Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.06.1965, Side 7

Frjáls verslun - 01.06.1965, Side 7
(Jlflulningsuppbæfur landbúnaðarins lítl bærilegur baggi Þættir úi ræðu Gylfa Þ. Gíslasonar, viðskiptamálaráðherra, á aðalfundi Verzlunarráðs Á fyrstu átta mánuðum þessa árs varð fiskafli mun minn cn á sama tima árið áður. Þorskaflinn reyndist 22% minni. Til skamms tíma virtist einnig svo sem sildaraflinn mundi verða minni, og þó eink- um verðminni, en í fyrra, en mikill síldarafli síðustu vikur veldur því, að gera má ráð fyrir, að síldar- aflinn verði meiri nú í ár en í fyrra, bœði að magni til og verðmæti. Hins vegar hafa verðhækkanir á sjávarafurðum bætt upp aflaminnkunina á þorsk- veiðum. Á fyrstu átta mánuðum þessa árs varð framleiðsluverðmæti sjávarútvegsins 3.473 milljónir króna, en liafði á átta fyrstu mánuðum síðastliðins árs numið 3.437 milljónum króna. Með hliðsjón af auknum síldarafla síðustu vikur má gera ráð fyrir því, að nú í dag sé heildarframleiðsluverðmæti sjávarútvegsins orðið meira en það var á sama tíma í fyrra. Framkvæmdir hafa nú í ár sem fyrr verið mjög miklar og valdið mikilli eftirspurn eftir vinnuafli. Til þess að stuðla að því, að of mikil eftirspurn eftir vinnuafli og lánsfé ylli ekki varhugavcrðri röskun á vinnumarkaðnum og lánsfjármarkaðnum. ákvað ríkisstjórnin í vor að lækka opinberar fram- kvæmdir um fimmtung og reyndi að hafa áhrif á stærstu bæjarfélögin í þá átt, að þau hefðu hemil á framkvæmdum sínum. Áætlað er, að heildarfjár- munamyndun þjóðarinnar verði í ár, í raunveruleg- um verðmætum talin, um það bil hin sama og á síðastliðnu ári. Gert er þó ráð fyrir, að bvggingar- starfsemi verði nokkru meiri eða um 7% meiri en á síðastliðinu ári. Er þetta mun rninni aukning á byggingastarfsemi en átti sér stað í fvrra, er hún nam 14%, en árið þar áður eða 1963 jókst bygg- ingarstarfsemi hvorki mcira né minna en um 20%. í þessu sambandi verður að hafa í huga, að vélvæð- ing licfur aukizt verulega í byggingariðnaðinum og haft í för með sér aukna framleiðni. Á fyrstu átta mánuðum þessa árs jókst innflutn- ingur urn 5,4% miðað við sama tímabil í fyrra. Ef innflutningur skipa og flugvéla er frátalinn, jókst innflutningurinn um 10,3%, en hafði aukizt. um 2,3% á sama tíma i fyrra. Útflutningur jókst á fyrstu átta mánuðum þessa árs um 15,4%, en hafði aukizt um 21,6% á sama tíma í fyrra. Á fyrstu átta mánuðum þessa árs batnaði gjaldeyrisstaða bankanna um 218 milljónir króna. Á sama tíma í fyrra hélzt gjaldeyrisstaðan svo að segja óbreytt. 1 ágústlok nam gjaldeyrisvarasjóður bankanna 1.811 milljónum króna. í því sambandi er athyglis- vert, að inneign í frjálsum gjaldeyri nam 1.936 milljónum króna, en hins vegar skulduðu íslend- ingar í vöruskiptagjaldeyri 125 milljónir króna. Stutt erlend vörukaupalán jukust á fyrstu átta mánuðum ársins um 202 milljónir króna, og er það mun meiri aukning en átti sér stað á sama tíma í fyrra, en þá nam aukningin aðeins 91 milljón króna. f ágústlok nam heildarupphæð stuttra erlendra vörukaupalána 615 milljónum króna. Á fyrstu átta mánuðum þessa árs juukust birgðir útflutningsvöru um aðeins 172 milljónir króna, og er það miklu minni aukning en átti sér stað á sama tíma í fyrra. Þá jukust birgðir útflutningsvöru um 577 milljónir króna. í ágústlok námu birgðir útflutningsafurða 939 milljónum króna. Þensla sú, sem einkennt hefur peningamarkaðinn undanfarin ár, hefur haldið áfram á þessu ári. Er ástæðan annars vegar veik staða ríkissjóðs gagnvart Seðlabankanum og liins vegar miklar erlendar gjald- eyristekjur. Á þessu mun þó eflaust verða breyting á næstu mánuðum, annars vegar vegna þess, að FRJÁLS VERZLUN 7

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.