Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1950, Síða 16

Frjáls verslun - 01.10.1950, Síða 16
innflytjenda til kaupa á matvæla- og hráefnabirgðum til þess að eiga sem varaforða vegna hins uggvæn- lega ástands í heimsmálunum. 'ZFtl- unin er að eiga ávallt til taks vara- forða sem nemur að verðmæti 75 millj. kr. I júlí voru fluttar inn vörur fyr- ir samtals 307 millj. kr., auk skipa, miðað við 390 millj. kr. í júní. Lt- flutningurinn nam hinsvegar aðeins 228 millj. kr., miðað við 237 millj. kr. í júní. Nemur innflutningurinn fyrstu 7 mánuði ársins 2,334 millj. kr., á móti 1.92‘J milíj. kr. á sama tíma í fyrra, en útflutningurinn 1,473 millj. kr., miðað við 1,257 millj. kr. 1949. Holland. Skuldir ríkisins innanlands námu 30. júní s. 1. 23,251 millj. gyllin og höfðu aukizt um 417 þús. gyllin á fjárhagsári því, er þá lauk. Erlendar ríkisskuldir höfðu aukizt úr 934 millj. í 3.453 millj. gyllin á fjár- hagsárinu, aðallega vegna gengis- fellingar sterlingspundsins haustið 1949. Utflutningurinn í júlí var að verð- mæti 451 millj. gyllin, á móti 437 millj. gyllin í næsta mánuði á und- an. Innflutningurinn í júlí lækkaði niður í 634 millj. gyllin úr 700 millj. gyllin í júní. Mest var flutt út til Vestur-Þýzkalands, 78,5 millj. gyllin, Bretlands, 72,5 millj., Belgíu 55,7 millj., Bandaríkjanna 24,4 millj., og Svíþjóðar 17,8 millj. gyll- in. Tékkóslóvakía. Prag-vörusýningin, sú 52. í röð- inni, verður haldin á tímabilinu 20. maí til 3. júní næsta ár. Verða all- ar framleiðsluvörur landsmanna á sýningu þessari, og verða aðeins sýndar þar á vegum inn- og útflutn- ingsfyrirtækja ríkisins. Síðustu sýn- ingu heimsóttu kaupendur frá 62 löndum. Bretland. Erlendir ferðamenn keyptu vör- ur að verðmæti rösklega 1 millj. £ á fyrra árshelmingi þessa árs. Ferða- menn frá Bandaríkjunum evddu 39% af þessari upphæð. Ullarverð hefur, eins og kunnugt er af fréttum, farið mjög hækkandi á heimsmarkaðinum, og það sama hefur einnig orðið upp á teningnum í Bretlandi. Sem dæmi um þessa hækkun má geta þess að á ullar- markaði í Bradford um miðjan september komst verðið hæst upp í 112 pence pr. lb. fyrir 1. flokks ull frá Wales, en 2 mánuðum áður var verðið á samskonar ull 65 pence pr. lb., og árið 1938 16 pence pr. lb. Verðhækkunin kom þó enn skýr- ara í ljós næsta dag á eftir þegar 2 millj. lbs. af brezkri ull var boðin upp á markaðinum og seldist fyrir svipað verð og daginn áður, enda þótt magnið þá væri mun minna. Þessi verðhækkun á ull mun vissu- lega hafa áhrif á verðlag á gólf- tepjium og dreglum, svo og hús- gagnaáklæðí, en brezk ull er mest- megnis noluð í þessar vörur. Þann 30. janúar n. k. hefst í 01- ympiahöllinni í London sérstök um- búðasýning, sú önnur í röðinni. Mun á sýningu þessari vera hægt að kynnast beztu og smekklegustu vöruumbúðum Evrópu og víðar, og gera samanburð á gerðum þeirra og hentugsemi. Þegar er útséð að þátt- takan í sýningunni er 40% meiri en á fyrstu sýningunni, er haldin var í Manchester árið 1949. Brezki ullariðnaðurinn hefur meira en tvöfaldað útflutningsverð- mæti sín til Bandaríkjanna á fyrstu 6 mánuðunum eftir verðfellingu sterl- ingspundsins. Hafa brezkir ullar- framleiðendur notfært sér vel þá möguleika sem verðfelling ster- lingspundsins veitti þeim til að auka útflutninginn sem mest. I.eggja þeir mikið kapp á að auka sem mest söluna til Bandaríkjanna, og gera sér far um að athuga rækilega ósk- ir og þarfir bandarískra viðskijita- vina. Útflutningurinn í ágúst var að verðmæti 189,3 millj. £ og er það nýtt útflutningsmet. Innflulningur- inn í mánuðinuin var að verðmæti 214,9 millj. £, en þar af fóru vörur fyrir 7,4 millj. £ til endurútflutn- ings, svo að vöruskip’-ajöfnuð'irinn varð því óhagstæður um 18,1 millj. £ og er það hagstæðasti mismunur síðan í febrúar 1949. Vöruskipta- jöfnuðurinn frá áramótum til ágúst- loka er óhagstæður um 273,1 millj. £, en á sama tíma í fyrra 293,1 millj. £. í ágúst voru fluttar út vörur til Bandaríkjanna fyrir 11 millj. £ og til Kanada fyrir 12,2 millj. £. Hín mikla útþensla olíuvinnslu víða um heim hefur eins og að lík- um lætur haft geysimikil áhrif á smíði tankskipa. Samkv. síðustu skýrslum voru t. d. í Bretlandi kaup- skip í smíðum samtals að burðar- magni 3,2 millj. tonn, þar af voru tankskip 1,9 millj. tonn að stærð. Munu tankskip nú vera meira en 40% af öllum ski])asmíðum heims. Forstjóri fyrir stóru olíuskipafé- lagi sagði nýlega, að verksvið tank- skipa í náinni framtíð væri geysi yfirgripsmikið. Hann sagði, að þeg- ar allar þær nýju olíuhreinsunar- stöðvar, sem nú væru í byggingu í norðvestur Evrópu eða fyrirhugað er að reisa, hefðu hafið starfrækslu, þá þyrfti að flylja að þeim 50 millj. tonn af hráolíu árlega, og þetta mikla magn þyrfti að flytja að frá olíusvæðum í þúsunda mílna fjar- lægð. 69,637 erlendir ferðamenn lieim- isótlu Bretland í ágústmánuði, og er það 9% meira en í sama mánuði í fyrra og 37% meira en var að með- altali í þessum mánuði fyrir styrj- öldina. Af þessum fjölda komu 19,- 236 frá Bandaríkjunum eða 19% fleiri en í ágúst s.l. ár. Er áætlað að bandarísku ferðamennirnir hafi eytt 6 millj. dollara í landinu í ágúst, fyrir utan fargjaldagreiðslur til brezkra skipa- og flugfélaga. Mun þessi u])phæð vera um 20% af verðmæti alls útflutnings Breta til Bandaríkjanna í ágúst. 152 FRJÁLSVERZLUN

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.