Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.06.1965, Qupperneq 6

Frjáls verslun - 01.06.1965, Qupperneq 6
að tala við mig tuttugu klukkustundir á sólarhring, þá er það vinnutími minn. Persónulegt samband er mesta sölutœki mitt. Eg hefi viðskiptavini, sem reka veitingahús, og vilji þeir hitta mig kl. 11 um kvöld eða kl. 7 að morgni, þá er ég til staðar. Náin tengsl við fólk gegna stærstu hlutverki í sölum mín- um. Ef ég hefi nógu marga væntanlega viðskipta- vini að ræða við, þá kem ég þeim fyrr eða síðar til þess að ræða um verðbréfamarkaðinn, og ég hefi alltaf á reiðum höndum ákveðin hlutabréf til að mæla með. Það skiptir engu máli hvers konar reikn- ingum þeir hafa áhuga á. Þegar þeir spyrja, hvað líti bezt út, hefi ég ávallt svar á reiðum höndum. ISM: Teljið þér, að þér þurfið að vita meira um væntanlegan viðskiptamann áður en þér mælið með einhverju við hann? BACHMANN: Undir það síðasta, já, í byrjun, nei. Ég get spurt hann í skyndingu hvort hann hafi áhuga á „spekúlasjón“ eða beinni fjárfestingu. Áður en þessi aðili verður viðskiptavinur minn verð ég engu að síður að vita eitt og annað um hann sjálfan, fjölskyldu hans o. fl., til þess að geta veitt honum sem bezta þjónustu. ISM: Teljið þér að það sé siðferðileg skylda yðar ekki síður en að það hjálpi yður í sölum, að þekkja viðskiptavin yðar? BACHMANN: Nei, raunverulega ekki. Það er rétt, að til þess að vera réttsýnn verðbréfasali verð- ur maður að kynnast högum viðskiptavinarins náið, en ég tel einnig að þessi vitneskja geti verið mikils- vert söluvopn af eftirgreindum ástæðum: Góður sölumaður, og við gerum ráð fyrir því að hann sé ráðvandur, verður að trúa á það, sem hann er að selja. í viðskiptum okkar er ekki nóg að menn trúi á, að þau hlutabréf, sem við mælum með, séu heppi- leg til fjárfestingar. Það er ekki síður mikilvægt að trúa því að þessi sérstöku bréf séu góð fjárfesting fyrir þennan sérstaka viðskiptavin. Þess vegna verður þessi þekking að söluvopni sökum þess að hún sér þér fyrir réttlætingu á ákafa þínum og sann- færingu, er þú mælir með ákveðnu verðbréfi. ISM: Hr. Bachmann, þér hafið veitt okkur inn- sýn í starf yðar sem verðbréfasala, sem vel gengur. Ilvað er það, sem þér teljið mikilvægast í störfum yðar? BACHMANN: Ég mundi segja sjálfsögun — sjálfsögun í meðferð tímans. Tíminn er ]>að mikil- vægasta, sem ég hefi. Tími er ekki peningar — tími er hagnaður. ISM: Þakka yður fyrir. Samgöngumál íslendinga Framh. af bls. 1 örar en samgöngur á sjó. Haja bœði flugfélögin þar átt hlut að mála. Innanlandsflugið, sem ekki er arðgœft, hefur mœtt á Flugfélagi íslands, sem nú hefur bœtt flugvélakost sinn með hinni glœsi- legu Folcker-Friendshi'pvél „fíUkfaxa“, og fœr von bráðar aðra flugvél af sömu gerð. 1 milli- landafluginu hafa Loftleiðir fœrt mjög út kví- arnar og hyggja að sögn á endurbœtur á véla- kosti sínum. Nœsta stórátalcið í lofti hlýtur þó að vera kaup á þotuvél, sem getur stytt flug- tíma verulega, svo að t. d. bein ferð til Kaup- mannahafnar taki innan við fjóra kluklcutíma, og jafnframt gœti vél af þeirrí gerð boríð yfir hundrað farþega. Fróðir menn telja, að vél þeirr- ar tegundar mundi e. t. v. lcosta svipað og nýr Gidlfoss. Það mun ekki vera launungarmál, að Flugfélag lslands hefur milcinn hug á að eignast slíkan farkost og hafa í því sambandi verið gerð- ar ýtarlegar athuganir á öllum rekstrarkostnaði og afkomumöguleikum þess háttar fyrírtækis. Vœri óskandi, að þœr vonir mœttu rœtasi. Þá ætti samgöngum okkar á sjó og í lofti að vera borgið um sinn. Verzlunarstéttin hlýtur sérstaklega að fagna hverri samgöngubót, og mun raunar öll þjóðin taka undir þær óskir. Vonandi eignast Islending- ar áður en mörg ár líða nýjan fíullfoss og mynd- arlega þotu. — Hver er skoðun prófessorsins á kvenfólki, spurði blaðamaðurinn stærðfræðiprófessorinn í af- mælisviðtalinu. — Kvenfólk, endurtók prófessorinn hugsi, og studdi hönd undir kinn. — Kvenfólk? Jú, er það ekki kvenfólk sem fer afturábak þegar maður dansar? ★ Einn bílstjóranna hjá frægri sérleyfisleið, sem ek- ur austur fyrir fjall, kom ldaupandi inn til forstjór- ans. — Einn af bændunum fyrir austan hótar að kæra sérleyfið. Það er vegna kúnna hans. — Höfum við ekið á einhverja þeirra? — Nei, en hann segir að bíllinn keyri svo hægt, að farþegarnir halli sér út um gluggana og mjólki kýrnar um leið og þeir fara hjá! 6 frjals verzlun

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.