Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1952, Blaðsíða 26

Frjáls verslun - 01.12.1952, Blaðsíða 26
\JeÁa 70 Slolaldar Nýjasta gerSin af tékknesku Skoda fólksbifreiðun- um komu á markaðinn í ágúst í sumar, og nefnist hún Skoda 1200. Stærð þessara bifreiða er svipuð og þær, sem fluttar hafa verið hingað til lands frá Tékkóslóvakíu á undanförnum árum. Lengd vagnanna er 4,25 m., breidd 1,68 m. og hæðin 1,5 m. Hinir nýju bílar hafa skiptingu í stýrinu, en þeir eru fjór- skiptir áfram. Hitatæki hefur verið komið fyrir í þeim, en útvárpstæki fylgir með, ef óskað er. Að innan eru bílarnir klæddir með skinni og ullarefni, og eru fram- sætin þannig útbúin, að leggja má bökin aftur og geta þrír menn sofið þar. Skodabifreiðarnar nýju eru tald- ar sparneytnar, en þær munu að jafnaði eyða um 8,5 lítrum á hverja 100 km. í viðskiptasamningum þeim, sem gerðir voru milli íslands og Tékkóslóvakíu í sumar, er gert ráð fyrir, að fluttir verði hingað til lands bílar frá Tékkóslóva- kíu fyrir kr. 1,5 milljón, en láta mun nærri, að það sé andvirði 70 Skotabifreiða. Með tilliti til þessa hefur FRJÁLS VERZLUN snúið sér til framkvæmdastjóra Tékknefka bifreiðaumboðsins á Islandi h.f., Gotfreds Bernhöft og Ragnars Jóhannessonar, en fyrirtæki þetta hefur umboð hér á landi fyrir Skodabifreiðar. Skýrðu þeir blaðinu frá því, að flutlir hefðu verið til Islands 140 fólksbifreiðar af Skoda gerð til þessa, auk fjögurra stórra vagna, sem notaðir eru á Hafnar- fjarðarleiðinni. Þeir sögðu, að framleiddir væru nú um 170 Skodavagnar á dag, og væri eftirspurn eftir hinni nýju gerð, sem kom á markaðinn í sumar, mikil víða um Evrópu, og þá sérstaklega á Norðurlöndum. Auk fólksbifreiðanna af gerðinni Skoda 1200 fram- leiða Skodaverksmiðjurnar sendiferðabíla, „Station“- vagna og sjúkrabifreiðar. Aðspurðir kveðjast fram- kvæmdastjórar Tékkneska bifreiðaumboðsins á Is- landi ekki geta sagt neitt fyrir víst um það, hvenær hinar nýju Skodabifreiðar koma til landsins, en von- ast hinsvegar eftir því, að það geti orðið áður en langt um líður. Gátu þeir þess að lokum, að talsverð- ar birgðir af varahlutum til Skodabifreiða væru ný- komnar til landrins, þannig að ekki þyrfti að verða skortur á þeim á næstunni. Rjúgandi diskar Framh. af bls. 133. úr „skálinni," var hringmyndað, 5.4 metrar að þver- máli og 180 cm. á hæð. Inni í því fundust nokkrar bækur, sem álitið var að myndu fjalla um siglinga- fræði. Annars tókst ekki að þýða skriftina, sem var einskonar myndaletur. Vopn fundust engin um borð. Þegar betur var að gætt, tóku menn eftir því, að hvorki boltar, bitar né skrúfur fundust í skrokknum á far- artækinu, og ekki virtist hann heldur soðinn saman. Eftir langa rannsókn var komizt að þeirri niðurstöðu, að loftfarið væri samsett úr fjölmörgum plötum, sem féllu hver inn í aðra með ótrúlega haglegum festing- um. Þetta dularfulla farartæki var nú tekið í sundur og flutt á innsigluðum vöruflutningabifreiðum ti'l eins af rannsóknarstöðvum ríkisins. Hveru miklu getur maður nú trúað af framan- greindri frásögn? Öllu, engu eða einhverjum hluta? Án efa eru margir, sem munu álíta Frank Scully vera draumóramann með óvenju milcið hugmyndaflug. Hinu verður þó ekki neitað, að hann virðist hafa óbifandi trú á þeim málum, sem hann fæst við að kryfja lil mergjar. (Lauslega þýtt úr „Handels Nytt“). 138 FRJÁLS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.