Frjáls verslun - 01.12.1952, Blaðsíða 22
Verksmiðjur „DANSK ALUMINIUM INDUSTKI A/S“ í Kaupma nahöín.
© ALUMINIUMVÖRURNAR
MEÐ SMÁRABLAÐSMERKINU
Ein af þeim vörum, sem rutt hafa
sér braut á íslenzkum vörumarkaði
á undanförnum árum vegna fram-
úrskarandi gæða, eru aluminium-
búsáhöld með smárablaðsmerkinu
frá DANSK ALUMINIUM INDU-
STRI A/S, Kaupmannahöfn. Nú,
þegar allflest íslenzk heimili nota
rafmagn til suðu, er það mjög
mikilvægt atriði, að suðuáhöld öll
séu þannig úr garði gerð, að raf-
straumurinn nýtist sem bezt. DANSK
ALUMINIUM INDUSTRI A/S hef-
ur því látið fara fram allvíðtækar
tilraunir til þess að sannreyna hent-
ugustu þykktir og gerðir á alumin-
ium suðuáhöldum til matargerðar.
Trygging er því fyrir því, að öll
aluminium suðuáhöld frá verksmiðj-
unni gernýta þann rafstraum, sem
notaður er til suðunnar. Smára-
blaðsaiuminium hefur því sökum
kosta sinna orðið mjög vinsælt hjá
húsmæðrum á öllum Norðurlönd-
unum og víða um heim, þar sem
þær hafa verið á boðstólum. Þó að
framleiðslugeta verksmiðjunnar sé
mikil, og allt sé unnið með full-
komnustu vélum, hefur eftirspurn
eftir smárablaðsvörum verið svo
mikil á undanförnum árum, að
verksmiðjan hefur alls ekki getað
annað eftirspurninni. En nú í sumar
hefur verið bætt við nýjum verk-
smiðjum, og vonar verksmiðjan, að
afköstin aukist svo, að hún geti
afgreitt allar vörupantanir jafnóð-
um og þær berast.
DANSK ALUMINIUM INDUSTRI
A/S er stofnsett í Kaupmannahöfn
20. desember 1906 og hét þá Dansk
Staalbeholderfabrik A/S. Framleidd
voru þá alls konar ílát úr stáli,
einkum mjólkurbrúsar. Fljótlega
byrjaði verksmiðjan að framleiða
mjólkurbrúsa úr aluminium, en
mjólkurframleiðendur voru fyrst í
stað mjög hikandi við að nota al-
uminiummjólkurbrúsa í stað stál-
brúsa. En nú er svo komið í Dan-
mörku, að aluminiumbrúsar eru
meira nolaðir við mjólkurfram-
leiðsluna en stálbrúsar. En DANSK
ALUMINIUM INDUSTRI A/S er
einn stærsti framleiðandinn á þeirri
vöru í Danmörku, svo og á ýmiss-
konar stórum og smáum stáltönkum
til flutninga og sölu á mjólk.
Árið 1928 var nafni verksmiðj-
unnar breytt í núverandi nafn.
Byrjaði hún þá að framleiða í stór-
um stíl ýmiss konar ílát og áhöld
fyrir mjólkurbú til notkunar við
mjólkurframleiðslu. Skömmu síðar
hóf svo verksmiðjan framleiðdu á
búsáhöldum úr aluminium með
smárablaðsmerkinu. Mjög fljótlega
urðu smárablaðsbúsáhöld mest seldu
aluminium-búsáhöld í Danmörku
og ruddu sér síðar braut á erlend-
um mörkuðum.
Ástæðan fyrir vinsældum smára-
blaðsvörunnar er án efa sú, að
verksmiðjan hefur frá byrjun lagt
áherzlu á að framleiða aðeins úr-
valsvörur þannig, að notendur var-
anna hafa ávallt verið ánægðir, og
verzlunarmenn þeir, sem selt hafa
vörurnar, gátu alltaf treyst því, að
þegar þeir buðu smárablaðsalumini-
um, gátu þeir verið vissir um, að
þeir mæltu með fyrsta flokks fram-
leiðslu.
Hingað til Islands hefur verk-
smiðjan á undanförnum árum selt
mjög mikið af aluminiumbúsáhöld-
um, mjólkurbrúsum og fleiri vör-
um, er hún framleiðir. Hefur verk-
smiðjan lagt mikla rækt við að
m
FRJÁLS yerzlun