Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.06.1965, Blaðsíða 9

Frjáls verslun - 01.06.1965, Blaðsíða 9
Frá aðalfundi Verzlunarráðs. Viðskiptamálaráðherra í ræðustóli. aðstöðu íslands á erlendum mörkuðum. Margt bendir og til þess, að þýðing beinna vöruskipta í íslenzkum utanríkisviðskiptum fari minnkandi á næstu árum. Það bendir einnig til þess, að íslend- ingar þurfi að atliuga vandlega afstöðu sína til við- skiptabandalaganna í Vestur-Evrópu. Það hefur aldrei verið talið koma til greina, að ísland gerðist aðili að Efnahagsbandalaginu, eins og það er og starfar í dag. Það verður og eflaust ríkjandi skoðun framvegis. Hins vegar hafa við- skipti okkar við Fríverzlunarbandalagslöndin eða EFTA-löndin farið vaxandi á undanförnum árum. Og kvaðir þær, sem EFTA-samningnrinn leggur á aðildarríki þess bandalags, eru svo miklu minni en samningur Efnahagsbandalagsins leggur á aðildar- ríki þess, að þær út af fyrir sig útiloka engan veg- inn aðild íslands að slíku bandalagi. T. d. hafa ákvæði stofnsamnings EFTA um gagnkvæm at- vinnurekstrarréttindi ekki haft neina breytingu í för með sér á Norðurlöndum. Ákvæði þessi taka ekki til landbúnaðar, fiskveiða, samgöngumála, starfsemi banka og tryggingafélaga eða annarrar hliðstæðrar starfsemi. Auk þess eru fordæmi fyrir því, að gerð- ur hafi verið sérstakur fyrirvari varðandi þessi atriði til þess að tryggja enn betur full vfirráð yfir innlendum náttúruauðlindum og eftirlit með er- lendri fjárfestingu. Gerðu t. d. Norðmenn slíkan fyrirvara í sambandi við aðild sína að EFTA. Auðvitað má færa rök bæði með því og móti, að íslendingar gerist aðilar að EFTA. Helztu rökin, sem færa má með þvi, að íslendingar leiti eftir að- ild að EFTA, eru þau, að aðild okkar inundi greiða fyrir útflutningi íslenzkra afurða til EFTA-land- anna, fyrst og fremst útflutningi þeirra sjávaraf- urða, sem EFTA-samningurinn nær til, svo sem freðfisks, síldarlýsis, þorskalýsis og niðursuðuvöru, en aðildin mundi einnig opna nýjar leiðir til út- flutnings iðnaðarvöru, t. d. útflutnings á ullarefn- um, prjónavörum úr ull, ullargarni og sútuðum gærum. Nýir framleiðslu- og útflutningsmöguleikar mundu og skapast. Aðstaða okkar á mörkuðum bandalagsríkjanna hefur farið versnandi undanfar- in ár samanborið við aðstöðu framleiðenda á EFTA- svæðinu og lægra verð fengizt fyrir sumar afurðir af þeim ástæðum. Skýrasta dæmið um þetta er freðfiskstollurinn í Bretlandi, sem er 10% á í slenzk- um freðfiski, en 3% á norskum og dönskum freð- fiski, og fellur sá tollur alveg niður eftir eitt og hálft ár. Enn meiri tollmúr er á síldarlýsi, þar sem síldar- lýsi frá EFTA-löndunum er tollfrjálst í Bretlandi, en 10% tollur er á íslenzku síldarlýsi. Er þetta skýr- ingin á því, að íslenzkt síldarlýsi er nú selt á lægra verði til Bretlands en danskt síldarlýsi. Það virðist líklegt, að fslendingar mundu í sambandi við að- ild að EFTA geta fengið tvíhliða samninga við helztu viðskiptalönd sín í EFTA um ýmiss konar viðskiptafríðindi. þar eð fordæmi eru fyrir slíkum samn:ng"m milli EFTA-landa. Ættu íslendingar þá FRJÁLS VERZLUN 9

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.