Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1943, Blaðsíða 13

Frjáls verslun - 01.07.1943, Blaðsíða 13
aðalmanns um stundarsakir tekur varamaður þess eða þeirra, sem forföll hafa, sæti í stjórn- inni, enda sé ekki ágreiningur um að forföll hamli. Skipta má um varamenn, ef allir stjórn- endur sjóðsins samþykkja. Nú verður vegna fráfalls stjórnenda, veikinda eða af öðrum óviðráðanlegum ástæðum eigi mögulegt að ná samþykki allra að því er snertir kjör aðalstjórnenda svo sem gjört er ráð fyriv hér að framan, og skulu þá hinir framk/æma nauðsynlegar ráðstafanir til þess að stjórn og varastjórn verði fullskipuð samkvæmt því, sem ætlast er til með framanrituðum reglum. í stjórn sjósins ræður afl atkvæða nema öðru vísi sé ákveðið í skipulagsskrá þessari. 5. gr. Gjörðabók fyrir sjóðinn skal stjórn hans lög- gilda. skal færa í gjörðabókina allt um sjóðinn, sem máli þykir skipta, þar á meðal fundargjörð- ir sjóðsstjórnarinnar og sérstaklega allar á- kvarðanir hennar um málefni sjóðsins. Enn- fremur skal bóka í gjörðabók kjör varamanna, og allar breytingar, sem verða á stjórn sjóðsins. Varamenn skulu og rita í gjörðabókina sam- þykki um kjör sitt. 6. gr. Sjóðinn skal ávaxta með því að kaupa fyrir fé hans bankavaxtabréf veðdeildar Landsbanka íslands, hliðstæð verðbi’éf tryggð með öruggu fasteignaveði eða verðbréf með ríkisábyrgð og peningar, sem kunna að liggja fyrir, skulu á- vaxtaðir á tryggum stað enda samþykki allir stjórnendur hvernig fénu skuli komið á vöxtu. 7. gr. Höfuðstól sjóðsins má aldrei skerða og ár- lega skal leggja Vs — einn fimmta — af vöxt- um við höfuðstólinn. Að öðru leyti skal vöxtun- um varið samlcvæmt tilgangi sjóðsins. Sjóðs- stjórnin ræður þó að hve miklu leyti vöxtunum er varið í þessum tilgangi ár hvert eða hvort þeir verða lagðir við höfuðstól, frekar en gert er ráð fyrir að framan, eða geymdir til síðari ára til úthlutunar þá. Nú hlotnast sjóðnum gjafir eða honum er aflað fjár á einn eða annan hátt og skal þá leggja þær upp'hæðir við höfuðstól sjóðsins. 8. gr. Stjórn sjóðsins skal auglýsa árlega með hæfi- legum fyrirvara eftir umsóknum um styrk úr FRJÍLS VERZLUN sjóðnum og úthluta síðan þeirri styrkupphæð, sem hún vill úthluta hverju sinni, samkvæmt tilgangi sjóðsins og í samræmi við ákvæði skipu- lagsskrár þessarar. Stjórnin skal þó gæta þess að hver einstök styrkupphæð sé ekki lægri en svo, að hún geti talist til verulegrar styrktar fyrir þann, sem hana hlýtur. Sama námsmanni má veita styrk oftar en einu sinni en þó ekki lengur en í 3 ár. Gera má styrkþega að skilyrði, að !hann, að loknu framhaldsnámi í verzlunar- fræðum, haldi fyrirlestra eða hafi æfingar með nemendum í Verzlunarskóla íslands í sannáði við skólastjóra þess skóla. 9. gr. Reikningsár sjóðsins er almanaksárið. Hið fyrsta reikningsár sjóðsins telst frá stofnun hans til ársloka 1944. Sjóðsstjórn ber að færa bck um eignir sjóðsins tekjur hans og gjöld. Stjórn sjóðsins semur við lok hvers reikn- ingsárs reikning fyrir sjóðinn og skal hann síðan staðfestur af löggiltum endurskoðanda. Reikningurinn skal innfærður í efnahagsbók sjóðsins og auglýstur í Lögbbirtingablaðinu í síðasta lagi fyrir lok fegrúarmánaðar ár hvert. 10. gr. Leita skal samþykkis Verzlunarráðs Islands 4á skipulagsskrá þessari og að því fengnu skal leita staðfestingar ríkisstjóra. Skipulagsskrá þessari má ekki breyta, nema allir stjórnar- menn sjóðsins samþykki svo og stjórn Verzlun- armannafélags Reykjavíkur og Verzlunarráðs íslands. Þó má aldrei breyta fyrirmælum um tilgang sjóðsins né reglum 4. gr. um skipun sjóðsstjórnar. Reykjavík, 31. okt. 1943 I stjórn Verzlunarmannafélags Reykjavíkur Hjörtur Hansson form. Stefán G. Björnsson, Adolf Björnsson, Bergþór E. Þorvaldsson, Konráð Gíslason, Egill Guttormsson, Lárus Bl. Guðmundsson Sveinn Helgason. Verzlunarráð íslands er samþykkt ofanrit- aðri skipulagsskrá. Reykjavík, 4. nóv. 1943 F. h. Verzlunarráðs Islands, H. Benedfktsson. 13

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.