Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1952, Blaðsíða 29

Frjáls verslun - 01.12.1952, Blaðsíða 29
á eða síki. Var farið eflir því um 5 km. vegalengd og þaðán yfir á annað síki og voru um 500 m. á milli. Leiðin eftir þessum síkjum var mjög hættuleg, því í þeim var mikið af föllnum trjám og víða grýttar grynningar. Það var komið kvöld, er við komum í fyrra síkið, gekk þó allt slysalaust, unz við kom- um á leiðarenda. Þá rakst einn báturinn á trjádrumb og kom stór rifa á strigann. Varð nu að setjast við og bæta og „kalfatta“; var það vandasamt verk og að- eins einn af okkur sem kunni það. Þarna urðum við að bera allt sjálfir; var það erfitt verk, því að yfir blautl mýrarsund var að fara að binu síkinu. Hafð- ist það þó af, og lögðum við af stað niðureftir því um hádegi daginn eftir, en lítið var sofið um nóttina. En þá fór að kárna gamanið, því að þar urðu á vegi okkar svo miklar grynningar, að við urðum að létta bátana og ýta þeim yfir þær. Vorum við í þessu stappi allan daginn og fram á rauða nótt og komumst aðeins 4 km. vegalengd niður að vatninu. Voru þá allir fegn- ir að hvílast. Þetta vatn var stórt og eins og vinkill í laginu, fyrst um 20 km. til norðurs og svo nokkuð lengra til vesturs. Við enda þess var önnur Indíána- byggð, og því vorum við fegnir, því að þarna var breiðasta eiðið um 3 km. milli vatna. Er við komum þangað undir kvöld, var þar mikið um dýrðir. Hafði komið þangað annar Indíánahó])ur í heimsókn og var strax slegið upp dans og gleðskaj). Stóðu þau gleði- læti lengi nætur og varð mér, sem sá þetta í fyrsta sinn, all starsýnt á aðfarirnar. Drykk nokkurn höfðu gestirnir baft meðferðis. Þótti mér bann harla ólysti- legur á að sjá, einna h'kastur því sem maður sá í kálfsdöllunum í sveitinni í gamla daga. En Indíán- arnir kneyfuðu hann af beztu lyst og áhrifamikill virtist hann vera, því að undir morguninn lágu all- margir í valnum af báðum kynjum í útjöðrum skemmti- svæðisins. Morguninn eftir bærði enginn á sér fyrr en um hádegi, og illa gekk okkur að fá menn í vinnu. Þó hafðist það af að koma öllu draslinu yfir eiðið fyrir myrkur. Svona gekk ferðin; mig minnir að eið- in væru 10 eða 11, sem yfir var að fara. Sumstaðar voru Indíánar fyrir að hjálpa okkur, annars staðar urðum við að bera allt sjálfir. Síðasta vatnið var af- arlangt, um 40 km., en mjög mjótt, óvíða meir en 1 km á breidd. Þar skall á okkur afspyrnu rok og rigning, og urðum við að leita til Iands bið skjótasta, því vindurinn stóð eftir vatninu og allt ætlaði um koll að keyra. Urðum við að dúsa þarna í heilan sól- arhring; var það daufleg vist, því að nú vorum við komnir norður úr skóglendinu og urðum að notast við lélega prímusa við matreiðsluna. Við brópuðum allir búrra, er við um hádegi daginn FRJÁLS-VERZXtm''......... .................. eftir renndum fyrir langa við norðurenda vatnsins og sáum verzlunarhúsið blasa við okkur, skammt frá vatninu, og fána við hún fyrir framan það. Og ekki voru húrrahrópin minni frá bópnum, sem beið okkar á bakkanum, því nú voru hinar langþráðu vörur loks- ins komnar, en margar vörutegundir voru fyrir löngu til þurrðar gegnar í verzluninni, þar á meðal tóbak. Öllum vörunum skiluðum við óskemmdum, enda voru þær í sérstökum vatnsheldum umbúðurn. Ferðin til baka gekk mun greiðar, og lögðum við af stað með vörurnar í hina tvo staðina fyrst í sept- ember. Gátum við tekið þær allar í einni ferð. Eins og áður var sagt var þetta miklu styttri vegalengd, um 150 km að fyrri staðnum, og hinn um 60 km handan við liann. En nú snérist tíðin á móti okkur og gekk í stöðuga rigningu og hvassviðri. Vorum við blautir og hraktir allan tímann, og á þessari leið voru engir Indíánar til að hjálpa okkur. Það stóðst á end- um, að er við komum að fyrri staðnum, voru tveir af félögum okkar orðnir veikir af vosbúð, og skildum við þá eftir þar, en héldum áfram 6 á tveimur bátum og urðum að bera yfir tvö eiði. Við komumst á leiðar- enda alveg uppgefnir af erfiði og vo:búð. En þar fengum við alveg ógleymanlegar viðtökur. Vorum við allir drifnir ofan í rúm og hjúkrað eins og ungbörn- um, enda réttum við fljótt við. Eftir tveggja daga hvíld lögðum við af stað aflur, og voru félagar okkar einnig orðnir ferðafærir, er við komum til þeirra. Til The Pas komum við um 20. september. Hvíldum við okkur þar í nokkra daga og lögðum svo af stað áleið- is til Sigluness við Manitobavatn, því að þar beið okkar vetrarvertíðin. Svör við spurningum á bls„ 124„ 1) 7. desember 1879. 2) Konstantinus mikli (285—337 e. Kr.). 3) Satúrnus, Júpiter, Marz, Venus og Merkúr. 4) Östen Undén. 5) Með lögum frá 15. apríl 1854, 6) George Gershwin. 7) 7. nóv. 1550. 8) 1+2 + 3 = 1X2X3 = 6. 9) Skírnir (125 árgangar). 10) Arabíu. 11) Fjórum sinnum. 12) 1. og 2. fiðla. selló og brass. 13) Fyrir vestan Skotland. 14) Armensku. 15) Alt, mezzo-sopran og sopran. 141

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.