Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1950, Blaðsíða 20

Frjáls verslun - 01.10.1950, Blaðsíða 20
Merkisdagar kaupsýslumanna Heiðursfélagi V. R. óttrœður. Arni Einarsson jyrrv. kaupmaSur í Revkjavík varð áttræður 9. sept. s.l. Hann er einn hinna fáu núlifandi heiðursfélaga Verzlunarinannafélags Reykjavíkur, en fvrir u. þ. b. tíu árum heiðraði félagið hann á þann hátt, og var Árni sannarlega vel að þeirri sæmd kominn, því að hann hefur um tugi ára verið einn áhugasamasti msðlimur félagsins og ávallt verið boðinn og búinn til að rétta því hjálparhönd, þegar á þurfti að halda. Hefur 1 iðsinni hans líka jafnan verið með þökkum þegið, og eru ótalin öll þau spor og öll þau handtök, sem Árni hefur á sig lagt í félagsins þágu. Ekki hefur sú þjónusta verið innt af hendi í eigin hagsmunaskvni, heldur verið í té látin af ósérhlífni, stéttvísi, góðvild og trúmennsku. Þótt aldur hans sé orðinn þetta hár, hefur hann hingað til á hverju ári verið gæzlumaður og leiðbeinandi á jólatrésskemmtunum félagsins, og vonandi verður svo enn langa hríð. Það þarf heldur vart að húast við öðru fyrst um sinn, því Árni er vel ern og létlur jafnt í lund sem spori. Á afmæli Árna heimsóttu hann fjölmargir vinir hans og árnuðu honum heillaríkra ævidaga, b. á m. var sendinefnd frá stjórn V.R., og hafði varaformað- urinn, Sveinbjörn Árnason, orð fyrir lienni. Færði hann afmælisbarninu ofurlitla vinargjöf frá félaginu og flutti honum afmæliskveð'U. Einnig ávarpaði Hiört- ur Hansson heiðursfélagi V.R. kollega sinn með vel völdum orðum. Árni Einarsson hefur komið mikið við sögu reyk- vískrar verzlunarstéttar og ávallt látið gott af sér leiða. Saga hans var allítarlega rakin í höfuðdráttum hér í blaðinu fyrir 10 árum, á sjötugsafmæli Árna, og verður það ekki endurtekið hér, aðeins til þess vísað. En þar má glöggt sjá, hvern skerf Árni hefur lagt til ýmissa mála. Má í því sambandi geta þess, að fyrir nokkrum árum var hann sæmdur riddarakrossi Fálkaorðunnar, í viðurkenningarskyni fyrir vel unnin störf. Verzlunarmannafélag Reykjavíkur og „Frjáls verzl- un“ óska Árna til hamingju á þessum markverðu „ára- mótum“ í ævi hans og þakka honum af alhug fyrir mikið og gott samstarf fyrr og síðar. AuSun Ingvarsson kuup- ma'ður og bóndi í Dalsseli undir Eyjafjöllum átti átt- ræðisafmæli á s.l. ári og 45 ára kaupmennsknafmæli í vor sem leið. Hann er fæddur í Neðra- dal í Rangárvallasýslu 6. ágúst 1869 og ólst þar upp með foreldrum sínum við fremur þröngan efnahag, eins og títt var um marga bændasyni í þá daga. En strax í æsku mun hafa borið á því að hann dreymdi stóra drauma, sem m. a. hnigu að því, að gerast bóndi og kaupsýslumaður. Skólamenntunar naut hann ekki, því þá voru engir barnaskólar til, en fyrir ferminguna eignaðist hann reikningsbók Eiríks Briem og gekk þá einu sinni í niánuði til Sighvats Árnasonar alþm. í Eyvindarholti og fékk hjá honum tilsögn í reikningi og skrift. Mun það vera öll sú tilsögn, sem hann hefur notið frá öðrum undir það ævistarf, sem hann síðan hefur leyst af hendi sjálfum sér og öðrum til nyt- semdar. Árið 1905, eftir átta ára búskap (þar af þrjú ár í Dalsseli), byrjaði Auðun að verzla. Samgöngur voru þá með öðrum hætti en nú. Hann varð því að senda með reiðingshesta út á Eyrarbakka og einnig aleigu sína í peningum, kr. 60.00, en það nægði ekki fyrir vörum á tvo hesta, svo að frændi hans, Guðmundur Guðmundsson, nú verzlunarmaður á Selfossi, lánaði honum það, sem á vantaði. Ýmsir munu hafa látið sér fátt finnast um slíka nýbreytni, að fara að verzla í Dalsseli, sem umkringt er vötnum á alla vegu. En þetta mun Auðun hafa lítið látið á sig fá. Verzlun hans fór jafnt og stöðugt vaxandi og varð allumfangs- mikil um skeið, enda varð þetta til hinna mestu þæg- inda íyrir nærliggjandi sveitir. Til Auðuns lágu þá leiðir margra, ekki sízt á vetrum, þegar vistir þraut Framli. á bls. 159. 156 FRJÁLS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.