Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1943, Qupperneq 33

Frjáls verslun - 01.07.1943, Qupperneq 33
upp þegar í stað, heldur e/tir ákveðinn tíma eða á ákveðnum tíma (t. d. mánaðarlok), og geta slík viðskipti verið mjög margs konar. Almenningi er í dagblöðunum og með auglýs- ingu í bankanum gert kunnugt viðskipta- og lokagengi á hverju bréfi, sem gengi hefur verið skráð á, og sömuleiðis viðskiptamagnið. Eins og að líkum lætur, er starfsemi og skipu- lag kaupþingsins hér miklu óbrotnara og að ýmsu leyti með öðrum hætti en tíðkast um kaupþing stærri þjóða. Annars er skipulag kaup- þinganna í hinum ýmsu löndum allólíkt. í engil- saxnesku löndunum eru kaupþingin einka fyrir- tæki, sem þó að vísu hafa sett sér strangar reglur, einkum kaupþingið í London, en á megin- landi Európu eru kaupþingin víðast hvar hálf- opinberar stofnanir. Kaupþingið í London ( London Stock Ex- change), sem er stærsta kaupþing í heimi, er t. d. hlutafélag og geta engir aðrir stundað við- skipti á kaupþinginu, orðið kaupþingsfélagar, en hluthafar þess. Mjög ströng skilyrði giida svo um það, hverjir geti orðið kaupþingsfélagar, og er það sjálfstæð atvinna, því að þeir mega engin önnur viðskipti stunda. Geta þannig t. d. bankar og kaupmenn ekki orðið kaupþingsfé- lagar. Kaupþingsfélagarnir skiptast í tvo flokka, og nefnast aðrir brokers, en hinir jobbers eða dealers. Hinir fyrr nefndu annast viðskipti fvr- ir þá, sem vilja kaupa eða selja á kaupþinginu. Hinir síðar nefndu verzla hins vegar fyrir eigin reikning. Viðskiptin eru aðallega greiðslufrests- viðslcipti, og fer gengisskráningin þannig fram, að kaupþingsfélagarnir tilkynna gengi sér- hverra viðskipta, og er það síðan birt með stuttu millibili. Getur gengi bréfs þannig breytzt veru- lega á einum degi eða klukkustund. Aðalkaupþingið í New York (New York Stock Exchange) er einnig einkafyrirtæki, en þó háð opinberu eftirliti síðast liðin 10 ár. Meðlima- talan í félaginu, sem á kaupþingið, er takmörkuð og verður því sá, sem vill verða kaupþingsfélagi, að kaupa laust ,.sæti“. Hafa þau verið seld fyrir of fjár, allt að 500,000 dollara. Skipulag kaup- þingsins er ekki eins strangt og kaupþingsins í London, en starfsemin er að öðru leyti svipuð. Kaupþingið í Berlín (Berliner Börse) er aft- ur á móti í eign opinberrar stofnunar, Iðnaðar- og verzlunarráðsins í Berlín. Til þess að stunda viðskipti á kaupþinginu þarf sérstakt leyfi, og á almenningur ekki aðgang að sjálfum kaup- þingsölunum. Á kaupþinginu starfa opinberir starfsmenn, sem vinna að því að samræma fram- boð og eftirspurn og ákveða gengið, en viðskipt- ineru gerð af miðlurum og bönkunum eða full- trúum þeirra. Viðskiptin eru tvenns konar, op- inber og „frjáls“, og þarf leyfi til þess að mega FRJÁLS VERZLUN verzla með verðbréf á opinbera markaðinum. Gengið er aðallega skráð á þann hátt, að öllum kaup- og sölutilboðum hvers dags er safnað saman og reiknað út það gengi, sem mest við- skipti geta orðið við (Einheitskurs), og gildir það þá fyrir öll viðskiptin. En á sumum bréfum er leyft að skrá breytilegt gengi (variabler Kurs), þ. e. a. s. í sérhvert sinn, sem viðskipti eiga sér stað, er gengið skráð og birt. Öll við- skipti eru staðgreiðsluviðskipti. Gx-eiðslufrests- viðskipti hafa verið bönnuð síðan 1931. Kaupþingið í Kaupmannahöfn (Köbenhavns Fondsbörs) er nú hálf-opinberstofnun. Almenn- ingur hefur aðgang að kaupþinginu, en í hinum opinberu viðskiptum mega ekki aðrir taka þátt en þeir, sem kaupþingstjói’nin hefur viðui'kennt sem kaupþingsfélaga. Hún ákveður sömuleiðis, með hvaða bréf megi verzla. En auk þessara kaupþingsfélaga starfa og á kaupþinginu víxl- arar, sem að vísu rnega ekki stunda viðskipti á opinberum markaði, en láta kaupþingsfélagana gera það fyrir sig. Viðskiptin og gengisskrán- ingin fara fi*am eftir uppboðsaðferðinni, á sarna hátt og lýst var hér að framan um kaupþingið hér. Öll viðskipti eru staðgreiðsluviðskipti. Þeg- ar viðskiptunum á hinum opinbera mai'kaði er lokið, fara fram frjáls viðskipti ( Efterbörs), og er þar vei’zlað með sörnu bréfin og á opinbera markaðinum og sömuleiðis önnur bi’éf. Kaup- þingfélagai’nir eru miðlai’ar í þessurn viðskipt- um, en víxlai’arnir og almenningur taka einnig þátt í þeim, og hrópar sérhver, hvað hann vill kaupa eða selja. Oft og tíðum eru viðskiptin miklu meiri og fjörugri á þessum fi’jálsa mark- aði en á hinum opinbei’a, og birta blöðin einnig gengi það, sem viðskiptin eru gerð við. Kaupþingin í Oslo og Stokkhólmi eru skipu- lögð á svipaðan hátt. Af þessari stuttu lýsingu er auðsætt, að það eru kaupþingin á Norðui’löndum, sem verið hafa fyrirmyndin að kaupþinginu hér, og er eðlilegt að svo hafi verið. Þrátt fyrir ýmsa byrjunarörðugleika, sem vafalaust hefur verið um að í’æða, virðist stai’f- semi kaupþingsins hafa gengið rnjög sæmilega á fyrsta árinu. Samkvæmt upplýsingum Lands- bankans hefur verið verzlað fyrir rúml. 6,5 milj. kr. síðan kaupþingið var stofnað, mest með veð- deildarbréf og hitaveitubréf. Veruleg verð- bréfaviðskipti hljóta þó að hafa farið fram utan kaupþingsins, en vonandi verður smám saman á því breyting, þannig að viðskiptin fari aðallega fram þar. I því er fólgið aukið öxyggi fyrir þá, sem kaupa og selja bréfin, og gengið getur orð- ið réttari mynd af vei’ði bréfanna og ástandinu á verðbréfamarkaðinum. 33

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.