Frjáls verslun - 01.07.1987, Page 7
Frjáls
verslun
Stofnuð 1939
Sérrit um viðskipta-,
efnahags- og atvinnumál
RITSTJÓRI OG
ÁBYRGÐARMAÐUR:
Kjartan Stefánsson
LJÓSMYNDIR:
Grímur Bjarnason
Gunnar Gunnarsson
Kristján Einarsson
AUGLÝSINGASTJÓRI:
Sjöfn Sigurgeirsdóttir
ÚTGEFANDI:
Frjálst framtak hf.
Tímaritið ergefið út í samvinnu
við samtök í verslun og viðskiptum
SKRIFSTOFAOG
AFGREIÐSLA:
Ármúli 18, sími 82300
Auglýsingasími 31661
RITSTJÓRN:
Bíldshöfði 18, sími 685380
STJÓRNARFORMAÐUR:
Magnús Hreggviðsson
AÐALRITSTJÓRI:
Steinar J. Lúðvíksson
FRAMKVÆMDASTJÓRI:
Halldóra Viktorsdóttir
ÁSKRIFTARVERÐ:
1155 kr. 4 blöð
(eintak í áskrift 288,75 kr.)
LAUSASÖLUVERÐ:
319 kr.
SETNING, PRENTUN OG
BÓKBAND:
Prentstofa G. Benediktssonar
LITGREININGAR:
Prentmyndastofan hf.
Öll réttindi áskilin varðandi efni
ogmyndir.
Ritstjórnargrein
Meiri og betri
upplýsingar
Þetta tölublað er helgað árlegum lista Frjálsrar verslunar um 100
stærstu fyrirtækin á Islandi. Listinn birtist nokkru fyrr en venja
hefur verið til. Af ýmsum ástæðum hefur listinn verið birtur í síð-
asta tölublaði hvers árs sem þýðir að upplýsingarnar eru að verða
árs gamlar og stutt í að þær missi gildi sitt. Að þessu sinni er
birtingu listans flýtt um eitt tölublað og eykur það gildi listans.
Vonandi verður hægt að gera betur næst.
Á síðasta ári voru gerðar veigamiklar endurbætur á listanum. Þá
voru birtar upplýsingar um nálægt 1000 fyrirtækjum bæði á aðal-
lista og ýmsum sérlistum. Fyrirtækjunum var þá fjölgað úr 400 frá
árinu áður auk þess sem miklu fleiri upplýsingar birtust um hvert
fyrirtæki. Einnig voru birtir nýir sérlistar um afkomu fyrirtækja
sem mikill fengur var af. Listinn er með svipuðu sniði í ár en nú
birtast upplýsingar um milli 1300 og 1400 fyrirtæki.
Fyrirtækjalisti Frjálsrar verslunar er mikilvæg heimild um ís-
lensk fyrirtæki og íslenskt atvinnulíf. Gildi listans vex eftir því sem
upplýsingar um hvert fyrirtæki verða fyllri og eftir því sem listinn
birtist oftar og hægt verður að bera saman tölur yfir nokkurra ára
tímabil. Nýir sérlistar á næstu árum verða eflaust af því tagi.
Á síðasta ári var farið inn á þá braut að birta ítarlegri upplýsingar
um rekstur og efnahag fyrirtækja en áður. Slíkar upplýsingar fást
yfirleitt ekki í opinberum gögnum og varð því að treysta á jákvæð
viðbrögð forsvarsmanna fyrirtækjanna. Yfirleitt brugðu menn mjög
vel við og gáfu upplýsingar um atriði sem fyrir nokkrum árum hefðu
verið talin „einkamál“ fyrirtækisins svo sem hagnað, eigið fé
o.s.frv. I ár eru enn fleiri sem gefa upplýsingar af þessu tagi.
Stjórnendur fyrirtækja gera sér æ betur grein fyrir því að miðlun
upplýsinga er mikilvægur þáttur í starfsemi hvers fyrirtækis. Nú
þegar unnið er að undirbúningi hlutabréfamarkaðar er ekki seinna
vænna fyrir menn að venja sig við þá tilhugsun að þeir þurfi að gefa
upp ýmsar upplýsingar sem jafnvel hafa hingað til verið taldar
viðkvæmar fyrir fyrirtækin.
Listinn yfir hundrað stærstu fyrirtækin er í stöðugri þróun og
endurskoðun. Markmiðið er að þjóna viðskiptalífinu og lesendum
Frjálsrar verslunar með því að veita áhugaverðar upplýsingar. Mjög
miklar endurbætur hafa verið gerðar á listanum á síðustu árum en
að sjálfsögðu má alltaf gera betur og að því er stefnt. Lesendur
blaðsins eru því hvattir til þess að láta í sér heyra ef þeim finnst að
eitthvað megi betur fara við gerð og framsetningu listans.
7