Frjáls verslun - 01.09.1969, Qupperneq 10
!□
FRJALS VERZLUN
byggingu 80 af þeim 180 íbúðum, sem Fram-
kvæmdanefnd byggingaráætlunar hefur boðið út.
F. V.: Hvernig standa ráðhúsmál höfuðstaðarinr.
og skipulag gamla miðbæjarins? Hyggst borgin
gera gangskör að því að kaupa þar upp lóðir, þann-
ig að endurbygging geti hafizt?
G. H.: Teikningar af ráðhúsi við norðurenda
Tjarnarinnar eru fullbúnar og samþykktar af
borgarstjórn. Hins vegar hefur full samstaða allra
flokka í borgarstjórn verið um það að hefja ekki
framkvæmdir að sinni. Tíminn hefur verið not-
aður til að kanna ýmsa möguleika, m. a. til að
ná samstöðu sem flestra borgarbúa um málið.
Kannað hefur verið, hvort rétt væri að byggja ráð-
hús og leikhús undir sama þaki við norðurenda
Tjarnarinnar, þar sem starfsstöðvar Leikfélags
Reykjavíkur hafa frá upphafi verið. Með þessum
hætti væri unnt að nýta sameiginlegt húsrými fyr-
■ir' bæði ráðhús og leikhús, t. d. anddyri, veitinga-
sal og salárkynni, fatageymslur o. fl. Auk þessa
mundi slík sameining, ef vel tækist til, geta skap-
að lífrænni tengsl borgarbúa við ráðhús þeirra
en ella. Hins vegar er hætta á, að húsið yrði of
stórt. Athugun þessa máls er ekki lokið, og ráð-
húsnefnd og borgarstjórn hafa ekki um það fjallað
endanlega. Menn eru reyndar þeirrar skoðunar, að
hægt skuli fara í þessum efnum og jafnvel komi til
greina að leggja ráðhúsmálið á hilluna um nokk-
urn tíma.
Gengið var frá skipulagi gamla bæjarins, þegar
aðalskipulag Reykjavíkur var samþykkt í borgar-
stjórn 1965. Er greint frá því skipulagi og sam-
þykktum í mikilli bók, sem kom út 1966. Þess
vegna getur endurbygging miðbæjarins hafizt.
Lóðir í gamla bænum eru eins og kunnugt er
flestar í einkaeign, og borgin hefur fremur hugsað
sér, að til kæmi sameining lóða og samvinna lóð-
areigenda, fremur en mikil lóðakaup borgarinnar,
en þó koma þau til greina, einkum ef til vill í
Grjótaþorpinu.
F. V.: Mikillar andstöðu virðist gæta meðal
borgarbúa gegn því, að umhverfi Tjarnarinnar
verði skert frá því, sem nú er. Ætlar borgarstjórn-
in að taka tillit til eindreginna mótmæla fjöi-
margra borgara gegn því, að Thor Jensen-húsið
við Fríkirkjuveg verði fjarlægt og Seðlabankan-
um heimiluð þar bygging? Hver er persónuleg
skoðun yðar á varðveizlu hússins og tjarnarsvæð-
isins?
G. H.: Seðlabankinn festi fyrir nokkrum árum
kaup á lóðinni Frikirkjuvegur 13, sem er horn-
lóðin við Fríkirkjuveg og Skothúsveg. Borgin
hafði áður nýtt þá lóð samkvæmt samkomulagi við
fyrri eiganda sem skrúðgarð. Ljóst var, að lóðin
var ekki nægilega stór fyrir Seðlabankabyggingu,
og alls ekki ef slíkur skrúðgarður átti að vera
þarna áfram. Var þá gerður samningur milii
Reykjavíkurborgar og Seðlabankans um maka-
skipti á lóðinni Fríkirkjuvegur 11 og Lækjargötu
4 ásamt fyrirgreiðslu Seðlabankans Reykjavíkur-
borg til handa til að koma upp nýrri æskulýðsmið-
stöð á Tjarnarbæjarlóðinni í stað þeirrar æsku-
lýðsstarísemi, sem fram hefur farið að Fríkirkju-
vegi 11. Áskilið var, að verðiaunasamkeppni arki-
tekta færi fram um teikningar af Seðlabankahús-
inu, skrúðgarðurinn héldist og sérstakt tillit yrði
tekið til umhverfis Tjarnarinnar. Það veltur á end-
anlegu mati byggingar- og skipulagsyfirvalda,
hvernig bygging verður leyfð á þessum slóðum. Áð-
ur en þannig var gert ráð fyrir að rifa Fríkii'kju-
Samvinnubankinn - ávaxtar sparifé yöar
Otibú úti á landi:
Akranesl
Grundarfirði
PatreksfirBi
SauBárkróki
Húsavfk
Kópaskerl
StöBvarfirði
Keflavik
___________ HafnarflrBi
SAMVINN UBANKINN
Bankastrætl 7, Reykjavfk. slmi 20 700