Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1969, Síða 7

Frjáls verslun - 01.09.1969, Síða 7
FRJÁLS VERZLUN ÞJÓÐMÁL „TEL PROFKOSNINGAR ÆSKILEGAR VIÐ SKIPAN FRAMBODSLISTA" t7. „Myndi fagna því ef unnt reyndist a3 fá fœra fjármálamenn til þess að gaumgœfa rekstur borgarfyrirtœkja." — Viðtal við Geir Hallgrímsson um kosningarnar á vori komanda og ýmis borgarmálefni. F. V.: Borgarstjórnarkosningar fara fram á vori komanda. Hvert er álit yðar á vígstöðu Sjálfstæð- ismanna, með það í huga, að flokkurinn komst í nokkur þúsund atkvæða minnihluta í borginni við síðustu Alþingiskosningar? G. H.: Ég tel, að Sjálfstæðisflokkurinn standi bet- ur að vígi á þjóðmálasviðinu nú en hann gerði við síðustu Alþingiskosningar. Þá er eðli málsins sam- kvæmt ekki kosið til borgarstjórnar eftir jafn ströngum flokkspólitískum línum og til Alþingis. Raunar sýnist sá hluti kjósenda fara vaxandi, sem ekki er flokksbundinn eða getur vel hugsað sér að kjósa lista annars flokks en venjulega, ef verk, stefna eða skipan lista skírskota til hans. Með tií- vísan til þessa geri ég mér vonir um, að við stönd- um vel að vígi í næstu borgarstjórnarkosningum, en ég geri mér þess þó fulla grein og vil leggja á það áherzlu, að úrslit kosninganna eru mjög tvísýn. F. V.: Teljið þér, að Sjálfstæðisflokkurinn ætti að beita sér fyrir borgarstjórnarsamstarfi við ein- hvern hinna flokkanna, t. d. Alþýðuflokkinn, ef svo færi, að hann missti meirihlutann? G. H.: Ég vil á þessu stigi ekki hugsa um ann- að en að Sjálfstæðisflokkurinn haldi meirihluta sínum í Borgarstjórn Reykjavíkur. Ef svo illa fer, að þessi meirihluti glatist, þá hlýtur það að vera dómur kjósenda, að stefna Sjálfstæðisflokksins hafi ekki verið rétt eða ekki vel unnið að framkvæmd hennar. Virðist því eðlilegast, að stefnumörkun eftir kosningar breytist og aðrir taki við stjórn, að fengnum slikum úrslitum. Hins vegar hlýtur Sjálfstæðisflokkui’inn ávallt á hverjum tíma að taka fullan þátt í stjórnmálum, hvort sem hann er í meirihluta eða minnihluta, og byggja þá af- stöðu sína til einstakra flokka á því, hvaða stefnu og málum er hægt að koma fram. Eftir því fer, hvort hann tekur þátt í stjórn eða verður í stjórn- arandstöðu. F. V.: Teljið þér líklegt, að miklar breytingar verði á efstu sætum borgarstjórnarlista Sjálfstæð- ismanna? G. H.: Engar umræður hafa orðið um væntan- lega skipun framboðslista Sjálfstæðismanna í boi’garstjórnai'kosningum, og því verður þessat’i spurningu ekki svarað á þessu stigi málsins, en miklar umræður hafa þó oi’ðið um að hafa próf- kosningar um val manna á framboðslistann, og teldi ég það æskilegt, ef unnt væri að haga slik- um prófkosningum þannig, að veruleg þátttaka yrði í þeim, þannig að á þeim væri mark takandi. F. V.: Þér hafið verið nefndur sem líklegt ráð- herraefni í næstu ríkisstjórn, er flokkur yðar ætti aðild að, og jafnvel sem mögulegur arftaki að flokksformennskunni. Er útlit fyrir, að þér gegn- ið borgarstjórastöðunni næsta kjörtímabil? G. H.: Ef ég er valinn áfram til þess að vera borgarstjóraefni Sjálfstæðismanna í næstu borgar- stjórnarkosningum, sem ég óneitanlega geri mér vonir um, og að því tilskyldu að Sjálfstæðisflokk- urinn haldi meirihluta sínum í borgarstjórn, þá hef ég ekki annað í huga en að gera mitt bezta sem borgarstjóri á næsta kjörtímabili. F. V.: Hverjar verða helztu stórframkvæmdir á vegum borgarinnar í ár? G. H.: Á vegum borgai'sjóðs er unnið að fjár- festingu fyrir rúml. 400 millj. kr. samtals. Hér er um að ræða verkefni, sem ætlazt er til að greidd séu með fé, er borgarai’nir inna af höndum, aðal- lega með útsvari, fasteigna- og aðstöðugjöldum. En auk þess er unnið á vegum fyrirtækja borgarinnar, s. s. Hitaveitu, Rafmagnsveitu, Hafnai’innar, Stræt- isvagna, Vatnsveitu o. fl. fyrirtækja fyrir rúmL 300 millj. kr. Nemur þannig framkvæmdafé borg- arinnar meiru en 700 millj. kr. á árinu. Af fyrr-

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.