Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1952, Side 16

Frjáls verslun - 01.12.1952, Side 16
KARL ÍSFELD: Undir erlendum himttum. MEÐ GRÆNU GIMSTEINABROSI Yfir blámistraða fjallsbrún í suðausturátt gægist ofurlítil rcind af haustbleikri morgunsól, sem varpar dularfullu huldubliki yfir grænuhvola Afríku, sem stíga dans í undarlegri álfheimadýrð tíbrár og hill- inga — í svefnglýjuðum augum langferðamannsins, sem stendur á þilfari skipsins, lítt sofinn, og star- ir eftirvæntingaraugum á land hinna furðulegu æv- intýra. Þetta huldublik álfheimanna seiðir fram í hugann minningar um ævintýralegar frásagnir, lesnar í æsku, um leyndardómsfulla fenskóga, þar sem solt- in ljón, ýlfrandi sjakalar og blóðþyrst tígrisdýr reika í húmi næturinnar, eiturspúandi höggormar leynast í lággróðrinum, en hátt uppi í krónum trjánna hoppa litskrúðugir, vængjafimir söngfuglar grein af grein með unaðslegu, þýðu kvaki. I þessari furðuálfu áttu einnig, samkvæmt heimild ævintýranna, að leynast dýrmætir fjársjóðir, hvítasilfur og rauðagull, og gimsteinar, hrúgur af grænum gimsteinum, sem brostu við manni, þegar sólin skein á þá, brostu köldu, grænu gimsteinabrosi. Skipið er að leggja upp að hafnargarðinum í Oran, borg vestarlega í Algier á norðurströnd Afríku. Við erum á leið til vöggu hinnar fornu, sígildu menning- ar Grikklands, og hér verður ekki staðið við nema fáeinar klukkustundir, því crindið er ekki annað en að skila til heimkynna sinna þremur laumufarþegum, Arabastrákum, sem höfðu læðzt um borð. þegar ski|)ið kom hér síðast og falið sig í lestinni. Á leiðinni höfðum við fsngið færi á að kynnast þessum piltum og komizt að raun um, að þeir höfðu tileinkað sér rækilega kenningar kóransins, að minnsta kosti þær, sem gátu orðið þeim að gagni í lífsbarátt- unni, ef barátlu skyldi kalla, svo sem þessar: „Allt kemur í tæka tíð til þess, sem hefur þrek til að bíða,“ og „seinlæti er frá guði en óðagot frá andskotanum,“ því alla leiðina frá Skólavörðustíg 9 í Reykjavík til hafnargarðsins í Oran í Algier, hafði ekki sézt lífs- mark með þeim, nema þegar þeir geispuðu. Þeir virt- ust vera iðjuleysingjar af sannfæringu og letin hug- sjón þeirra. Og þótt þeir væru allra manna huglaus- astir, fyltust þeir nærri því ofurmannlegu hugrekki, ef þeim var ætlað verk að vinna, og hreyfðu sig ekki hvað sem á gekk, jafnvel þóll þeim væri hótað höfuð- þvotti, og var þeim þó mjög ilia við allt hreinlæli. Þarna var mikið á sig lagt fyrir hugsjónina. Skijiið er lagzt við hafnargarðinn. Klukkan er tiu að morgni. Við fáum tilkynningu um, að lagt verði aftur út á hinar bláu bárur Miðjarðarhafsins klukkan þrjú eftir liádegi, svo nú verður að nota tímann vel lil að skoða borgina og umhverfið, anda að sér stað- blænum með öllum skilningarvitum, ef mann kynni að langa 'til að anda honum frá sér aftur einhverntíma seinna í fáeinum línum í blaði eða bók. Niður að skipshliðinni eru komnir nokkrir mangarar með varn- ing sinn, sem þeir reyna að ]>ranga inn á farþegana með fleðulátum og fagurgala. En við látum þá ekki tefja okkur heldur flýtum okkur í land, á fund af- greiðslumanns skipsins, sem hefur lofað að útvega okkur öruggan bílstjóra, til að fara með okkur á þá staði, sem markverðastir eru í nágrenni borgarinnar. Borgina sjálfa ætlum við að skoða, á eftir. leið.'agn- arlaust. Við bílstjóra í Oran er vissara að semja fyrirfram um borgunina. Og þegar búið er að semja um greiðslu fyrir tveggja líma akstur, er lagt af stað. Fyrir vestan borgina gnæfir hátt fjall, og á efstu gnípu fjallsins er fræg kapella og nunnuklaustur, sem heitir Santa Cruz. I miðri fjallshlíðinni er öldurhús, sem heitir Belved- ere og þangað er ekið eftir sniðskornum vegi upp blíðina, áð þar og drukkinn bjór úti á garðflötinni, því að vegurinn til heilagleikans cr á fótinn, menn mæðast í brekkum og gerast þorstlátir á þeirri leið. Af garðflötinni er hin fegursta útsýn yfir Oran- borg, suður fyrir Senikalvatn og út á síblátt Miðjarð- arhafið. Við sitjum lengi sem bergnumin yfir feg- urðinni, sem blasir við augum frá garðflötinni í Belv- edere. Við fætur okkar liggur Oran, ævintýraborgin, einhver mesta gimsteinasmyglborg í Afríku. íbúar 128 FRJÁLS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.