Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.06.1965, Qupperneq 10

Frjáls verslun - 01.06.1965, Qupperneq 10
sérstaklega að keppa að því, að fá fríðindi fyrir sjávarafurðir, t. d. frjálsari innflutning á ísfiski og tollalækkun á heilfrystum fiski í Bretlandi og e. t. v. fyrirgreiðslu um aukna sölu á íslenzku kindakjöti til Norðurlandanna. Höfuðbreytingin, sem aðild að EFTA mundi hafa í för með sér hér innanlands, er sú, að afnema yrði alla verndartolla. Hins vegar er heimilt að halda hvers konar fjáröflunartollum. En með hliðsjón af því, að í fyrra munu innflutningstollar hafa numið sem næst helmingi af tekjum ríkissjóðs og tals- verður hluti tollanna eru verndartollar, mundi af- nám þeirra annars vegar hafa mikil áhrif á fjár- mál ríkisins og hins vegar mikla þýðingu fyrir þann innlenda iðnað, sem að einhverju eða öllu leyti hefur starfað í skjóli verndartollanna. Hins vegar er regl- an sú, að tollalækkanirnar eru framkvæmdar í áföngum, og má eflaust gera ráð fyrir því, að Is- lendingar gætu átt kost á alllöngu aðlögunartíma- bili. I þessu sambandi er og nauðsynlegt að geta þess, að jafnvel þótt íslendingar gerist ekki aðilar að EFTA, er skipulögð tollalækkun á næst.u árum nauðsynleg af ýmsurn ástæðum. Með því móti myndi unnt að tryggja hagkvæmari nýtingu bæði vinnuafls og fjármuna en nú á sér stað. Ein hald- bezta leiðin til þess að draga úr þeirri þenslu, sem verið hefur og er enn í efnahagslífinu og treysta þannig jafnvægi í efnahagsmálum, er án efa sú, að lækka smám saman innflutningstollana og stuðla þanig að verðlækkun innanlands og óbeinni lækk- un framleiðslukostnaðar. Þá er tollalækkun og nauð- synleg til þess að draga úr ólöglegum og óeðlileg- um innflutningi til landsins, en meðan jafnmikið misræmi er á milli verðlags innanlands og utan og nú á sér stað, að því er snertir hátttollaðar vörur, hlýtur ávallt að vera mjög torvelt að stemma stigu við ólöglegum innflutningi. Meðal iðnrekenda virð- ist vera fullur skilningur á nauðsyn skipulegrar tollalækkunar, þ. e. a. s. tollalækkunar, sem gerð sé í áföngum eftir fyrirframgerðri áætlun, enda gerði síðasta ársþing Félags íslenzkra iðrekenda ályktun í þá átt. Helztu rökin gegn aðild íslands að EFTA eru hins vegar þau, að lækkun tolla á innfluttum iðn- aðarvörum frá EFTA-ríkjunum muni hafa í för með sér erfiðleika fyrir hinn tollverndaða íslenzka iðnað, að ákvæði EFTA-sáttmálans um afnám hafta gætu torveldað viðskipti okkar við Austur-Evrópulöndin og að afnám verndartollanna hefðu í för með sér alvarlegt fjáröflunarvandamál fyrir ríkissjóð. Það er skoðun mín, að það verði eitt helzta við- fangsefni íslenzkra efnahags- og viðskiptamála á næstu mánuðum og misserum, að vega og meta kosti þess og galla, að ísland gerist aðili að EFTA- samtökunum. Hér er um mál að ræða, sem íslenzk verzlunarstétt hlýtur að láta sig miklu varða og nauðsynlegt er, að hún hugleiði vandlega. Hitt málið, sem ég ætla að gera að umtalsefni og ég tel, að muni verða eitt meginviðfangsefnið í ís- lenzkum efnahagsmálum á næstu mánuðum og misserum, er, hver framtíðarstefnan eigi að vera í málefnum íslenzks landbúnaðar. Einhverjum kann að þykja undarlegt, að ég telji ástæðu til þess að ræða vandamál íslenzks landbúnaðar á aðalfundi Verzlunarráðsins. En sannleikurinn er sá, að vanda- mál landbúnaðarins eru orðin að einu höfuðvanda- máli íslenzkra efnahagsmála. Astæða þess, að svo er komið, er sú annars vegar, að íslenzk landbún- aðarframleiðsla hefur aukizt svo mikið á undanförn- um árum, að nú þarf að flytja verulegan hluta hennar til útlanda, og hins vegar, að bilið milli framleiðslukostnaðarins innanlands og söluverðsins erlendis fer vaxandi og er orðið svo mikið, að út- flutningsbætur þær, sem greiða ber samkvæmt gild- andi lögum, eru orðnar svo miklar, að þær eru að verða lítt bærilegur baggi fyrir ríkissjóð og skatt- greiðendur í landinu. Til þess að skýra nokkru nánar, í hverju þetta vandamál er fólgið, má geta þess að heildsöluverð- mæti útfluttrar landbúnaðarvöru af framleiðslu árs- ins 1964—65 mun hafa numið 284 milljónum króna, en útflutningsbætur á sömu afurðir 184 milljónum króna. Aðeins rúmlega þriðjungur heilsöluverðmæt- isins fæst þannig endurgreiddur í útflutningsverð- mætinu. Frá þjóðhagslegu sjónarmiði er slík fram- leiðsla auðvitað svo óhagkvæm, að hún verður að teljast alvarlegt efnahagsvandamál. Frá gjaldeyris- sjónarmiði er þessi útflutningur þó í raun og veru enn óhagkvæmari en sést af þessu, þar eð land- búnaðarfrainleiðslan notar auðvitað talsverðan er- lendan gjaldeyri. Gera má ráð fyrir því, að bein gjaldeyrisnotkun í þágu landbúnaðarframleiðslunn- ar sé aldrei undir 20% af söluverðmæti frá búi. Gjaldeyrisnotkun í framleiðslu, sem nemur 284 milljónum króna að heildsöluverðmæti, ætti því að vera um 57 milljónir króna. En heildargjaldeyris- tekjurnar af þessari 284 milljón króna framleiðslu reyndust aðeins um 1100 milljónir króna. Hrcinar gjaldeyristekjur þjóðarbúsins af þessari framleiðslu reyndust þannig aðeins 43 milljónir króna. Þessar 10 FRJÁLS VBRZLTJN

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.