Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1971, Side 45

Frjáls verslun - 01.12.1971, Side 45
— Ekki hefur okkar reynsla sýnt annað. Prentunin er góð og okkur hefur tekizt að ná svo hagstæðum samningum við hérlendar prentsmiðjur, að ekki hefur þótt ástæða til að reyna neinar aðrar leiðir. Engu skal hins vegar spáð um, hvað verð- ur, þegar EFTA-tollarnir t.d. falla alveg niður. Við prentum aðeins nokkur þúsund eintök af hverju korti en stórfyrirtæki erlendis framleiða sams konar vöru í hundruðum þúsunda ein- taka. Samt vitum við dæmi þess, að þrátt fyrir hagstætt verð hafa erlend kort ekki náð fótfestu hér, af því að þau þóttu ljót. Á innlenda markaðinum skjóta alltaf nýir útgefendur upp kollinum fyrir hver jól en hverfa svo jafnhraðan aftur. Þetta hefur vissulega orðið til að auka gæði og úrval hjá okk- ur. sem stundum útgáfuna í stærstum mæli, og bæta sam- keppnisaðstöðu íslenzku kort- anna gagnvart þeim erlendu Teiknuð kort hafa átt vaxandi vinsældum að fagna og við höf- um getað byggt upp ákveðin markaðssvæði innanlands með sérstökum útgáfum eins og með teikningum af kirkjum, svo sem í Keflavík og Höfn í Hornafirði. Þess konar myndir höfða líka til íbúa viðkomandi byggðarlaga sem velja þær umfram aðrar á jólakortum. — Hafið þið gert tilraun til að flytja út íslenzk jólakort til sölu? — Nei, ekki ennþá. Við telj- um, að þau þurfi fyrst að sanna ágæti sitt betur á heimamarkaði síðan kemur vel til greina að íhuga möguleika á útflutningi. Á íslandi höfum við á að skipa mjög hæfu fólki til að ráða út- liti korta fyrir alþjóðlegan markað og framleiðslugæðin eru sízt lakari eins og ég nefndi áðan. — Hefur nokkuð dregið úr sölu jólakorta með auknum tækifærum fólks til að ná sam- an persónulega um jólin? — Þvert á móti. Kortin okkar eru vitaskuld send í ríkum mæli til vina erlendis vegna land- kynningargildis þeirra, en jóla- kortin setja líka skemmtilegan svip á híbýli manna um jólin enda er þeim víðast raðað fall- ega upp til prýði. Hins vegar vitum við aldrei fyrirfram, hve gera má ráð fyrir stórum mark- aði ár hvert. Ef slíkar upplýs- ingar lægju fyrir og líka um smekk fólks væri allt okkar starf miklu auðveldara og ólík- legt að við sætum of lengi uppi með vissar kortagerðir eins og við gerum núna. Ég vil líka skjóta því inn í, að sala nýárs- korta, sem alltaf hafa verið á boðstólum hér. er ekki okkar sterka hlið hjá Sólarfilmu, því að smávísir að henni hefur gjör- samlega mistekizt. — Þið gefið líka út póstkort og bækur. Hvað þykir falleg mynd á póstkorti? — Um það gildir engin regla. Nú eru í umferð hjá okkur 175 tegundir póstkorta og smekkur kaupendanna er afar breytileg- ur. Það tekur mörg ár að kom- ast að því, hvað sé falleg mynd að þeirra mati. Það er varla nokkur ferða- maður, sem ekki kaupir póst- kort, þó að ekki sé nema frí- merkjanna vegna, sem viðtak- andi erlendis kann að meta mest. Póstkortin eru líka ódýr- ustu minjagripirnir, sem fáan- legir eru, og það er greinilegt hvað salan er mikil á Keflavík- urflugvelli. þar sem farþegar í Atlantshafsflugi stanza í eina klukkustund á ævinni á ís- lenzkri grund. En smekkur þessa fólks er mjög einstak- lingsbundinn. Myndabækurnar okkar grípa menn líka með sér á hraðri ferð. Þær eru nú orðn- ar þrjár, — almenn bók um ís- land, önnur um Þingvelli og sú þriðja um eldfjöll. Nú höfum við í undirbúningi bók um Reykjavík. Það er mikill vandi að gefa út þess konar bók- menntir, því að hlutfall milli mynda og texta verður að vera mjög ákveðið til að skapa góða söluvöru. Þetta skapar síðan vanda í myndavali og texta- framsetningu. Rangt hlutfall á milli þessara liða hefur verið dauðadómur yfir bókum af þessu tagi. — Verður ekki talsverð rýrn- un á varningi eins og þeim, sem þið framleiðið? — Jú, mjög mikil. Segja má að starfsemi Sólarfilmu sé puð, stagl og basl, þó að ég ætli enga dul að draga á það, að við höf- um náð þokkalegum árangri. Tilraunastarfsemi er mikil og dýr og við verðum að veita geysimikla þjónustu. Það er við- tekin regla hjá Sólarfilmu að taka skaddaðan varning um- yrðalaust til baka, hvar sem skemmdirnar hafa orðið og hver sem þeim hefur valdið. Gallaðar vörur skapa mikla ó- ánægju viðskiptavinanna í verzlunum og kasta rýrð á fyr- irtækið. Þess vegna viljum við til vinna að fjarlægja vöruna og bera af því allt tjón og láta hana fljúga í sorptunnuna. SÉRHÆFÐIR MENN SÉRHÆFT VERKSTÆÐI VENTILL HF. annast hvers konar viðgerðir og viShald á TOYOTA bílum. SérhæfSir starfskraftar þýSa öruggari og ódýrari viS- gerSir. Sérstök. verkfæn frá TOYOTA- verksmiSjunum til allra viSgerSa. VENTILL HF. v/KÖLLUNARKLETT. SlMI 30690. FV 12 1971 43

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.