Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1943, Síða 46

Frjáls verslun - 01.07.1943, Síða 46
Flugvélar úr tré Fyrstu flugvélarnar voru búnar til úr tré, en síðar voru þær gerðar úr aluminíum. Nú er aftur farið að nota tré til flugvélagerðar. Þær flugvélar, sem notaðar voru 1914—18 voru allar gerðar úr tré, en það kom í ljós að þær láku, og auk þess settust sveppar á tréð, hér og þar og þess varð líka vart, að trénu hætti til að blotna upp og bila þegar votviðri gengu. Aluminium bætti úr þessum göllum, en það hefur líka sína ókosti. Það er dýrara en tré og fágætara. Einnig er smíði úr aluminium allmjög erfiðara. Nú er tekið að nota trjá- þynnur í stað aluminium og gefst það vel. Trjá- þynnurnar eru þannig gerðar, að timbrið er fleygað niður í þunnar sneiðar í stórum renni- bekkjum. Þessar sneiðar eru líkastar málm- þynnum, og er auðvelt að beygja þær. Margar slíkar sneiðar eru síðan límdar saman í svo þykkar plötur sem vill. Notkun trés á þennan hátt hefur marga kosti. Ef flugvél fellur til jarðar eða rekst á, koma engar flísar úr þessu efni. Skot fara í gegnum tréð þannig, að þau láta aðeins eftir sig reglu- legt gat af sömu stærð og kúlan er, en skilja ekki eftir stórar dældir og rifin göt eins og verður þegar skot kemur í málmþynnur. Flug- vélar úr tré fljúga hraðar en málmvélar. Ameríkumenn hafa tekið upp notkun trés svo sem hér er lvst oe: kemur bað meðal annars af Tré úr slíkum furutrjám er notað til flugvéíagerðar. Trjáþynnurnar í þurkofni. því að í landinu er ekki mjög mikið af alumin- ium og það tekur um það bil helmingi styttri tíma að smíða flugvélar úr tré en málmi. Slíkar flugvélar eru nú mjög notaðar í styrjöldinni. Mosquito-flugvélin, sem oft er minst á í frétt- um, er öll búin til úr tré og Hurricane-vélin að hálfu leyti, en báðar þessar vélar eru enskar. Herflutningaflugvélar eru nú mjög smíðaðar úr tré. Málmvélar eiga betur við í sumum til- fellum og verða þær auðvitað í sínu gildi að því leyti. Hinsvegar eru trjáþynnurnar til mjög rnargra hluta nytsamlegar, svo sem til skipa- smíða, húsabygginga, (hurðir og veggklæðning) vagnasmíðis og fleira slíks. Trjáþynnurnar verpast ekki né skreppa saman og veðurbreyt- ingar hafa ekki áhrif á þær. Án efa mun smíði úr þeim verða þýðingarmikill iðnaður eftir styrjöldina. lö FRJÁLS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.