Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.06.1965, Qupperneq 4

Frjáls verslun - 01.06.1965, Qupperneq 4
Vinur minn, sem var við nám við ríkisháskólann í Florida, ráðlagði mér að nema við viðskiptadeild skólans, og bætti við að loftslag væri þægilegt á þessum slóðum. Það varð úr að ég hóf nám til að ljúka BS gráðu í banka- og fjármálum. Síðan fékk ég Fulbrightstyrk og lærði við háskólann í Alabama og Ibero Americana í Mexíkóborg. ISM: Ilvar kynntust þér verðbréfaviðskiptum? BACIIMANN: í Tallahassee. Ég kynntist konu minni 1955, og verðbréfaviðskiptunum gegnum hana. Ég varð ástfanginn af báðum, og hefi verið giftur þeim síðan. Kona mín, Ann, var að búa sig undir háskólapróf í spænsku. Hún gætti barna fyrir framkvæmdastjóra einu verðbréfaskrifstofunnar í Tallahassee og kynnti mig fyrir honum. Svo fór, að er ég varð framkvæmdastjóri, vann þessi maður hjá mér. ISM: Hann hefur þá vissulega haft áhrif á yður? BACHMANN: Ég varð sannarlega hrifinn af þessari hlið viðskiptalífsins. Jafnskjótt og ég hafði lokið Masters-prófi, vildi ég byrja, svo ég hélt rak- leiðis til New York. ISM: Og hófuð störf sem verðbréfasali? BACHMANN: Nei, svo auðvelt var það ekki. Verðbréfamarkaðurinn var í öldudal í september 1957. Sem dæmi má nefna að ég heimsótti Du Pont & Co. snemma í september — og þeir sögðu mér að koma aftur í janúar, sex mánuðum síðar. Ég vaið að taka staðreyndum: Verðbréfafyrirtækin réðu ekki menn á þessum tíma. Ég sneri mér til Chase Manhattan (bankans) og þar fékk ég starf þegar í stað. Þeir settu mig í námskeið í ábyrgðar- deildinni, og þar var ég grafinn í 11 mánuði. ISM: Þér höfðuð farið til New York með þeim staðfasta ásetningi að gerast verðbréfasali, en þess í stað lentuð þér í banka. Hvarflaði það að yður að e. t. v. væru verðbréfaviðskiptin ekki hin rétta hilla yðar í lífinu, því að sölustarf, sem verðbréfa- viðskipti eru, kynni að reynast eitthvert erfiðasta starf, sem maður hafandi ekki fullt vald á tungu- málinu, gæti valið sér? BACHMANN: Þér hlægið kannske, en um þetta leyti gerði ég mér ekki grein fyrir að margt fólk skildi mig ekki. Ég skildi fólkið, en það skildi mig ekki. Faðir minn átti eina auglýsingafyrirtækið á íslandi. Iíann var mikill sölumaður. Ég fylgdist oft með því er hann kom fram með eitthvað nýtt og frábrugðið er hann var að selja. Síðar velti ég því fyrir mér hvort hinn erlendi hreimur minn hjálp- aði mér til að selja. Fólk varð að taka eftir, hvort sem því líkaði betur eða verr, og hlusta vandlega á það sem ég var að segja. E. t. v. gaf þetta. mér stundum nokkrar mínútur til þess að endurtaka það, sem ég var að bjóða því. En þetta er aðeins tilgáta. ISM: Og hún er vissulega fróðleg. En hvernig tókst yður að brúa bilið milli bankastarfsemi og verðbréfasölu og hafna síðan í Florida? BACHMANN: Það var of kalt í New York. Manhattan ætti að heita ísland. Á veturna er kald- ara þar en í Reykjavík, svo áður en árið var á enda sneri ég mér til Samtaka verðbréfafyrirtækja, og föstudag einn var Florida Goodbody að leita að manni. Maður þeirra í Miami var staddur þarna og hann sagði: „Ef þú lætur sjá þig í Miami á mánu- dagsmorgun, þá færðu starf hjá okkur.“ Ég hætti í Chase Manhattan síðdegis þennan dag. Við pökk- uðum dóti okkar niður, komum því fvrir í litla Peugeoutbílnum okkar, og þessa helgi ókum við suður á bóginn. Því er ekki að neita að við litum út eins og sígaunar! TSM: Hvernig gekk yður síðan fyrsta árið? BACHMANN: Fyrsta árið fékk ég meira en $10,000 (430,000 ísl. kr.) í umboðslaun. ISM: Munið þér hversu marga viðskiptamanna- reikninga þeir létu yður hafa? BACHMANN: Enga. Mér voru ekki afhentir neinir viðskiptamannareikningar. Ég byrjaði með ekki neitt. TSM: Þekktuð þér nokkurn mann í Miami? BACHMANN: Engan. ISM: Þarna voruð þér þá nýliði í viðskiptunum í framandi borg. Sýndi framkvæmdastjóri fyrir- tældsins yður, hvernig þér ættuð að bera yður til við að byrja? BACHMANN: Nei. Ég bvrjaði einfaldlega á bví að heimsækja menn án þess að gera boð á undan mér (cold calls). Ég gekk upp götuna öðrum megin og niður hinum megin. Ég fór síðan í heimsóknir í nærliggjandi skrifstofur, og mér til mikillar undrun- ar komst ég að þeirri niðurstöðu að það var miög auðvelt að hitta menn að máli. Allir höfðu mikið af bæklingum um fjárfestingu og verðbréf liggjandi h’á sér, og ég man að mest af þessum ritum var frá Merril-Lynch (eitt stærsta verðbréfafyrirtækið í USA). Þeir höfðu mjÖ2 góða reglu á póstsend- inpum, og það var Merril-Lynch bæklingur í hverri skrifstofu sem ég heimsótti, þannig að flestir þess- ara manna voru kunnugir hlutabréfum og verð- bréfum; sumir þeirra áttu hlutabréf. — ev enginn 4 FRJÁLS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.