Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1943, Síða 7

Frjáls verslun - 01.07.1943, Síða 7
legu sjónarmiði séð, enda framkomnar tillögur og óskir formanns og skemmtinefndar í þessu efni, samþykktar af stjórn og húsnefnd. Bauðst skemmtinefndin til að sjá svo um að kostnaður við þessa breytingu þyrfti ekki að skerða hús- sjóð, heldur mundi 'hann verða greiddur af inn- komnum peningum á skemmtikvöldum félagsins, enda var það mikið áhugamál nefndarinnar að breyting þessi kæmist í framkvæmd, vegna að- kallandi meira húsrýmis fyrir kvöldskemmtanir félagsins. — Fyrir utan áður nefndar breyting- ar á hæðinni, þá var settur nýr Linoleum-dúkur yfir allan gólfflötinn, svo að allur kostnaður við breytinguna mun nema um 3 þúsund krónum, og má það teljast vel sloppið á þessum miklu dýrtíðartímum. — Hygg eg að félagsmenn muni vera sammála um, að breyting þessi hafi orðið til stórbóta fyrir starfsemi félagsins. Með því að stjórnin hafði komist að því að í uppsiglingu væri hjá ríkisstjórninni frumvarp að varanlegum föstum grundvelli á sanngjörnu grunnkaupi opinberra starfsmanna í hverri at- vinnugrein fyrir sig, þar sem gjört er ráð fyrir að gildandi vísitala á hverjum tíma, bætist við grunnkaupið, — þá var mér og Adolf Björns- syni falið að tala við Björn Ólafsson, fjármála- ráðherra, og leita hjá honum upplýsinga um mál þetta, með það fyrir augum, að félagið taki mál þetta til yfirvegunar í sambandi við væntanlegt frumvarp stjórnarinnar, með tilliti til þess ósamræmis er virðist ríkja í launakjör- um verzlunarfólks, miðað við hæfileika þess og þekkingu, og að þeim málum yrði komið í fast- ara form, á grundvelli þeim er heppilegastur þætti til frambúðar. — Samkvæmt fengnum upp lýsingum hjá fjármálaráðherra, þá hefur inál þetta verið í undirbúningi hjá ríkisstjórninni, en var ekki það á veg komið að hægt væri að gefa ncinar frekari upplýsingar. En ráðherrann var fús til að gefa frekari upplýsingar, þá er málið væri lengra á veg komið. Samkvæmt framkomnum tílmælum nokkurra vinnuveitenda og þá aðallege. kaupmanna og verzlunarþjóna, um að stjórn félagsins gengist fyrir breytingu á lokunartíma sölubúða yfir vetrarmánuðina, er voru aðallega fólgnar í því, að verzlunum yrði lokað kl. -1 á laugardögum og kl. 7 á föstudögum í stað kl. 8, eins og verið hefur yfir sumarmánuðina, en til frekara sam- komulags kl. 7 á föstudögum allan ársins hring. — Þá tók stjórn félagsins þá ákvörðun á stjórn- arfundi þann 22. sept., að verða við fram- FRJÁLS VERZLUN komnum tilmælum og gera tilraun, til að byrja með, með því að boða til sameigmlegi fundar með formönnum hinna ýmsu sérgreinafélaga innan verzlunarstéttarinuar um mál þetta og var fundur haldinn 27. sept. Var mal þetta rætt iivm og aftur á fundinum. en engin endanleg ákvörðun tekin, önnur en sú, að formenrJrnir lofuðu að ræða mál þetta að nýju sín á milli, á sérfundi, mjög bráðlega. Eftir að fundur þeirra hafði verið haldinn, þá hringdi formaður vefnaðarvörukaupmanna, Árni Árnason, kaupmaður, til mín og sagðist hafa átt að flytja mér þau boð að ekkert sam- komulag hafi náðst um breytingu á lokunar- tímanum og framkomnar tillögur í því máli ver- ið felldar. Síðan hefur mér borist til eyrna að Verzlun- arráð íslands hafi tekið upp á sína arma þetta mál, og samkvæmt samtali mínu við Svein M. Sveinsson, forstjóra, sem er einn í stjórn Verzl- unarráðsins, þá er stjórn ráðsins að vinna að þessum málum á víðtækum grundvelli til sam- ræmingar fyrir öll verzlunar- og iðnfyrirtæki. Verðum vér því að álíta að málið s.é í góðra manna höndum og að úrlausnar megi bráðlega vænta er geti orðið til samkomulags, á meðal þeirra aðilja er hér eiga hlut að máli. Verzlunarráð íslands, hefur með bréfi sínu til V. R. dags. 20. okt. þ. á., beint þeim tilmælum til V. R. að það í framtíðinni snúi sér beint til Verzlunarráðsins með allt það er varðar hags- munamál verzlunarstéttarinnar. Félag matvörukaupmanna hefur á fundi sín- um fyrir nokkru síðan, lýst afstöðu sinni til lokunarmálsins, með því að samþykkja breyt- ingar á lokunartíma sölubúða á líkum grund- velli og að framan getur. Það skal ennfremur upplýst, að Verzlunar- mannafélag Hafnarfjarðar og Kaupmannafé- lagið hafa samþ. að beita sér fyrir að fá sölu- búðum í Hafnarfirði lokað yfir vetrarmánuðina á laugardögum kl. 4 og föstudögum allt ái'ið kl. 7 síðd. Hafa þessir aðiljar hinsvegar tjáð sig vilja fylgja í öllu því sem gjörist í þessum málum, fyrir atbeina V. R. Þá kem ég að þeim stóra viðburði, er ég minntist á í byrjun skýrslu minnar. — Sá at- burður gerðist á seinni hluta starfsárs félags- ins, að félaginu voru færðar 50 þúsund krónur að gjöf. Laugardaginn þann 25. sept. síðastl., hringdi 7

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.