Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1995, Side 21

Frjáls verslun - 01.02.1995, Side 21
inum 17. júníí fyrra. Meðan svo er sjá þjónustuaðilar Internetsins ekki fram á að erlendum fyrirtækjum muni þykja ýkja fýsilegt að tengjast Islandi í viðskiptalegum tilgangi. Til þess sé sambandið enn of lélegt. Vonast er til að Póstur og sími hleypi Internetsam- bandinu urn sínar öflugur línur og breyti gjaldskrárstefnu sinni sem miðar við að tölvusamband sé jafn þungt og talsamband, þótt reyndin sé allt önnur, tölvusambandinu í hag. Þá fyrst verði sprenging í notkun Intern- etsins í viðskiptalegum tilgangi Miðheimar hf AÐGANGUR AÐ ÖLLUM MÖRKUÐUM HEIMS Hér á landi fór Internetið verulega að teygja möskva sína yfir landið við stofnun Miðheima hf. sem eru til húsa í Tæknigarði á Háskólalóðinni. Þá komst hinn almenni tölvunotandi á íslandi fyrst í samband við umheiminn, þó auðvitað hafi „tölvufríkin" löngu verið komin í samband við Internetið. Miðheimar er leiðandi fyrirtæki þar sem Intemetið er annars vegar. í mánaðargjaldi er innifalin einnar klukku- stunda notkun á Internetinu á dag. Sé sá klukkutími ekki nýttur dettur hann dauður niður. Þetta er gert, að sögn Miðheimamanna, til að dreifa álaginu um heldur afkastalitl- ar símalínur Pósts og síma úr landinu. Með stofngjaldinu fylgja tveir disklingar með Netscape-forritinu og íslenskur leiðbeiningabæklingur. Viðkomandi fær einnig notenda- nafn og númer, svokallað netfang sem er eins og heimilis- fang á Intemetinu. Um 300 fyrirtæki eru tengd Internetinu um Miðheima í dag og nokkur þúsund einstaklingar. Dag hvern bætast nýir Internetsnotendur í hópinn en þar á bæ eru skráðar um 90 þúsund Intemetsheimsóknir á viku. „Fyrirtæki nota Internetið gjarnan til að kynna sig og ganga þá skrefi lengra en með hefðbundnum auglýsingum. Þau geta notað Internetið í stað hefðbundinna kynningar- bæklinga og þá notfært sér tvíátta samskiptamöguleika við viðskiptavinina. Fyrirtækin hanna þá sínar eigin heima- síður, til dæmis með merki fyrirtækisins og þeim vöru- merkjum sem það vill kynna. Hins vegar sjáum við um að koma hönnuðum heimasíðum í það form sem tækt er á Internetinu," segir Róbert Bjamason hjá Miðheimum. Róbert segir Intemetið opna leið fyrirtækja að viðskipt- um um víða veröld. „Með jafn lítilli fyrirhöfn og tengingu við Internetið fá fyrirtæki og einstaklingar aðgang að öllum mörkuðum heimsins. Sem dæmi um umfang viðskiptanna á Internetinu og þróunina má nefna að í Bandaríkjunum voru seldar vörur fyrir um 3 milljónir dollara 1993. í fyrra hafði þessi tala hins vegar hundraðfaldast, var komin í 300 milljónir dollara." „Hefðum við þurft að fara hefðbundna pappírsleið í dreifingu hugbúnaðarins hefðum við ekki haft efni á að standa í þessu. “ — Friðrik Skúlason sem rekur samnefnt fyrirtæki Eimskiþ ÞJÓNUSTU- UPPLÝSINGAR INTERNET Eimskip hefur þegar tengst Inter- netinu. Með því að kalla fram heima- síðu Eimskips má nálgast ýmsar þjón- ustuupplýsingar eins og heimilisföng umboðsmanna heima og erlendis og upplýsingar um flutningskostnað, til dæmis fýrir námsmenn sem eru að flytja heim frá útlöndum. Hjá kynningardeild Eimskips fengust þær upplýsingar að þeir væru með sérstaka fyrirspumasíðu fyrir tölvupóst. Talsverð notkun væri á síðum Eimskips en viðskiptavinir félagsins væru að byrja að átta sig á möguleikum Internetsins. „Menn eru ánægðir með þennan möguleika en þurfa smátíma til að átta sig á þessum nýja möguleika í samskipt- um við okkur. Það er ekki svo margir af okkar viðskipta- vinum tengdir Internetinu ennþá en það verður væntan- lega sprenging á því sviði,“ sagði Kristján Jóhannsson hjá markaðsdeild Eimskips. Markaðurinn Þau tengja þig Internetinu - og þjónusta þaö fyrír þig 1. Skíma hf. 2. Miðheimar hf. 3. Menn og mýs hf. 4. Nýherji hf. 5. Margmiðliun hf. 6. Netverjar hf. 7. Strengur 8. Islenska menntanetið hf. 9. SURIS (samtök upplýsinganetsrannsókna á íslandi. Tengir en þjónustar ekki) Friðrik Skúlason ÚTFLUTNINGUR ÁN SKRIFFINNSKU Friðrik Skúlason rekur samnefnt fyrirtæki sem sérhæf- ir sig í gerð hugbúnaðar, dreifingu hans og sölu. Friðrik 21

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.