Frjáls verslun - 01.12.1952, Blaðsíða 10
REYKVÍSK VERZLUNARFYRIRTÆKI:
Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar
80
Elzta verzlunaríyrirtajki Reykjavíkur,
Mikil nýluíida þótti það í bæjarlífi Reykjavíkur,
ér einstakir kaupménn tóku að opna sölubúðir, er
eingöngu verzluðu nieð skyldar vörutegundir, svokall-
aðar sérverzlanir. Flestir töldu slíkt fásinnu og álitu,
áð sérverzlanir ættu ekki langa lífdaga fyrir hönd-
um í Reykjavík. Þetta fór þó á annan veg en á horfð-
ist. Hleypidómar fólkrins og gamlir verzlunarhættir
urðu að víkja fyrir framsýni einstakra kaupmanna,
er ruddu nýjum háttum braut.
Elzta verzlunarfyrirtæki Reýkjavíkur, og um leið
sérverzlun, varð 80 ára fyrir skömmu. Fyrirtæki
þetta er Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar h.f.
Það mun hafa verið í lok nóvembermánaðar 1872,
að Sigfús Eymundsson stofnaði bókaverzlun sína, er
brátt gat sér góðs orðstírs, og hefur revndar í marga
áratugi verið landsþekkt.
Stofnandinn, Sigfús Eyrnundsron, var á sínum tíma
einhver þekktasti borgari Reykjavíkur og áhrifamaður
mikill, þar sem hann beitti sér. Hann var maður fjöl-
fróður, gáfaður og mannkostámaður svo að af bar.
Áður en hann stofnsetti verzlun sína, stundaði hann
ljósmyndagerð, og var hann um fjölda ára eini Ijós-
myndari bæjarins. Samhliða stundaði hann bókband,
þegar minnst var að gera í ljósmyndastarfinu, og þótti
á því sviði vandaður verkmaður.
Sigfús Eymundsson gerðist umboðsmaður hinnar
rvonefndu „Norsku verzlunar“ í Reykjavík árið 1870.
Fyrirtæki þetta varð ekki langlíft, en það var ekki
hans sök. Gerðu menn sér talsverðar vonir um sam-
keppni Norðmanna við dönsku verzlanirnar, þótt ekki
yrði úr. Starf hans við þetta fyrirtæki mun þó hafa
orðið til þess að ýta honum út á verzlunarbrautina,
því að tveimur árum síðar stofnaði hann bókaverzlun
sína í húsi því, er hann átti á horni Lækjargötu og
Austurstrætis. 1 ársbyrjun 1873 auglýsti hann t. d. í
Í2&
ARA
Sigííis Eymundsson.
„Þjóðólfi“, að hann myndi framvegis hafa á boðstól-
um alls konar bækur og rit.
Ekki gat Sigfús lifað af bóksölunni eingöngu, held-
ur varð hann samhliða að etunda ljósmyndagerð og
bókband.
Húsakynni bókaverzlunarinnar.
Húsið Lækjargata 2, þar sem skartgripaverzlun Árna
B. Björnssonar, hljóðfæraverzlun Sigríðar Helgadótt-
ur og bókastöð Eimreiðarinnar eru nú til húsa, var um
langan tíma heimkynni bókaverzlunar Sigfúsar Ey-
mundssonar, eða alj.t tjl ársins 1920, er hún var flutt
í sitt núverandi húsna;ði við Austurstræti 18.
FRJáLS YERZLUN.