Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1943, Qupperneq 19

Frjáls verslun - 01.07.1943, Qupperneq 19
Jón Laxdal. Hannes S. Blöndal. Minni verzlunarstéttarinnar og höfundar þess Fyrir tuttugu árum, eða hinn 2. ágúst 1923, var sungið á frídegi verzlunarmanna lag eftir Jón Laxdal tónskáld, við kvæði eftir Hannes S. Blöndal og tileinkaði Jón lagið söngfélagi Verzlunarmannafélags Reykjavíkur. Söngfé- lagið er nú liðið undir lok, en Ijóð og lag lifa og er farið með hvorttveggja á hátíðisdögum verzlunarmanna. Vegna þess að Ijóð og lag mun ekki vera í mjög margra höndum, er það birt hér ásamt nokkrum línum um höfundana. Kvæðið er á þessa leið: Ung er stétt vor, aðeins frelsis naut hún áratugi sjö á frónskri grund, þá, ei fyrr, að fullu af sér braut hún fjötur þann, er bar hún langa stund. Það, sem margt, vér megum þakka Jóni, margra alda tjóðurband var leyst. Hann sá glöggt að án þess ei á Fróni yrði þjóð úr vesalmennsku reist. Stéttin ung á verði þarf að vaka, verjast því, er réttinn getur skert, útlent vald svo af oss megi’ taka ágæt vopn, í framsókn mikils vert. Þörf er varna, ófrelsisins andi enn í leynum bíða kann sem fyr, enn hann gæti bundið oss því bandi, blessun frjálsra starfa er rak á dyr. Verzlun frjáls úr fjarrum hefur löndum fært oss margt, er bætti þjóðar hag, verið lífæð lögð að íslands ströndum, lyft oss upp úr nótt í bjartan dag. Fjöregg er hún, aldrei sem má brjóta allri framsókn veitir styrk og þrótt en ef hennar orkulindir þrjóta, aftur breytist dagsins ljós í nótt. Vegna þess má aldrei, aldrei gleyma ábyrgð, sem á vorri hvílir stétt, líf að verja, treysta, efla, geyma trauðlafenginn, lengi þráðan rétt. Stétt vor lifi, frjáls í frjálsu landi, ' frægð og þekking auðnist henni að ná. Stétt vor lifi, föstum fótum standi, „framför tslands“ marki skjöld sinn á. Höfundur kvæðisins, Hannes Stephensen Blönclal var sýslumannssonur frá lnnrahólmi á Akranesi. Móðir Hannesar var dóttir Svein- bjarnar Egilssonar rektors og hafði því Hannes ekki langt að sækja löngun sína til skáldlegra yðkana, enda gaf hann þrisvar út ljóðmæli eftir sig. Hannes tók, að loknu námi i Möðruvalla- skóla, að stunda verzlunarstörf við Höepfners- verzlun á Akureyri, en verzlunarstjóri þar var þá Edvald Möller. Síðar starfaði Hannes hjá Gránufélaginu á Akureyri og þar á eftir á Blönduósi. Um tíma starfaði hann hjá Thor Jensen í Borgarnesi og enn síðar við verzlanir á ísafirði og Seyðisfirði. Um 8 ára skeið dvaldi Hannes í Ameríku og var þá m. a. starfsmaður við blaðið Lögberg, en 1907 kom hann heim og varð þá starfsmaður Landsbankans og hélt því starfi síðar þar til hann lézt. FRJÁLS VERZLUN 1!)

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.