Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1952, Page 15

Frjáls verslun - 01.12.1952, Page 15
Þannig lelt fyrsta jóla- off nýárskortið út. unga, en undir myndinni stóð: „Gleðilegt nýtt ár.“ Þetta var nýárskveðja, sem er ekki það sama og jóla- kveðja. Þjóðverjar fullyrða á hinn bóginn, að hugmyndina að jólakortunum megi rekja til handmáluðu bréfanna, sem þeir áður fyrr sendu til vina og ættingja á messu- degi þess verndardýrlings, sem þeir áttu samnefnt við. Japanir þekktu að minnsta kosti hundrað árum áður samskonar sið, er þeir nefndu „surimono11, en það var handmáluð teikning, sem þeir sendu ættingjum og vinum á nýársdag. „Surimono" sýndi venjulegast viðfelldin atriði úr daglega lífinu. Teikningar þessar voru raunverulega mikil listaverk. Jólakortin voru framleidd eftir réttum kaupsýslu- reglum — og eftir því sem bezt er vitað — voru þau til sölu víðast hvar í Evrópu í kringum 1860. Þjóð- verjar réðu yfir mörkuðum fyrir jólakort í flesturn löndum, ekki vegna þess að kort þeirra væru listrænni og betur gerð en kort annarra þjóða, heldur eingöngu vegna hins lága verðlags á þeim. Til þess að verða ekki undir í samkeppninni urðu aðrar þjóðir því að lækka laun til listamanna þeirra, er fengust við jóla- kortagerð. Afleiðingin varð sú, að þeir fáu, góðu listamenn, sem í upphafi höfðu unnið fyrir jóla- kortaiðnaðinn, drógu sig í hlé. Hafði það í för með scr mikla afturför í listrænum gæðum kortanna. Mörg þeirra jólakorta, sem á þessum árum voru ]>rentuð í Þýzkalandi — en þau voru víðast hvar stæld að meira eða minna leyti — voru síður en svo sérkenni- leg fyrir þann tilgang, sem þeim var ætlað, þ. e. að flytja manna á milli kveðju, er væri bergmál þess, sem ómaði í eyru hirðingjanna á jólanóttina í Betle- hem. Jólakortin voru mjög afkáraleg í útliti og prýdd ótilhlýðilegum myndum, t.d. hárgreiðu, rakhníf, gerfitennum, vindlastúfum, skósólum o.fl., og sum voru jafnvel skreytt hneykslanlegum myndum. Út- breiðsla þessara korta varð ekki mikil á Norðurlönd- um, því að fólk þar var mun hrifnara af glansjóla- kortunum, t. d. mynd af landslagi, er glitraði af hag- anlega gerðum snjó og hélu, er gert var úr gleri og málmefnum. Þurrkuð blóm, flauslsútflúr, cilkikögur og annað skraut, er komið var.fyrir á jólakortunum af miklu hugviti i kringum sólarlag og stúlkur, er renndu sér á skautum á ís, gerðum úr silkipappír, voru einnig mjög vinsæl. Oft brá fyrir skemmtilegum heilbrotum um gam- ansöm atriði á kortunum, en venjulega voru lista- mennirnir meira hversdagslegir en skemmtilegir. I bezta tilfelli bar framleiðsla þeirra svipmót af alþýð- legri kímni, en yfirleitt var fljótfærnin leiðinlega á- berandi. Var vissulega engin eftirsjá í kortum þess- um, er þau hurfu af markaðinum, en við tóku græsku- lausu kortin með litlu jólasveinunum. Jólasveinakort- in voru óbrotin og frumleg, og vel til fallin að bera manna á milli óskina um góð og gleðileg jól. Allt fram að fyrri heimsstyrjöldinni var þó nokkur uppgangstími fyrir jólakortin, og útbreiðsla þeirra jókst stöðugt. í mörgum menningarlöndum efndu út- gefndur til samkeppni meðal listamanna, með það fyrir augum að fá betri teikningar af jólakí'ituin Framh. á bls. 143. Brezki listmúlarinn J. C. Ilorslcy tciknaði íyrsta jólakortið. FRJÁLS verzlun 127

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.