Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1950, Page 15

Frjáls verslun - 01.10.1950, Page 15
ísland. VöruskiptajöfnuSurinn í ágúst var óhagstæður um 12,1 millj. kr. Nam verðmæti innfl. vöru 43,1 millj. kr., en útfluttrar 31 millj. kr. Er vöruskiptajöfr.uðurinn eftir fvrstu 8 mánuðina óhagstæður um 129 millj. kr. Útflutningurinn nemur 189,8 millj. kr., en innflutningurinn 318,9 millj. kr. Á sama tíma í fvrra var vöruskiptajöfnuðurinn óhagstæður um 87 millj. kr. Verzlunarjöfnuðurinn í september var óhagstæður um 16,3 millj. kr. Innflutningurinn í mánuðinum nam samtals 50,8 millj. kr., en útflutn- ingurinn 34,5 millj. kr. Eftir fyrstu níu mánuði ársins er verzlunarjöfnuðurinn óhagstæður um 145,4 millj. kr. Nemur innflutning- urinn 369,7 millj. kr., en útflutn- ingurinn 224,3 millj. kr. Helztu útflutning=vörur okkar til septemberloka eru saltfiskur fyrir 44.8 millj. kr., freðfiskur fyrir 44,6 millj. kr., lýsi fyrir 35,7 millj. kr., síldarafurðir fyrir 26,8 millj. kr., þar af söltuð síld fyrir 17,8 millj. kr. Útflutningur fiskimjöls nemur 13.8 millj. kr. og karfamjöls 9,2 millj. kr., og útflutningur á söltuð- um gærum nemur 8 millj. kr. Aðalkaupendur okkar til sejttem- berloka eru: Holland með 49,5 millj. kr., Brelland 33,2 millj. kr., Bandaríkin 32,8 millj. kr., Ítalía 25,3 millj. kr., Svíþjóð 12,9 millj. kr., Pólland 11,9 millj. kr. og Grikk- land 10,6 millj. kr. Til annarra landa nemur útflutningurinn minna en 10 millj. kr. Danmörk. Um þriðiung af útflutningi lands- ins eru iðnaðarvörur í einni eða ann- arri mynd. Á fyrri árshelmingi þessa árs unnu 67% fleira fólk í hinum ýmsum iðngreinum en á sama tíma- bili árið 1935, og 17% fleira en á sama tíma í fyrra. Vöruskiptajöfnuður landsins var óhagstæður um 43,6 millj. kr. í júlí og er það hagstæðasti mismunur sem af er árinu. Innflutningurinn nam að verðmæti 464,5 millj. kr., en útflutningurinn kr. 420,9 millj. kr. Alls nemur innflutningurinn fyrstu 7 mánuði ársins, tölur frá 1949 í svigum, 3.256,3 millj. kr. ((2.469,1), en útflutningurinn 2.- 460,4 millj. kr. (1.848,5). i Finnland. Innflutningur landsins fvrstu 8 mánuði þessa árs nam 54,6 milljarð mörkum, á móti 38,2 milljarð mörk- um á sama tíma 1949. Útflutning- urinn nam hins vegar 50,8 milljarð mörkum, á móti 35,1 milljarð mörk- um s. 1. ár. Svíþjóð. Svíar hafa sótt um inntöku í al- þjóðabankann, en þeir liafa staðið fyrir utan þau samtök fram að þessu. Vöruskiptajöfnuðurinn eftir fvrstu 7 mánuði ársins var óhagstæður um 286,6 millj. kr., en á sama tíma í fyrra um 173,1 millj. kr. Innflutn- ingurinn í júlí var að verðmæti 499 millj. kr., en útflutningurinn 410,7 millj. kr. Noregur. Útflutningur norskra útvarpstækja er þegar orðinn töluverður og er á þessu ári með hagstæðan greiðslu- jöfnuð við útlönd í fyrsta sinn. Á fyrstu 6 mánuðum ársins voru flutt út útvarpstæki að verðmæti 185 þús. sterlingspund, en inn voru flutt- ir efnishlutar til framleiðslu á tækjunum fyrir aðeins 50 þús. ster- lingsjmnd. Norðmenn selja aðal- lega útvarpstæki til Tyrklands, Egyptalands og landanna við aust- anvert Miðjarðarhaf. Á árinu 1949 nam útflutningur útvarpstækja 34 þús. sterlingspundum, en þá var keypt erlendis frá efnishlutar í þau fyrir 250 þús. sterlingspund. Þess ber þó að gæta, að megnið af fram- leiðslunni á fyrra ári fór á innan- lands markaðinn, þar sem hörgull hefur verið á útvarpstækjum í Nor- egi. I janúar n. k. munu Norðmenn senda farþegaskipið „Peter Wessel“ í sýningarferð til 19 helztu hafna- borga Evrópu og landanna við Mið- jarðarhafið. Mun skipið hafa innan- borðs sérstaka vörusýningu, er sýn- ir helztu útflutningsvörur þjóðar- innar. Er ætlunin með ferð þessari að kynna norska framleiðslu meðal hinna ýmsu þjóða. Geta 100 fyrir- tæki haft sýningarrúm í skipinu og kostar livert rúm (bás) 1 þús. ster- lingspund. Mun ferðin standa yfir í 3 mánuði. Ríkisstjórnin hefur komið fram með uppástungu um að ríkið á- byrgðist 50 millj. kr. framlag til FRJÁLSVERZLUN 151

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.