Frjáls verslun - 01.07.1943, Side 31
Gylíi Þ. Gíslason:
Kaupþingið
Fyrir ári stofnaði Landsbankinn kaupþing
hér í Reykjavík. Var það opnað í salarkynnum
bankans hinn 22. desember 1942 og á því ársaf-
mæli um þessar mundir. Tilgangur bankans
með kaupþingsstofnuninni mun fyrst og fremst
hafa verið sá, að koma á opinberri skráningu
á gengi verðbréfa og auðvelda almenningi og
fésýslumönnum kaup og sölu á verðbréfum við
sannvirði.
Allmikið verðbréfamagn hefur verið hér í
umferð undanfarið og stöðugt farið vaxandi.
Síðan 1937 hefur Landsbankinn safnað upp-
lýsingum um vaxtabréí þau, sem verið hafa í
umferð. í árslok 1937 reyndust það tæpar 47
milj. kr. Langmestur hlutinn, eða um 2/3 voru
lán gegn veði í fasteignum (veðdeildarbréí og
jarðræktarbréf). Rúmlega 2/3 reyndust vera
í eign opinberra aðilja (þ. e. ríkisins, opinberra
sjóða, bæjarsjóða, banka og sparisjóða) og
tryggingarfélaga. 1. des. 1942 taldi bankinn
hins vegar, að í umferð væru tæpar 72 milj. kr.
vaxtabréfa, og hefur vaxtabréfamagnið þann-
ig aukizt um rúmlega 50% á 6 árum. Rúm-
lega helmingur bréfanna voru lán gegn veði í
fasteignum, og nokkru röskari helmingur var
í höndum opinberra aðilja og tryggingarfélaga
og sjóða.
Þegar þess er gætt, hversu vöxtur verðbréfa-
magnsins hefur verið mikill og ör, virðist það
hafa verið orðið fyllilega tímabært að stofna
til kaupþings, er gæti orðið miðstöð verðbréfa-
viðskiptanna og þar sem gengi þeirra þréfa,
sem verzlað er með, væri skráð og gert almenn-
ingi kunnugt.
Samkvæmt reglum þeim, sem gilda um kaup-
þingið, fer framkvæmdastjórn Landsbankans
með yfirstjórn þess, en dagleg stjórn er í hönd-
um kaupþingsstjóra. Almenningi er ekki heimilt
að stunda viðskipti á kaupþinginu, og á hann
ekki aðgang að því, svo sem víða tíðkast erlendis.
Þeir einir mega stunda verzlun þar, sem fá til
þess leyfi framkvæmdastjórnarinnar, og nefn-
ast þeir kaupþingsfélagar. Bankar, opinberar
stofnanir, sparisjóðir, félög og einstaklingar
geta orðið kaupþingsfélagar, og skulu einstak-
lingar uppfylla viss skilyrði. Tala kaupþings-
FRJÁLS VERZLUN
félaganna hefur verið takmörkuð við 15. Þótt
Landsbankinn reki kaupþingið, er hann, að því
er snertir þátttöku í viðskiptunum, venjulegur
kaupþingsfélagi og nýtur engra sérréttinda mn-
fram aðra kaupþingsfélaga. Kaupþingsielag-
arnir annast viðskipti bæði fyrir sjálfa sig og
aðra, og eru í síðara tilfellinu skyldir að taka
þóknun, J/2% af upphæð viðskiptanna, ef um
vaxtabréf er að ræða, en 1% af hlutabréfum.
Framkvæmdastjórn Landsbankans ákveður, með
hvaða bréf megi verzla á kaupþinginu og semur
um það skrá, en með önnur verðbréf en vaxta-
bréf og hlutabréf má aldrei verzla. Engin hluta-
bréf hafa þó enn verið tekin á skráningarlist-
ann.
Viðskiptin og gengisskráningin fara fram eft-
ir hinni svo nefndu „uppboðsaðferð“. Kaup-
þingstjóri nefnir í heyranda hljóði ákveðiö verð-
bréf, og segja þá kaupþingsfélagarnir til um,
við hvaða gengi þeir vilja kaupa eða selja þetta
verðbréf. Miðast tilboðin við ákveðna upphæð,
„hlut“, og eru hlutirnir venjulega tveir, „stór
hlutur“ (5000 kr.) og „lítill hlutur“ (1000 kr.).
Falli kaup- og sölutilboð tveggja kaupþingsfé-
laga saman, getur kaupþingsstjóri þess, og eru
þá viðskipti komin á, en kaupþingsritari skráir
nöfn kaupanda og seljanda og gengið. Síðan
nefnir kaupþingstjóri bréfið oöru sinni og svo
aftur og aftur, þangað til engin kaup- og sölu-
tilboð falla lengur saman. Er þá skráð hæsta
kauptilboðið, sem nefnt er, og lægsta sölutilboð-
ið, og nefnast þau gengi lokagengi, en gengi
það, sem viðskipti höfða átt sér stað við, er
nefnt viðskiptagengi. Getur viðskiptagengið
orðið fleira en eitt, ef um f jörug viðskipti er að
ræða. Að svo búnu fer kaupþingstjóri eins með
næsta bréf og síðan öll þau, sem tekin eru til
viðskipta á kaupþinginu. Kaupþingsfélagarnir
gera síðan upp i'iðskiptin sín á milli. Öll víð-
skipti eru staðgreiðsh.iviðskipti (Kassaviðskipti)
þ. e. a. s. greiðsla og afhending verða að fara
fram fyrir klukkan 2 daginn eftir að við-
skiptin eru gerð. Svo nefnd greiðslufrestsvið-
skipti (Terminviðskipti), sem tíðkast mjög er-
lendis og mikil spákaupmennska er stunduð með,
eru ekki leyfð, en þá eru viðskiptin ekki gerð
31