Frjáls verslun - 01.09.1969, Blaðsíða 34
34
FRJALS VERZLUN
frá
ritstjóm
HORFT FRAM
Ríkisstjórn dr. Bjarna Benediktssonar
sýndi mikla framsýni í stóriðjumálunum
og setti hagsmuni þjóðarinnar ofar stund-
aróvinsœldum. Nú hefur sannazt, hversu
heilladrjúg þessi ákvörðun ríkisstjórnar-
innar var, enda vilja stjórnarandstœðing-
ar helzt gleyma fyrri afstöðu sinni. Rétt-
mœti ákvarðana hlýtur fyrr eða síðar að
koma í ljós, enda þótt þœr kunni að valda
moldviðri í svipinn. Stjórnmálamönnum
ber skylda til þess að fara eftir sannfœr-
ingu sinni og gera það, sem þeir vita
réttast og sannast og er þjóðinni fyrir
beztu.
Þótt rétt sé að leita nýrra leiða, byggja
upp nýjar atvinnugreinar og fyrirtœki,
má ekki gleyma þeim atvinnugreinum og
fyrirtœkjum, sem fyrir eru. Það hefur rík-
isstjórnin því miður gert. Hún hefur fórn-
að verzlunarstéttinni til þess að friðþœgja
óábyrgum öflum innan verkalýðshreyf-
ingarinnar og öðrum andstœðingum
verzlunarstéttarinnar. — Verzlunarstéttin
hefur búið við óréttmœt skilyrði, enda
þótt opinberir aðilar hafi viðurkennt, að
núverandi álagning standi engan veg-
inn undir eðlilegum dreifingarkostnaði og
að þessi álagning leiði til óhagkvœmari
innkaupa og þar með hœrra vöruverðs.
Þótt ríkisstjórninni sé þannig fullljóst,
hvernig málefni verzlunarinnar eru og
að vegið er að hagsmunum neytenda,
hefur hún enn ekki þorað að ráða bót
á, af ótta við pólitíska andstœðinga. Þessi
ótti stingur mikið í stúf við það pólitíska
hugrekki, er stjórnin sýndi í stóriðjumál-
unum. Mikill skaði hefur þegar af hlotizt,
og verður hann óbœtanlegur, ef ekki
verður brugðið skjótt við.
FRJÁLS VERZLUN hefur áður bent á, að
nýir tímar eru framundan á íslandi. ís-
lendingar hljóta að vinna betur úr hrá-
efnum sínum, leita markaða og taka þátt
í erlendu viðskiptasamstarfi og keppa
harðar en áður við reyndari viðskipta-
þjóðir. Því þurfa íslenzk verzlunar- og
iðnaðarfyrirtceki að vera sterk og búa við
eðlileg vaxtarskilyrði. Þannig verður að
vera að verzlunarfyrirtœkjunum búið, að
þau megni að dreifa vörum á sem hag-
kvœmastan hátt innanlands og hafi bol-
magn til þess að vinna íslenzkum fram-
leiðsluvörum sess erlendis. Því verður nú
þegar að söðla um. Hin neikvœða og
lamandi stefna, sem beitt hefur verið
gagnvart verzluninni verður að þoka fyr-
ir raunhœfum skilningi á eðli og hlutverki
verzlunarinnar. Velmegun þjóðarinnar í
framtíðinni er að verulegu leyti undir því
komin, að svo verði. Ríkisstjórnin verður
að setja þjóðarheill ofar friðþœgingu nið-
urrifsafla og lýðskrumara, — breyta eftir
beztu sannfœringu.
Verzlunarstéttin er búin að sœtta sig
nógu lengi við að vera hornreka og sœta
ákúrum fyrir skort á þjóðhollustu. Mœlir-
inn er fullur. Verði ekki afgreitt frá nœsta
Alþingi stjórnarfrumvarp, sem leiðréttir
málefni verzlunarinnar, getur ríkisstjórn-
in ekki búizt við stuðningi verzlunarinn-
ar í komandi sveitarstjórnar- og þing-
kosningum.
Ætlar ríkisstjórnin að fórna þjóðarhags-
munum og áframhaldandi völdum fyrir
stundar„frið" við óvini hins frjálsa fram-
taks?