Frjáls verslun - 01.12.1969, Síða 29
F^RJALS VERZLUN
29
ilr verið gert síðustu misseri til
sð koma upp vistheimili fyrir
vangefna, sem nú er nær fullbú-
ið og tekur til starfa um þessar
mundir. Það heitir Sólborg, og
fyrir uppbyggingu og rekstri
stendur Styrktarfélag vangefinna
á Akureyri.
Þá er veiúð að byggja við bæði
lliheimili Akureyrar og Elliheim-
ið í Skjaldarvík, en bærinn á
þæði þessi heimili.
í sumar hófst gerð fyrsta á-
fanga nýrrar hafnar á Oddeyri,
sem mikill styrr stóð um. Þar
hófst einnig bygging stórrar
vöruskemmu Eimskipafélags Is-
lands hf. Og á Oddeyrinni er nú
langt komið byggingu Tollvöru-
geymslunnar hf. fyrri áfanga.
Stærsta atvinnuuppbyggingin á
þessu ári sigldi í kjölfar Iðunnar-
brunans mikla skömmu eftir ára-
mót. Verksmiðjur SÍS hafa unn-
ið að endurbyggingu og stækkun
þeirra húsa, sem skemmdust, og
byggingu stórhýsis yfir skinna-
verksmiðju. Þetta varð og til þess,
að Þórshamar hf., eitt dótturfyrir-
tæki KEA, hóf byggingu nýs húss
yfir bílaverkstæði.
Loks ber að nefna, að Vegagerð
ríkisins hóf byggingu nýs verk-
sjtæðis- og skrifstofuhúss.
3
ÍHEIRA STENDUR TIL
í Mikil þörf er fyrir áframhald-
andi skólabyggingar vegna sér-
$kóla í bænum, og þó enn brýnni
!yrir skóla skyldunáms og gagn-
ræðastigs. Á þeim vettvangi hef-
ir verið slegið slöku við um
keið og því rísa verkefnin nú
ær því yfir höfuð. Jafnframt
antar aðstöðu til æskulýðsstarf-
semi og halda verður áfram upp-
þyggingu íþróttamannvirkja.
| Þá er orðið óumflýjanlegt, að
ráðast í mikla stækkun Fjórð-
dngssj úkrahússins.
ÍNú hefur aftur lifnað yfir á-
uga Akureyringa á hitaveitu,
nda á bærinn vatnsréttindi í
iaugalandi á Þelamörk og eina
orholu með um 15 sek.l. af 90
stiga heitu vatni, en talið er mjög
laklegt, að með 4-5 holum í við-
þót fáist nóg heitt vatn í hitaveitu
éyrir alla Akureyri. Á næstu grös-
lim við Laugaland er og nóg kalt
vatn að fá, en nú er skortur á
köldu vatni og aðeins um tvær
leiðir að velja í öflun þess, annað
hvort með vinnslu úr Glerá eða
með leiðslu utan frá Þelamörk.
Gætu því farið saman fram-
kvæmdir við hitaveitu og kalda-
vatnsveitu.
Á þessu ári hafa ferðamál ver-
ið mjög í brennidepli hér á landi
og þá einkum á Akureyri. Ferða-
málafélag Akureyrar hefur átt
þátt í því með flugfélögunum,
Ferðamálaráði og Seðlabankanum,
að ýta við þessum málum með til-
liti til nútíðar og er frekari frétta
að vænta af árangrinum og fram-
haldinu innan tíðar. Má þó slá
því föstu, að Akureyri á alger-
lega sérstæða möguleika hér á
landi til að verða mikill ferða-
mannabær, þó ekki fyrirhafnar-
laust, eins og nærri má geta.
TILVILJANIR
í mörgum höfuðatriðum hefur
hin mikla uppbygging á þessu ári
orðið fyrir tilviljanir, þótt ótrú-
legt sé. En þannig varð Iðunnar-
bruninn orsök stóruppbyggingar
hjá þrem fyrirtækjum, flýtti alla
vega mjög fyrir þeirri uppbygg-
ingu. Og þannig æxlaðist það
einnig, að lagt var út í gerð
nýrrar hafnar, byggingu stórrar
og myndarlegrar framtíðar vöru-
skemmu fyrir Eimskip og bygg-
ingu sérstakrar tollvörugeymslu.
Allt þetta hefði sjálfsagt komið á
sínum tíma, en um síðustu ára-
mót grunaði engan að þetta yrði
nú. eins og raun ber vitni. Þar
kom skyndilega og óundirbúið
sitthvað til.
ATVINNULÍFIÐ
Allt þetta ár hefur verið skráð
talsvert atvinnuleysi í bænum,
alltaf á annað hundrað manns.
Það sýndi sig í sumar, að þessu
atvinnuleysi verður ekki útrýmt
með almennum aðgerðum. At-
vinnuleysingjarnir eru upp til
hópa húsmæður, sem ekki eru að-
alfyrirvinnur heimila sinna, ör-
yrkjar og gamalmenni, sem ekki
þola nema einstaka vinnu, svo
og verkamenn, sem hafa stopula
vinnu, t. d. við höfnina. Engu að
síður er atvinnulífið alvörumál,
sem sporna verður við af öllum
mætti.
Veruleg atvinnuaukning hefur
orðið í Verksmiðjum SÍS seinni
hluta ársins, vegna stóraukinna
verkefna, og enn verður mikil
aukning þar í vor, þegar nýja
skinnaverksmiðjan tekur til
starfa. Þá hefur verið stöðug
vinna í hraðfrystihúsi Útgerðar-
félags Akureyringa hf., en vinnu-
salur þess var stækkaður um
50% á árinu og skapaðist þar
vinnuaðstaða fyrir 50 manns til
viðbótar.
Stærsta einstaka vandamálið í
atvinnulífinu hefur verið hráefn-
isskortur Niðursuðuverksmiðju K.
Jónssonar & Co. hf., sem ekkert
hefur starfað nú um nokkurt
skeið. Eru málefni verksmiðjunn-
ar nú til athugunar, bæði hráefn-
isöflun og svo ný verkefni. Þessi
verksmiðja ein hefur vinnuað-
stöðu fyrir allt að 120 manns.
Þá hefur Slippstöðin hf. ekki
unnið með nærri því fullum af-
köstum, þótt hún hafi haft tvö
1000 tonna skip í byggingu og
miklar viðgerðir yfir sumarið í
hinni nýju, stóru dráttarbraut.
Með aukinni nýsmíði væri unnt
að stórfjölga í vinnu hjá þessu
fyrirtæki, þ. e. a. s. ef þá fást
járniðnaðarmenn. en Slippstöðina
hf. hefur vantað járniðnaðarmenn
allt þetta ár, þetta 30-50 menn.
Úr því hefur ekki rætzt ennþá, og
er því vandséð á þessu stigi máls-
ins, hvernig fyrirtækið getur ann-
að mun meiri verkefnum, þótt
vinnuaðstaða öll sé fyrir hendi.
Hin nýjá dráttarbraut Akureyr-
arhafnar, sem Slippstöðin hf. rek-
ur, hefur nú tekið allt að 2500
tonna skip upp og togara á hlið-
arfærslu. í sumar var hvert skipið
á fætur öðru í brautinni, þ. á. m.
öll eða flest skip Skipadeildar
SÍS. Með tiltölulega lítilli viðbót
gæti brautin tekið upp öll islenzk
skip, nema Gullfoss. og sýnist því
naumast tímabært að byggja aðra
stóra dráttarbraut í Reykjavík,
eins og nú er rætt um, a. m. k.
ekki fyrr en fyrir liggur, að
grundvöllur sé fyrir rekstri
tveggja slíkra brauta í landinu í
senn.
Framh. á bls. 20.