Frjáls verslun - 01.02.1995, Blaðsíða 5
RITSTJORNARGREIN
KJÓSIÐ ÞANN SEM
LOFAR MINNSTU
Við þinglausnir er stundum haft á orði að Alþingi hafi
verið starfsamt og afgreitt svo og svo mörg lög. Margir telja
að eftir því sem stjórnmálamenn setji fleiri lög þeim mun
duglegri séu þeir. Þetta er misskilningur! Fólk ætti að
hrópa húrra næst þegar það heyrir að fá lög hafi verið af-
greidd á Alþingi.
f komandi alþingiskosningum ætti fólk að kjósa þann
stjórnmálamann sem lofar minnstu, lofar að setja sem fæst
lög á Alþingi. Það er nefnilega á Alþingi eins og annars
staðar að magn og gæði fara ekki saman. Hlutverk stjórn-
málamanna er að huga að umgjörðinni, setja leikreglur. En
þeir eiga að taka sem minnst þátt í leiknum.
Á næstu vikum munu kjósendur heyra langar kosninga-
ræður stjórnmálamanna þar sem þeir hamast við að lofa og
telja upp alls kyns tækifæri fyrir fólk og fyrirtæki. Þeir
munu fara með þulur um að framtíðin sé í ferðaþjónustu,
hugbúnaði, smáiðnaði, sjávarútvegi, viðskiptum við Asíu
og þar fram eftir götunum.
Eðlileg spurning hlýtur því að vera sú hvers vegna stjórn-
málamenn, sem sjá gull drjúpa af hverju strái og þylja upp
tækifæri eins og hverjir aðrir viðskiptajöfrar, séu ekki í
viðskiptum. Hvað eru þeir að gera inni á þingi? Þeir virðast
hafa miklu næmara auga fyrir viðskiptum en þeir sem
streða í þeim á degi hverjum og reyna að láta enda ná
saman, halda fyrirtækjunum gangandi og greiða laun.
Sumir stjórnmálamenn tala núna um að láta hagvöxt í
framtíðinni eyða fjárlagahallanum. Þeir hinir sömu hafa
áður stjórnað þjóðfélaginu í góðæri, þegar hagvöxtur var
mikill, en á sama tíma með miklum fjárlagahalla. Almenni-
legur hagvöxtur, stækkun kökunnar, næst ekki nema fjár-
lagahallanum sé fyrst eytt. Það er eina vonin til þess að
vextir geti lækkað en lágir vextir eru mesta vítamínsprauta
hvers atvinnulífs sem og lágir skattar.
Hvernig ætla þeir að lækka skatta á fólk og fyrirtæki
nema þeir hafi fyrst eytt fjárlagahallanum með niðurskurði
í ríkisútgjöldum? Hvernig ætla þeir að lækka skatta þegar
þeir hafa veðsett framtíðarskatttekjur með himinhárri
skuldasöfnun ríkissjóðs? Og hvernig ætla sömu menn, og
bera ábyrgð á rányrkju á fiskimiðunum, að fjölga fiskunum í
sjónum?
Fyrir kosningar tala stjórnmálamenn um að hækka þurfi
almenn laun á vinnumarkaði á sama tíma og þeir vilja út-
rýma atvinnuleysi. Þetta hljómar fallega. En þeir vita bet-
ur, þeir vita að þetta fer ekki saman.
Kjósendur ættu að hafa það hugfast að gleypa ekki við
öllu því sem stjórnmálamenn í kosningaham þylja upp fyrir
kosningar. Það er fólksins og fyrirtækjanna að finna út hvar
tækifærin liggja í viðskiptum. Það eru þau sem skapa vöxt-
inn í þjóðfélaginu, laða fram hagvöxtinn með hyggjuviti
sínu.
Stjórnmálamenn ættu fyrst og fremst að einbeita sér að
einni lagasetningu á komandi þingi; að skera upp ríkis-
útgjöldin og afgreiða hallalaus fjárlög. Það væri talandi
tákn um lítið magn lagasetninga en mikil gæði. Þá væri
hægt að hrópa húrra — og jafnvel hækka laun þingmanna.
ISSN 1017-3544
Stofnuð 1939
Sérrit um viðskipta-, efnahags- og atvinnumál — 56. árgangur
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: Jón G. Hauksson — AUGLÝSINGASTJÓRI: Sjöfn Sigurgeirsdóttir —
L J ÓSMYND ARAR: Hreinn Hreinsson, Gunnar Gunnarsson, og Kristján Einarsson — ÚTGEFANDI: Fróði hf. — Tímaritið er gefið út í
samvinnu við samtök í verslun og viðskiptum — SKRIFSTOFA OG AFGREIÐSLA: Ármúli 18, sími 812300, Auglýsingasími 875380 —
RITSTJÓRN: Bfldshöfði 18, sími 875380 — STJÓRNARFORMAÐUR: Magnús Hreggviðsson — AÐALRITSTJÓRI: Steinar J. Lúðvíksson —
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Halldóra Viktorsdóttir — ÁSKRIFTARVERÐ: 2.895 kr. fyrir 1.-5. tbl. eða 579 kr. á blað. — 10% lægra
áskriftarverð ef greitt er með greiðslukorti. LAUSASÖLUVERÐ: 699 kr. —
SETNING, GRAFÍK, TÖLVUUMBROT, PRENTUN OG BÓKBAND: G. Ben. - Edda prentstofa hf. - LITGREININGAR:
Prentmyndastofan hf. — Öll réttindi áskilin varðandi efni og myndir.
5