Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.06.1965, Page 16

Frjáls verslun - 01.06.1965, Page 16
Þakkaði hann stjórn og starfsfólki fyrir gott sam- starf. Ennfremur voru Magnúsi J. Brynjólfss.vni þökk- uð störf í þágu Verzlunarskólans. Kosning formanns og varaformanna og skipun framkvæmdastjórnar Verzlunarráðs íslands hefur farið fram. Formaður er Magnús J. Brynjólfsson, kaupmað- ur, 1. varaformaður Kristján G. Gíslason, stórkaup- maður og 2. varaformaður Gunnar J. Friðriksson, framkvæmdastjóri. Auk ])eirra eiga sæti í framkvæmdastjórn ráðsins Egill Guttormsson, Gunnar Ásgeirsson, Hilmar Fengcr, Othar Ellingsen og Sigurður Óli Ólafsson. Varamenn í framkvæmdastjórninni eru Birgir Kjaran, Haraldur Sveinsson, Sigfús Bjarnason, Sig- urður Helgason, Stefán G. Björnsson og Sveinn Val- fells. Hér fara á eftir tillögur þær, sem fundurinn sain- þykkti. EFTA Aðalfundur \'. 1. 1 mælist lil þess við ríkissljórniiia, að kannað verði sem fvrst, livaða samningum megi ná til þess að tryggju viðskiptahagsmuni landsins innan Fríverzlunarbandaiags Evrópu (EFTA), þar sem lítils árangurs virðist mega vænta af tollasamningum innan GATT. Að öðrum kosti er viðbúið, að landið einangrisl viðskiptalega, en það mun bitna á lífskjörum Jjjóðarinnar, þegar til lengdar lætur. Fundurinn mælist til þess við viðskiptamálaráðberra, að hann láti srmja ýtarlega og aðgengilega greinargerð um þetta mál, svo að sem flestir geti kynnt sér það til hlýtar. VERDLAGSMÁL Aðalfundur V. I. 1 vill enn á ný Iýsa yfir þeirri skoðun sinni, að frjáls verðmyndun við nægilegt vöruframboð sé hent- ugasla fyrirkomulag verðlagsmála og tryggi almenningi hagslæð- ust verzlunarkjör. Fundurinn bendir á, að þetta er samhljóða álit allra, sem verzlun og viðskipti stunda, jafnt einkafyrirtækja og samvinnu- félaga. Telur fundurinn því tímabært, að afnumin verði verð- lagsákvæði, sem enn eru í gildi. og koma mjög misjafnlega niður á hinum ýmsu greinum verzlunar og iðnaðar. UTANRÍKISVIÐSKIPTI Aðalfundur V. I. 19fiö telur liorfur í utanríkisviðskiptum og gjaldeyrismálum þjóðarinnar vera þannig, að hagkvæint og eðlilegt sé að auka frjálsan innflutning að verulegum mun. Fjöl- breyttara vöruúrval og aukin samkeppni stuðla að bættum lífs- kjörum neytenda. Fundurinn beinir þeim tilmælum til viðskiptamálaráðherra, að kannaðir verði möguleikar á aukningu frilistans og í þvi efni linft samráð við V. I. Fundurinn álítur nauðsynlegt. að inn- flutningur á efnivörum til innlendrar framleiðslu sé frjáls, og telur jafnframt tímabært, að landbúnaðarvörur, sem ekki eru niðurgreiddar hérlendis, verði setlar á frílistann. Ennfremur verði athugað, hvort ekki muni unnt að heimila aftur notkun almenns greiðslufresls á innfluttum vörum. TOI/LUR Á FLUTNINGSGJALDI Aðalfundur V. í. 1965 mælisl til þe»s við fjármálaráðherra, að settar verði reglur um framkvæmd ákvæðis í 32. lið 3. grein- ar tollskrárlaganna, sem heimilar lækkun á flutningsgjaldi í tollverði vöru, sé hún flutt inn flugleiðis. STOFNLÁNADEILD Aðalfundur V. I. 1965 beinir þeirri árskorun til bankaráðs Verzlunarbanka Islands hf., að fyrirhugaðri stofnlánadeild fyrir verzlunina verði komið á fót hið allra fyrsta. Jafnframt mælist fundur til þess við rikisstjórnina og Seðla- banka íslands, að mál þetta liljóti nauðsynlega fyrirgreiðslu. ÚTFLUTNINGSVERZLTJN Aðalfuudur V. I. 1965 skorar á ríkissljórnina að gefa útflutn- ingsverzlunina frjálsa. Bendir fundurinn á, vegna fenginnar reynslu, að frjáls út- flutningsverzlun sé líklegust til þess að tryggja hæsta fáanlegt verð á hverjum tíma. GJALDEYRISRÉTTINDI Aðalfundur V. I. 1965 itrekar tilmæli til ríkisstjóruariiinar og Seðlabanka Islands uin, að öllum viðskiptabönkum landsins r erði veitt heimild lil að verzla með erlendan gjaldeyri. Fund- urinn telur það ekki samrýmast frjálsum viðskiptaháttum að binda slika heimild við tvo ríkisbanka. EINKASÖLUR Aðalfundur V. I. 1965 beinir þeiin tilmælum til ríkisstjórnar- innar. að athugun, með aðild V. I., hliðstæð þeirri, sem nú fer frain á rekstrarfyrirkomulagi Viðtækjaverzlunar ríkisins, verði gerð á Áfengis- og lóbaksverzlun ríkisins. Verði þá athugað, hvort ekki muni hagkvæmara fyrir ríkis- sjóð og neytendur, að einkaaðilar tækju að sér dreyfingu á öðr- um verzlunarvörum ÁTVR en áfengi, þ. e. a. s. tóbaki, eldspýt- um, bökunarvörum, ilmvötnum, hárvötnum og andlitsvörum, og ef svo reynist, verði sá verzlunarrekstur gefinn frjáls TOLLAMÁL Aðalfundur V. I. 1965 \ ill benda á, að tollar á ýmsum neyzlu- vörum og hráefnum til þeirra eru enn svo háir, að ]ieir stuðla að óleyfilegum innflutningi og óþarfa eyðslu á erlendum gjaldcyri, og rýra því tollatekjur ríkisins í mörgum tilfellum. Fundurinn beinir því til stjórnar V. I., að hún athugi mögu- leiku á úrbót i þessu efni. GREIÐSLUFRESTUR Á TOLLUM Aðalfundur V. I. 1965 mælist til þess við fjáimálaráðlierra. að heimilað verði að veita greiðslufiest á tollum í því skyni, að tollafgreiðsla og heimflutningur á vörum verði einfaldnri og ódýrari en nú er. Fundurinn telur eðlilegast, að b.vrjað verði á vörum, sem luegt er að flytja beint frá skipshlið í vörugeymslur innflytjenda. svo að komizt verði hjá ofþrengslum í geymslum skipafélaganna 10 PRJÁLS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.