Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.06.1965, Page 17

Frjáls verslun - 01.06.1965, Page 17
og cndurflutningi vara. Síðan verði heiraildin látin ná lil ann- arra vara, eftir því, sem þörf gerist og ástœður leyfa. AFGREIÐSLA TOLLSKJALA Aðalfundur V. I. 1965 telur, að umbætur þær, sem gerðar hafa verið á afgreiðslu innflutningsskjala á skrifstofu tollstjórans í Reykjavík, séu enn ekki fullnægjandi og felur stjórn V. t. að vinna að því. að henni verði koraið i viðunandi horf. KAUPÞING Aðalfundur V. I. 1905 fagnar framkomnu frumvarpi til laga um verðtryggingu fjárskuldbindinga og telur, að það stefni að jafnvægi milli framboðs og eftirspurnar lánsfjár og dragi úr verðbólgufjárfestingu. Fundurinn álítur limabært, að ákvæði um verðbréfakaupþing i lögum um Seðlabanka Islands, komi til framkvæmda. ef fruni- varpið verður samþykkl og beinir þeirri áskorun til Seðlabank- ans, að hann hraði undirbúningi málsins. ÞJÓNUSTA ERLENDRA SENDIRÁÐA Aðalfundur V. I. 1905 mælist til þess við ríkisstjórnina. að liún stefni að því, að einn af starfsmönnum sendiráðanna í aðalviðskiptalöndum ])jóðarinnar, skuli vera maður með \erzl- unarþekkingu og að þau annist almennari upplýsinga|>jónustu en nú mun tíðkast og kynningu á íslenzkum framleiðsluvörum með fjölbreyttari útflutning fyrir auguin. SKATTAMÁL Aðalfundur V. I. telur nauðsynlegt, að eftirtaldar breytingar verði gerðar á lögum og reglum um skalt- og útsvarsgreiðslur fyrirtækja, svo að eðlileg og heilbrigð fjármagnsmyndun geti átt sér stað til eflingar atvinnulífi landsins: 1. Að öllum atvinnufyrirtækjum, sem hliðstæðan rekstur liafa með höndum, einkafyrirtækjum, samvinnufyrirtækjum og fyrirtækjum ríkis og bæjarfélaga, sé gert að greiða skatta og útsvar eflir sömu reglum, þannig að þau starfi í þessu efni við jafna aðstöðu. 2. Að aðstöðugjaldið verði lagt á rekstrarkostnað fyrirtækja. en ekki jafnframt á koslnaðarverð efnis og vöru, og að það verði þá hið saina fyrir allar atvinnugreinar. Að öðrum kosti skapast misræmi milli fyrirtækja og .-.uma varan i erð- ur skattlögð misjafnlega oft eftir atvikum. 8. Að takmarkanir á heimild félaga til frádráttar á arði af inn- borguðu hlulafé eða stofnfé lerði afnumdar, enda skatl- leggst arðurinn hjá eigendum Ijárins. 4. Að heimild til frádráltar á rekstrartapi verði látiu gilda bæði gagnvart tekjuskalti og tekjuútsvari. 5. Að reglur um fyrningu verði endurskoðaðar, þannig að at- vinnugreinum verði ekki mismunuð i því efni. 0. Að eignaskattur og eignaútsvar félaga verði fellt niður. þar sem hér er um tvísköttun að ræða. 7. Að lieimilað verði, þegar almenn verðlags- og kaupgjulds- breyling á sér stað, að endnrmela vörubirgðir án þess að matsbreytingin hafi áhrif á skattskvldar lekjur. 8. Að endurgreiddur verði kostnaður við innlic'intu söluskatts- ins með ákveðinni þóknun miðað við skattfjárhæð. 9. Að endurskoðuð verði nú þegar þau atriði skattalaganna, sem ganga of nærri persónufrelsi manna og friðhelgi lieim- ilnnna. ASild íslands að EFTA . . . Framh. ai bls. 14 árslok 1966. Undanþága var veitt Norðmönnum, að því er snerti nokkrar mikilvægar iðnaðarvörur, og fylgja þær upphaflegu áætluninni, og Portúgalar héldu sérákvæði um aðlögun til 1980. Ef Island gerðist aðili að EFTA, yrði það að áskilja sér ríflegan aðlögunartíma. Ný tekjuöflunar- vandamál ríkissjóðs myndu krefjast lausnar. Miðað við innflutning ársins 1964 er gert ráð fyrir, að að- ild að EFTA rýrði tekjur ríkissjóðs uni 500 millj. kr., ef menn hugsuðu sér, að verndartollar af inn- flutningi frá EFTA og tollar af hráefnum og vélum frá öllum löndum hyrfu. A 10 ára tímabili yrði að sjálfsögðu um 50 millj. á ári að ræða. Óhjákvæmi- legt yrði að lækka jafnframt tolla á ýmsum vörurn frá öðrum löndum, svo að tollamunur milli landa yrði ekki of mikill. EFTA-löndin hafa leyst fjárhagsvanda sinn með sölusköttum, verðaukaskatti og minnkun niður- greiðslna. Hér kæmi jafnframt til greina lágur toll- ur á ýmsum vörum, sem nú eru tollfrjálsar. Við aðild að EFTA myndu skapast ný viðhorf hjá íslenzkum iðnaði. Verð á samkeppnisvörum frá EFTA-löndum myndu lækka við lækkun tolla, en jafnframt yrðu tollar að lækka á efnivörum og vélum. Ymsar ráðstafanir væri nauðsynlegt að gera til þess að auðvelda aðlögunina. Nýir markaðir myndu opnast fyrir útflutningsiðnað, og breytingar verða á uppbyggingu iðnaðarins í samræmi við það. í sumar dvaldist hér nokkra daga norskur sér- fræðingur í EFTA-málum og fengu fulltrúar sam- taka verzlunar og iðnaðar tækifæri til að ræða við hann og spyrja um reynslu Norðmanna af sam- starfinu í EFTA. Kvað hann Norðmenn vera mjög ánægða með árangurinn og iðnaðinum hefði sam- vinnan reynzt mikil lyftistöng. Nýir útflutnings- möguleikar hefðu opnazt fyrir norskan iðnað. og nýjar útflutningsgreinar vaxið upp úr norska heima- markaðsiðnaðinum. Aðild Noregs að EFTA hefði verið samþykkt samhljóða af Stórþinginu, og kæmi engum til hugar að hreyfa úrsögn Noregs. Aðild að EFTA er mikið og fjölþætt mál. Það verður að kanna til hlýtar og upplýsa sem bezt, áður en ákvarðanir eru teknar. Hvort það hafi verið heitt á Sikiley? Það máttu bóka. Einn daginn er ég sat og stundi í skugganum, sá ég hund, sem elti kött, og báðir gengu! FRJÁLS VEHZLUN 17

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.