Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.06.1965, Síða 18

Frjáls verslun - 01.06.1965, Síða 18
Nokkur orð um nÝkjörinn formann V erzlunarrctðs Hinn nýkjörni formaður Verzlunarráðs islands, J. Brynjólfsson, er fæddur 31. ágúst 1K9!) í Reykja- vík. Faðir hans var Jón Brynjólfsson, skósmíða- meistari og síðar kaupmaður. Jón Brynjólfsson átti sæti í skólanefnd Verzlunarskóla tslands á árunum 1922—1931, og var gjaldkeri skólans þann tíma. Arið 1928 tekk hann samþykkta tillögu um bygg- ingu nýs skólahúss, en það þótti þá í of mikið ráð- izt, og lauk svo að fest voru kaup á skólahúsinu við Grundarstíg. Jón Brynjólfsson var einn af stofnend- um Verzlunarráðs íslands og sat í stjórn ])ess í 17 ár. Magnús J. Brynjólfsson lauk inntökuprófi í Menntaskólann í Reykjavík 1912, en að loknu prófi úr 4. bekk skólans hætti hann námi, og hélt til Kanada. Var hann þar í citt ár, en fór þá til Banda- ríkjanna, og var var næstu átta árin. Ilann lauk prófi með 1. einkunn frá Merchant. & Bankers Business College í New York eftir tveggja missera nám, og vann síðan við ýmis störf, þó aðallega skrifstofustörf. Magnús kom heim til íslands 1924 og starfaði þá við verzlun föður síns, Leðurverzlun Jóns Bryn- jólfssonar, næstu 2ár. Verzlunin var stofnsett af Jóni Brynjólfssyni árið 1903, og var fyrsta sér- verzlun landsins, sem verzlaði með efnisvörur fyrir skósmíði, reiðtygi og aktygi. Magnús keypti síðan verzlunina i ársbyrjun 1927 og hefur rekið hana síðan. Af öðrum störfum Magnúsar J. Brynjólfssonar á sviði kaupsýslumála hérlendis má nefna að 1952 stofnsetti hann ásamt Tryggva Jónssyni, niður- suðufræðingi, Niðursuðuverksmiðjuna Ora — Kjöt & Rengi hf., og hefur verið stjórnarformaður þess fyrirtækis síðan. Ilann var formaður innkaupa- nefndar Sólaleðurs öll styrjaldarárin. Árið 1953 var Magnús kjörinn í stjórn Verzlunarráðs íslands. For- maður skólanefndar Verzlunarskóla Islands hefur hann verið frá 1953. Hann var hvatamaður að stofnun Verzlunarsparisjóðsins og Lífeyrissjóðs verzlunarmanna og formaður hans fyrstu þrjú árin. Magnús hefur verið fulltrúi Verzlunarráðsins í stjórn Iðnaðarmálastofnunar íslands frá 1954 og í banka- ráði Verzlunarbankans frá 19(51. Fyrir störf sín að verzlunarmálum hefur hann verið sæmdur heiðurs- merki Verzlunarmannafélags Reykjavíkur úr gulli. Hann er heiðursfélagi í Oddfellow-reglunni, og nú- verandi yfirmaður hennar á fslandi. Kvenökumanni einum tókst að koma beygluðum bíl sínum að dyrum verkstæðisins. — Halló hrópaði hún til eins viðgerðarmann- anna. — Getið þið lagað bílinn fyrir mig? Viðgerðamaðurinn horfði lcngi á flakið. Síðan sagði hann: — Því miður, frú, við þvoum bíla hér en við strauum ekki. ★ Flugvöllurinn í Kastrup fékk nýverið bréf frá manni, sem átti hús við enda einnar flugbrautar- innar. Bréfið var svohljóðandi: — Viljið þið gjöra svo vel að nota ekki flugbraut nr. 3 síðdegis á fimmtudaginn. Þá er væntanlegur kaupandi að skoða húsið. 18 FRJÁLS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.