Frjáls verslun - 01.12.1971, Blaðsíða 15
Otiönd
ISRAEL
Byrjað að selja hergögn úr
landi
lliiklar erlendar skuldir krefjast aukins útflutnings
Efnahagsvandræði þeirra
þriggja milljóna manna, sem
byggja ísrael, eru í dag geig-
vænleg, svo ekki sé sterkara
tekið til orða, en þrátt fyrir
það, er ríkisstjórnin og sérfræð-
ingar hennar í efnahagsmálum,
þess fullviss, að ástandið í
framtíðinni geti aldrei orðið
eins slæmt og það var áður
fyrr.
Daniel Rekanati, sem er eig-
andi stærsta einkabankans í
landinu, minntist þess nýlega,
er bandarískur bankamaður
heimsótti hann árið 1952 og
spurði hann þá, hvort ísrael
yrði enn við lýði eftir þrjú ár.
Enginn spyr slíkra spurninga i
dag.
Líf Yigaels Brods er dæmi-
gert fyrir _ líf hins almenna
borgara í ísrael. Hann er 25
ára að aldri, og starfar nú sem
aðstoðarmaður á vélaverkstæði,
og hefur sem svarar 10 þúsund
ísl. kr. í laun á mánuði. Hann
hefur nýlega lokið þriggja ára
herþjónustuskyldu sinni, er
kvæntur með eitt ungabarn.
Fjölskyldan býr í eins herberg-
is íbúð. Vinnuveitandi Brods
sagði honum, að ef hann væri
duglegur, gæti hann tvöfaldað
kaup sitt á næstu sjö árum.
Brods er skuldum vafinn. Líf-
ið í ísrael er erfitt, og Brods
sagði nýlega við útlending, sem
hann hitti, að til þess að kom-
ast af í ísrael þyrftu menn að
vinna mikið og leggja hart að
sér. Hann sagðist ekki vera
hræddur við að vinna, og sagði,
að málsháttur í ísrael segði:
„Ef einhver á mikla peninga,
eru það ekki velfengnir pen-
ingar“.
ísraelinn Brods og ríkið
ísrael eiga það sameiginlegt, að
þau verða að leggja hart að
sér til að komast af. Ekki það,
að um sé að ræða líf og dauða,
heldur að þroskast efnahags-
lega. ísrael byggir afkomu sína
að miklu leyti á aðstoð frá
Bandaríkjunum og Gyðingum,
alls staðar í heiminum.
Golda Meir
ERLENDAR SKULDIR
Helzta vandamál ísraels er
erlendar skuldir, sem nema um
þremur milljörðum dollara, eða
um 1000 dollurum á hvert
mannsbarn. Arlega þarf 500
milljónir dollara, eða 10% af
þjóðarframleiðslunni, til að
greiða vexti og afborganir af
skuldinni. Útgjöld til varnar-
mála eru gífurleg, eða um 27%
af þjóðarframleiðslunni (1,35
milljarðir dollara). Til saman-
burðar má geta þess, að Banda-
ríkjamenn eyða 10% af þjóðar-
framleiðslu sinni til varnar-
mála. Þessi miklu útgjöld til
varnarmála draga úr getu ísra-
ela til að byggja betri heimili,
skóla og sjúkrahús, sem mikill
skortur er á í landinu. Náttúru-
auðævi ísraels eru nær engin,
og að því er Haim Gvati land-
búnaðarráðherra segir, erhætta
á, að landið verði vatnslaust
á næstu 5-10 árum.
SKORTUR Á VINNUAFLI
Hagvöxtur í ísrael er svip-
aður og í Japan, en í ágúst
s.l. felldu ísraelar gengið og
eiga nú við sívaxandi verð-
bólguerfiðleika að etja. ísraelar
fórna öllu fyrir áframhaldandi
hagvöxt og útþenslu, og af
þeim orsökum er gífurlegur
skortur á vinnuafli í landinu,
og þeir þurfa í síauknum mæli
að treysta á arabíska verka-
menn, sem þeir sækja á hverj-
um degi til herteknu svæðanna.
FV 12 1971
13