Frjáls verslun - 01.07.1943, Qupperneq 15
THOR JENSEN
Verzlunarmannafélagi Reykjavíkur hefur
hlotnast höfðingleg gjöf frá Thor Jensen. Það
eru 50 þúsund krónur, sem hann fékk félaginu
til frjálsrar ráðstöfunar til styrktar ungum,
efnilegum verzlunarmönnum. Af gjöf þessari
hefur verið stofnaður verðlauna- eða styrktar-
sjóður, sem heitir Námssjóður Thor Jensen og
er nú nánar frá honum skýrt hér í blaðinu.
Ég hef verið beðinn að tengja við þá frásögn
fáein orð um gefandann og samband hans við
Verzlunarmannafélag Reykj avíkur.
Thor Jensen hefur verið í félaginu frá því
29. maí 1891, eða í meira en hálfa öld, eða
næstum því allan starfstíma félagsins. Hann
hefur haft í mörg horn að líta, svo að hann
hefur ekki tekið virkan þátt í daglegum störf-
um félagsins. En hann hefur einlægt haft á-
huga á ýmsum málum þess og fylgst með þeim
og þroska félagsins. Hann var kjörinn heiðurs-
félagi 30. janúar 1937, á afmælishátíð félags-
ins. —
Thor Jensen átti ekki heima í Reykjavík, þeg-
ar hann gekk fyrst í félagið, en hann var hér
á næstu grösum. Hann var verzlunarstjóri í
Borgarnesi. En verzlunarstörf sín hér á landi
hóf hann norður á Borðeyri. Seinna var hann
um tíma á Akranesi og í Hafnarfirði og loks
í Reykjavík frá því um aldamótin.
Uppúr aldamótunum hófst nýr tími hér, með
heimastjórninni eða búsetu Islandsráðherrans
her innanlands og flutningi stjórnarinnar heim
hingað. Það voru ekki sízt breytingar á fjár-
málum, atvinnu- og samgöngumálum, sem þá
kvað að og svo ýmsar breytingar á menntamál-
um, með setningu nýrra fræðslulaga, seinna
stofnun háskóla o. fl. Sími, efling innlendrar
verzlunar, og upphaf innlendrar heildverzlunar,
ný bankastarfsemi, ný útgerð, vélbátar og tog-
arar og ýmislegt fleira, er vottur hins nýja at-
hafnalífs. Þá var vor í loftinu, stórhugur og
FRJÁLS VERZLUN
starfsþrek í mörgum mönnum. Hugsjónir og
hagsýni héldust í hendur.
Thor Jensen var þá einn af helztu brautryðj-
endum þessa nýja athafnalífs. Hann sá og
skildi þá nýju möguleika, sem hér voru fyrir
hendi og þá nýju tækni, sem til þess þurfti, að
hagnýta þá. Hann var hugkvæmur maður og
víðsýnn, ótrauður og áræðinn. Hann var einn
af þeim, sem beitti sér fyrir kaupum á togara,
þannig að togaraútgerð komst hér á fastan
fót. Síðan hefur hann átt mikinn þátt í útvegs-
málum, m. a. í stofnun Eimskipafélagsins. En
15