
svo störfum hlaðinn í sambandi við málfærslu-
störf sín og önnur störf, er honum hafa verið
falin, að hann hefur upp á síðkastið átt örðugt
með að búa blaðið til prentunar, enda hefur rit-
nefndin lítið aðstoðað hann í því efni. Það skal
jafnframt upplýst, að ritstjóri blaðsins hefur
þegar sagt upp ritstjórn sinni við blaðið. —
Sjálfsagt er, að sú stjórn, er nú tekur við í
•félaginu, gjöri sitt ýtrasta til að fá annan rit-
stjóra.
Samkvæmt tillögu formanns ritnefndar, Frið-
þjófs Ó. Johnson, og greinargerð hans þar að
lútandi, þá hefur verið myndaður Æfifélagasjóð-
ur blaðsins Frjáis verzlun. Meiningin með þess-
um sjóði er sú, að menn geti með því að greiða
í eitt skifti fyrir öll 250 krónur, orðið æfilangt
aðnjótandi blaðsins. Hafa þegar 5 gjörst æfi-
félagar og eru þeir því æfiáskrifendur.
Frídags verzlunarmanna, 2. ágúst, var
minnst á líkan hátt og verið hefur 3—4 undan-
farin ár, með því að Ríkisútvarpið lét okkur
góðfúslega í té einn iið í dagskrá sinni þennan
dag í tilefni frídagsins. Formaður félagsins
flutti stutt ávarp. Vilhjálmur Þ. Gíslason, skóla-
stjóri og Árni Jónsson frá Múla fluttu sitthvort
erindið og Þorsteinn Hannesson söngvari, söng
einsöng með aðstoð hljómsveitar Útvarpsins.
Á útvarpsráð þakkir okkar fyrir sýnda aðstoð.
Kl. 10 um kvöldið var stiginn dans að Hótel
Borg og skemmtu menn sér þar hið bezta. —
Vegna mjög aukinnar aðsóknar að félagsheim-
ilinu og þar af leiðandi brýnnar nauðsynjar á
auknu húsnæði fyrir starfsemi félagsins, var
sú ákvörðun tekin af stjórn og húsnefnd á miðju
ári, að segja upp þeim aðiljum, er hafa á ieigu
neðstu hæð hússins og geymslur í kjallara. En
því miður reyndist þetta árangurslaust, þar eð
leigjendurnir neituðu að fara úr leiguplássi sínu
og færðu sér til afsökunar í því efni, að þeir
styddust við fyrirmæli húsaleigunefndar og
þyrftu því ekki að víkja.
Síðast í september var hafin breyting á mið-
hæð hússins Vonarstræti 4, með því að samein-
uð voru suðvestur- og norðvesturherbergin, svo
að úr þeim myndast einn salur þvert yfir húsið.
Áætlaður kostnaður þeirra manna er unnu að
breytingunnni var um 1300 krónur, og þótti
því verkið vel framkvæmanlegt frá fjárhags-
PRJÁLS VERZLUN