Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1971, Blaðsíða 27

Frjáls verslun - 01.12.1971, Blaðsíða 27
Frá mekaniskum yfir til elektróniskra Sagt frá starfsemi Skrifstofuvéla hf. „Við stöndum tvímælalaust í dyrum þróunar. sem á eftir að verða mun hraðari, frá mekan- ískum vélum yfir til elektrón- ískra. Þessi þróun kom fyrst fram í reiknivélunum, og á sýn- ingunni í Laugardalshöll í sum- ar kynntum við fyrstu ritvélina, sem er með innbyggðri tölvu. Sú vél tvöfaldar eða þrefaldar afköst í samanburði við raf- magnsritvél, svo ekki sé minnzt á „venjulegu" ritvélarnar.“ Þetta sagði Sigurður Gunn- arsson, framkvæmdastjóri Skrifstofuvéla h.f., þegar Frjáls verzlun ræddi við hann og Ottó A. Michelsen. aðaleiganda og stjórnarformann hlutafélagsins. Velta Skrifstofuvéla jókst um 50% árið 1970 frá árinu áður, og í ár bendir allt til þess, að aukningin verði um 40% og veltan verði 70 milljónir króna eða meira. Vegna þessarar aukningar er húsnæðisskortur farinn að segja til sín og setja skorður fyrir útfærsluna. Fyrirtækið Leitar um þessar mundir fyrir sér um kaup á stærra húsnæði eða byggingarlóð. Núverandi húsnæði eru tæpir 300 fermetr- ar, og stefnt er að því að fá að minnsta kosti 500 fermetra húsnæði innan skamms, þar sem til staðar væru möguleikar á stækkun upp í 1000 fermetra í framtíðinni. „Við erum komnir yfir milli- stærðina og yfir í þá stærð, þar sem unnt er að njóta góðs af hagkvæmni stærri reksturs í skipulagningu og hagræðingu,“ segja þeir. „Á árum kreppunn- ar 1967 og 1968, þegar tvær gengisfellingar urðu, áttu mörg fyrirtæki í erfiðleikum, og þetta hamlaði okkur á margan hátt. Þá tókst okkur að grípa til að- gerða, sem ollu því, að í stað þess að velta minnkaði óx hún ár frá ári. Síðan kreppunni lauk, hefur aukningin orðið gíf- urleg.“ Ottó A. Michelsen vann brautryðjandastarf. þegar hann stofnaði Skrifstofuvélar hf., fyr- ir 25 árum. Ottó ryfjar upp, að fyrirtækið hafi fyrst komið með litlar samlagningarvélar á markaðinn hérlendis, sem hafi hæft vel hinum almenna borg- ara, sem hafi ekki haft getu til að kaupa þær stærri og dýrari. Enda urðu þessar vélar almenn- ingseign á skömmum tíma. Skrifstofuvélar h.f. urðu fyrst- ar til að bjóða á markaði hér- lendis elektrónískar reiknivél- ar. Þetta var fyrir um tveimur árum, og menn voru ekki alveg tilbúnir að átta sig á hinni nýju þróun, en í ár hefur sala þeirra vaxið mikið. Síðastliðin ár hefur fyrirtæk- ið meðal annars lagt áherzlu á að selja kennslutæki fyrir skóla, námskeið og stofnanir. Á því sviði hafa framfarir verið örar, og ný og endurbætt tæki komið á markaðinn. sem kenn- arar og skólastjórar hafa kunn- að að meta. Skrifstofuvélar hafa lagt kapp á að hafa á boðstólnum sem flest, sem til kennslunnar þarf. til viðbótar því, sem menn kalla ritföng, svo að viðskiptavinirnir geti gert öll sín innkaup á einum stað. „Okkar stefna í viðskiptum er að veita þá beztu þjónustu, sem völ er á,“ segir Sigurður. „Við lítum ekki svo á, að við séum búnir að afgreiða við- skiptavininn, þegar hann er búinn að fá sína vél. Þá fyrst teljum við okkur skuldbundna honum og vera það, eins lengi og við afgreiðum tæki til hans. Þetta hefur verið hornsteinn í rekstri fyrirtækisins, allt frá því að Ottó hóf rekstur þess árið 1946. Vaxandi annir á öll- um sviðum sýna, að viðskipta- vinirnir finna þetta og meta.“ Starfsfólk Skrifstofuvéla h.f. er nú 29 manns. Framkvæmda- stjórar eru Sigurður Gunnars- son og Jón Óttar Ólafsson. Ottó A. Michelsen er stjónarformað- ur og aðaleigandi. Sigurður Gunnarsson framkvcemdastjóri. FV 12 1971 25
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.