Frjáls verslun - 01.12.1971, Blaðsíða 23
Fyrirtæki vörur
þjónusta
„Reksturinn verði eins fjöl-
breyttur cg ólíkur og svart
og hvítt“
Rætt við Sverri Þóroddsson stórkaupmann um innflutningsrckstur og
tilraunir með íslenzka vélsleða
Sverrir Þóroddsson er löngu
orðinn þjóðkunnur maður, varð
það raunverulega aðeins 14 ára
að aldri, er hann varð annar í
íslandsmótinu í svifflugi, en þá
íþrótt hafði hann tekið upp
tveimur árum áður. Hann lét
sér þó ekki nægja 2. sætið lengi
og varð íslandsmeistari á næsta
móti. Eftir svifflugið snéri hann
sér að kappakstri og náði oft
ágætum árangri í þeirri íþrótt,
lenti í alls konar ævintýrum á
kappaksturbrautum og mátti
oft þakka fyrir að sleppa lif-
andi. En hann slapp og ein-
hvern tíma gafst honum ráð-
rúm til að stoppa um stund á
íslandi og stofna fyrirtækið
Sverrir Þóroddsson & Co.
Sverrir útskrifaðist úr Verzlun-
arskóla íslands árið 1963 og er
nú 27 ára að aldri og rekur tals-
vert umfangsmikla innflutn-
ingsverzlun, auk þess sem hann
á og rekur með fyrirtækinu 6
sæta flugvél af gerðinni Cessna
205.
FV hitti Sverri að máli um
daginn og spurði hann hvort
hann væri hættur íþrótta-
mennskunni og farinn að helga
fyrirtækinu alla krafta sína.
SÞ — Ég stend í svo mörgu,
sem ég þarf að ljúka, að ég
hef hreinlega ekki haft tíma
til að hugsa um annað en þann
rekstur, sem ég er með segir
Sverrir, en bætir við að það
sé aldrei að vita hvað hann
geri ef tækifæri bjóðist.
Sverrir Þóroddsson
FV — Hver eru öll þessi við-
fangsefni?
SÞ — Ég er stöðugt að vinna
að aukningu rekstursins, en svo
er ég einnig að ljúka við srmði
á reynsluvélsleðum hér á ís-
landi.
FV — Er grundvöllur fyrir
fjöldaframleiðslu á vélsleðum
hér á landi?
SÞ — Ég tel engan vafa á
því ef sleðinn er vandaður, fall-
egur í útliti og hægt að fá nægi-
legt fjármagn.
Flest erlend fyrirtæki, sem
framleiða slíka sleða kaupa
flesta hlutina frá verksmiðjum,
sem sérhæfa sig í framleiðslu
hinna ýmsu hluta og þess vegna
ætti ekki að vera neitt því til
fyrirstöðu að framleiða sleða
hér á landi.
FV — Er þá ekkert íslenzkt í
bessum sleðum?
SÞ — Jú, sleðinn yrði ís-
lenzkur að öðru leyti en því að
vélin. beltið og kúplingin yrðu
keypt erlendis frá.
FV — Er þetta ekki kostnað-
arsöm tilraun og hvernig hefur
þú fjármagnað hana?
SÞ — Lægsta kostnaðaráætl-
un, með því að meta mína vinnu
ekki neitt hljóðaði upp á 500
þúsund kr. fyrir 4 reynslusleða.
Þar af fékk ég 250 þúsund kr.
lán frá Iðnþróunarsjóði, en hitt
hef ég orðið að fjármagna sjálf-
ur, sem hefur verið mjög erfitt,
FV 12 1971
21