Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1995, Síða 8

Frjáls verslun - 01.02.1995, Síða 8
FRETTIR STÓRBÆTT AFKOMA FYRIRTÆKJA BLASIR VIÐ í FYRSTU TÖLUM Afkoma fyrirtækja virðist hafa stórbatnað á árinu 1994 miðað við árið 1993. Frjáls verslun birt- ir hér afkomu eftir skatta hjá 14 fyrirtækjum sem hafa birt reikninga sína fyrir síðasta ár. Viðsnúningur þessara fyrirtækja er um 2,2 milljarðar króna á milli ára. Þau töpuðu samtals um 250 milljónum á ár- inu 1993 en högnuðust eftir skatta um 1.952 milljónir á síðasta ári Tveir bankar eru á þessu yfirliti, íslands- banki og Landsbanki. Ástæðan fyrir bættri af- komu íslandsbanka er 864 milljóna króna lægra framlag á afskriftarreikn- ing útlána en árið 1993. I raun versnaði afkoma bankans lítilllega fyrir þessagjaldfærslu. Lands- bankinn lagði um 2,1 milljarð króna inn á af- skriftarreikning útlána Afkoma fyrírtækja 1994 eftir skatta 1993 1994 Flugleiðir -188 624 H Eimskip 368 557 ■■ íslandsbanki -655 185 m Skeljungur 96 125 ■■ Haraldur Böðv. -44 103 ■■ Hampiðjan 42 90 ■ Vísa ísland 57 78 ■ Landsbréf 25 47 1 Glitnir -19 46 | Lýsing 20 33 | Kaupþing 24 26 | Landsbankinn 43 22 | Sæplast 12 10 [ Tangi, Vopnaf. -31 6| ■250 1.952 Afkoma fjórtán fyrirtækja sem birt hafa reikninga sína fyrir síðasta ár sýnir viðsnúning í rekstri þeirra upp á rúma 2,2 milljarða króna. Breskt tryggingafélag: ÚTIBÚ Á ÍSLANDI N.H.K. International Ltd., sem er bresk Lloyd’s vátryggingamiðl- un, hefur fengið starfs- leyfi til að stunda vá- tryggingamiðlun á Is- landi og hefur félagið opnað útibú að Suður- landsbraut 46. Félagið er fyrsta er- lenda tryggingafélagið, sem stofnar útibú á ís- landi, sem rekja má beint til aðildar íslands að Alfred C. Kingsnorth, stjórn- arformaður N.H.K. Interna- tional Ltd sem er bresk Lloyd’s vátryggingamiðlun. EES, Evrópska efnahags- svæðinu. En þess má geta að fyrir nokkrum árum kom sænski tryggingaris- inn Scandia inn á íslensk- an tryggingamarkað. Stjórnarformaður fé- lagsins, Alfred C. Kings- north, kom gagngert hingað til lands í tilefni opnunar útibúsins. Starfsmenn útibúsins eru þeir Halldór Sigurðsson og Gísli Maack. Paul R. Timm: „Einn vansæll viðskiptavinur getur orðið til þess að 55 manns hætta að versla við þig.“ Einn óánægður og 55 MANNS HÆTTAAÐ VERSLA VIÐ ÞIG Dr. Paul R. Timm, sem hefur samið sautján bæk- ur og fjölda greina um þjónustu við viðskipta- vini, mannleg samskipti og fleira, flutti erindi á tveimur námsstefnum Stjórnunarfélagsins. Sú fyrri var á Hótel Kea á Ak- ureyri en sú seinni á Hót- el Sögu. Margt afar athyglisvert kom fram í erindum hans. Sérstaka athygli vöktu orð hans um það hvað óánægður viðskiptavinur er dýrkeyptur. Rann- sóknir vestanhafs sýna sá einn óánægður við- skiptavinur breiðir fljótt út neikvæðar sögur og getur orðið til þess að 55 hætti að skipta við fyrir- tækið. Þetta er miklu meira en menn hafa al- mennt gert sér grein fyrir og sýnir hvað góð þjón- usta og ánægðir við- skiptavinir eru mikilvæg. Þá kom ennfremur fram hjá Paul R. Trimm að meðalfyrirtæki tapar um 30% viðskiptavina sinna á ári vegna þess að gæði þjónustunnar er ekki sem skyldi. 8

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.