Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1971, Blaðsíða 29

Frjáls verslun - 01.12.1971, Blaðsíða 29
Mesta salan í ullar- og skinnavöru Rammagerðin hf. færir út kvíarnar Rammagerðin h.f. er að færa út kvíarnar. Hlutafélagið hefur nú keypt Helga Magnússonar húsið við hliðina á verzluninni í Hafnarstræti, og verður hún væntanlega flutt þangað á næsta ári. Rammagerðin rekur verzlanir á fjórum stöðum í borginni með samtals um 800 fermetra gólffleti. Á síðasta ári aflaði fyrirtæk- ið um 30 milljónir króna í gjaldeyri, þar af um helmingur í smásölunni. Þessi tala sýnir þó einungis það, sem kom inn beint, en margir erlendir ferða- menn eru búnir að skipta gjald- eyrinum. þegar þeir verzla, og borga í íslenzkum krónum. Við- skiptin dafna með vaxandi ferðamannastraumi, og sífellt fleiri viðskiptavinir, íslenzkir og erlendir, færa sér í nyt möguleikann á að láta verzlun- ina senda vörurnar til annarra landa. Rammagerðin tekur 100 % ábyrgð á öllum vörum, sem hún sendir, jafnvel hinum brot- hættustu. Viðskiptamenn geta fengið kvittun, og allt tjón. er verður í sendingu er bætt. Frjáls verzlun ræddi fyrir nokkrum dögum við Jóhannes Bjarnason, sem stofnaði Rammagerðina og Hauk Gunn- arsson, sem kom inn í fyrirtæk- ið fyrir 13 árum, og fékk hjá þeim framangreindar upplýs- ingar. „Við byggjum mest á túr- istunum,“ sögðu þeir, „og send- ingunum fyrir jólin. Viðskiptin eru þó vaxandi allt árið, en engu síður verðum við að safna varasjóði til að standa undir 3-4 mánuðum um veturinn. Þann tíma erum við einnig að búa okkur undir sumarið, gera innkaup og safna birgðum, svo að við getum fullnægt eftir- spurninni næsta sumar. Af sum- um vörutegundum kaupum við sem næst allt, sem við getum fengið. Fjárfestingin er mikil frá áramótum og allt fram í maí. Starfsfólk er um 40 um annatímann og niður í 25, þeg- ar minnst er.“ „Mörg einkafyrirtæki hér- lendis byggjast nú orðið á fram- leiðslu fyrir ferðafólkið. Að þessu starfa margar verksmiðj- ur með mikinn fjölda starfs- fólks, og ekki sízt fjölmörg heimili, þar sem konurnar starfa við gerð túristavara.“ „Salan er mest í ullar- og skinnavöru. Að undanförnu hafa Mokkakápurnar notið mik- illa vinsælda, bæði fyrir dömur og herra. Útlendingum þykja þær hentugar, léttar og á hag- stæðu verði. Erlendis eru sam- bærilegar skinnkápur yfirleitt þykkari og auk þess dýrari. Það hefur orðið mikil breyting til batnaðar í skinnaiðnaði á ís- landi, og hann fer mjög vax- andi.“ ,,í smávörunum hafa orðið geysimiklar framfarir í silfur- smíði. íslenzkir silfurmunir hafa lengi verið góðir, en síð- ustu 2-3 ár hafa orðið tímamót. Útlendingar sækjast eftir hin- um sérstæðu og skemmtilegu handunnu íslenzku silfurmun- um.“ „Glit-keramikið nýtur mik- illa og vaxandi vinsælda. Hraunkeramík þekkist hvergi í heiminum nema hér.“ „Það má segja, að við séum viðbúnir allan sólarhringinn um sumartímann til að taka á móti hópum ferðafólks, sem vill verzla en hefur lítinn tíma. Þetta hafa verið miklar annir, en mikil bót hefur orðið með verzluninni okkar í Hótel Loft- leiðir. sem er opin frá 8 að morgni til 10 að kvöldi hvern dag.“ „Hér vantar helzt, að unnt verði að dreifa ferðamanna- strauminum jafnar á árið. Þar bindum við mestar vonir við fleiri ráðstefnur um vetrartím- ann og bættri aðstöðu til skíða- iðkana. Fullkomin skíðahótel þyrftu að koma í nágrenni Reykjavíkur. Annað, sem gæti fært meiri gjaldeyri, væri, ef fólk úr skemmtiferðaskipunum væri gefið meira tækifæri til að skoða sig um í höfuðborginni og verzla þar. Reykjavík er um marga hluti sérstæð borg, hrein- FV 12 1971 27
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.