Frjáls verslun - 01.07.1943, Page 10
V. R. heiðrar Thor Jensen Skipulagsskrá fyrir Námssjóð
átfræðan Thor Jensens
Eftirfarandi ávarp var flutt af formanni
Verzlunarmanafélags Reykjavíkur, Hirti Hans-
syni, við heimsókn hans og tveggja annara
félaga er falið hafði verið af stjórn félagsins
og í nafni þess, að heimsækja Thor Jensen, á
afmælisdegi hans þann 8. desember 1943.
„Við erum ,hér komnir f. h. Verzlunarmanna-
félags Reykjavíkur, til að færa yður, hr. Thor
Jensen, þakklæti vort fyrir hina stórfenglegu
gjöf til félagsins.
Ennfremur vottum vér yður, háttvirti heið-
ursfélagi, okkar beztu þakkir, fyrir þann vin-
arhug og hlýju, er þér hafið borið til félags
vors, frá fyrstu tíð; um leið og vér einnig ber-
um þær vonir í brjósti, að sjóður sá, sem nú
hefur verið myndaður ínnan vébanda V. R.,
fyrir yðar tilstilli, og hefur verið gefið nafnið
„Námssjóður Thors Jensen“, — megi blómgast
um ókomna framtíð og ná þeim tilgangi er gef-
andinn hefur til ætlast, til styrktar ungum.
efnilegum verzlunarmönnum, við nám í verzl-
unarfræðum.
Skipulagsskrá hefur verið samin fyrir sjóð
þenna, dagsett 31. okt. þ. á. og hefur hún fengið
staðfestingu Verzlunarráðs íslands og Dóms- og
kirkjumálaráðuneytisins samkv. skipun ríkis-
stjóra Islands.
í minningu þessa stóra viðburðar er skeð hef-
ur í félagi voru á þessu ári og ævarandi þakk-
lætis til yðar, staðfestum vér þennan atburð
með því að eg afhendi yður grip þennan. — —
Að síðustu ái’num vér yður allra heilla og
blessunar á þessum merku tímamótum í æfi
yðar, þar sem þér hafið fyllt áttunda tuginn,
og óskum þess, að æfikvöld yðar og konu yðar,
megi verða ykkur friðsælt og sólríkt æfikvöld“.
Gripur sá, er formaður afhenti Thor Jensen
frá félaginu, var fagur silfurbikar á svörtum
fótstalli. Á sjálfan bikarinn var áletrað nafn
Thors Jensen ásamt fæðingardegi og ártali. En
á fótstallinn var festur silfurskjöldur er á voru
rituð þakkarorð og árnaðaróskir frá Verzlunar-
félagi Reykjavíkur.
10
1. gr.
Sjóðurinn heitir: Námssjóður Thors Jensen.
2. gr.
Sjóðurinn er eign Verzlunarmannafélags
Reykjavíkur, sem stofnað var 1891, og er sjóð-
urinn afhentur félaginu með gjafabréfi Thors
Jensen dags. 17. september 1943, og er að upp-
hæð kr. 50,000,00.
Sjóðurinn tekur nú þegar til starfa.
3. gr.
Tilgangur sjóðsins er að styrkja efnilegt
verzlunarfólk, menn eða konur, til náms í verzl-
unarfræðum hér á landi eða erlendis.
Félagar í Verzlunarmannafélagi Reykjavíkur
hafa forgangsrétt til styrks en meðal félags-
manna skulu þeir að öðru jöfnu ganga fyrir,
sem lokið hafa burtfararprófi úr Verzlunar-
skóla Islands.
h. gr.
Sjóðnum skal stjórnað af fimm manna stjórn-
arnefnd. Gefandi sjóðsins, Thor Jensen, nefn-
ir einn mann í hina fyrstu stjórn og skal sá
vera formaður hennar.
Stjórn Verzlunarmannafélags Reykjavíkur
kýs þrjá menn og stjórn Verzlunarráðs íslands
einn og skifta þeir með sér verkum, með þeirri
takmörkun, sem á undan getur, að gefandi sjóðs-
ins tilnefnir formann stjórnarnefndarinnar.
Þessir fyrstu stjórnendur sjóðsins skulu allir
í sameiningu velja fimm varamenn, og sé til-
tekið hver er varamaður ,hvers hinna fyrstu
stjórnenda.
Þegar einhver hinna fyrstu stjórnenda fer
úr stjórn sjóðsins, hvort sem það er af dauða
eða öðrum ástæðum, tekur varamaður hans sæti
í stjórninni og verður þá aðalmaður, en vara-
mann í hans stað skal þá þegar tilnefna eftir
sömu reglum og hinir upprunalegu varamenn
voru valdir. Engan má tilnefna varamann nema
samþykki hans liggi fyrir, um að hann vilji taka
starfið að sér,- Á þennan hátt skal jafnan farið
þegar autt verður sæti aðalmanns eða vara-
manns í stjórninni, svo að hún sé jafnan skipuð
5 aðalmönnum og 5 varamönnum. I forfölium
FRJÁLS VERZLUN