Alþýðublaðið - 29.07.1969, Blaðsíða 12

Alþýðublaðið - 29.07.1969, Blaðsíða 12
12 Alþýðublaðið 29. júlí 1969 MILLJÖN ÖOLL- ARA KJAFTSHÖGG □ NÝJA stórstirnið í banda- rískum atvinnukörfubolta, hinn 220 sm. hái leikmaður UCLA, Lewis Alcindor, hefur verið kærður fyrir að ráðast á minni máttar og meiða hann. Sá er aðeins 204 sm. Alc indor fór á æfingu að gamni sínu í gagnfræðaskóla í Los Angeles, stuttu áður en hann byrjaði að leika sem atvinnu- maður hjá liði sínu, Milwauk- ee Bucks. Það var mikið fjör og svo fór að færast harka í ieikinn. Alcindor hafði nýlokið við að troða boltanum niður í gegnum netið og færa með því liði sínu sigurinn, þegar hon- um lenti saman við Dennis Grey, sem leikur fyrir Los Angeles Stars. „Ég var reittur til reiði, og gerði mínar ráð- stafanir,“ sagði Alcindor, og Grey, sem hafnaði uppi á spít ala með brotinn kjálka, var líka reiður, — og gerði sínar ráðstafanir, fyrst með því að segja, „hann byrjaði“, og síðan með því að fara í mál, og krefj ast einnar milljónar dollara í skaðabætur. Ekki höfum við haft spurnir af því, hvort litli strákurinn hefur fengið þann stóra til að borga. INGVASON GLÍMUKAPPI HSÞ \ □ Héraðsglíma HSÞ var að Laugum 5. júlí 1969. Þátt- takendur voru 10 frá 3 félög- um. Glímustjóri var Haraldur Jónsson en dómarar Haukur Aðalgeirsson Arngrímur Geirs son og Eysteinn Sigurðsson. Röð keppenda: Vinningar: l.Björn Yngvason, M 7 1 2.1ngi Þ. Yngvason, M 7 0 3. Benedikt Sigurðss., M 6 14 4. Pétur V. Yngvason, M 514 5.—6. Kristján Yngvason, M 3 7.—8. Baldvin Baldvinsson, GA 3 9. Benedikt Arnbjömsson, G 0 Brynjólfur Steingrímsson, M hætti vegna smá meiðsla. I I I 1 I I I I I ! Ferðakostnaður vandamal í Bikarkeppninni □ Bikarkeppni KSÍ er nú komin í fullan gang, og fyrstu umferð lokið, utan einum leik, sem var frestað. Á laugardag- inn léku á ísafirði Hörður og Víkingur og sigraði Víkingur með 6 mörkum gegn 1. í gær áttu Bolungarvík og Selfoss að leika, en þegar til kom neit- aði Selfoss að fara vestur vegna kostnaðar, og var því leiknum frestað. Á Húsav. áttu Völs. að leika við Breiðabl., en Breiðabl. gaf leikinn vegna þess að þeir tfeystu sér ekki norður vegna ferðakostnaðarins. Loks léku ÍBV og Haukar a í Vestmanna- eyjum, og sigruðu Vestmanna- eyingarnir með einu marki gegn engu. Liðin, sem komin eru í 2. um- ferð eru þessi: FHa, Víkingur a, KR b, Völsungar, Valur b, ÍBA b, Víkingur a, Vestri, Njarðvík, ÍBV b og Ármann a, og lið, sem ganga beint inn í 2. umferð án keppni eru: ÍA b, HSH, FH b, Breiðablik b, Fram b og Hveragerði. Næsti leikur í bikarkeppn- inni verður 7. ágúst, en þá leika á Melavellinum Fram b og Hveragerði. 9L*r- 4? •wssiæa tcsss Vestur-þýzkir þingmenn hafa sýnt íþróttunum mikinn áhuga undanfar- ið og m.a. tekið þátt í æfingum. í miðið er Heinrich Windelen, ráðherra, og t.v. er Killat þingmaður. Það er Hein-ten Hoff, fyrrverandi hnefaleikameis tari, sem sér um þjálfun þeirra. Hve-nær fáum við að sjá íslenzka þingmen n og ráðherra á æfingu? HVENÆR BYRJA ISLENZKU RÁÐHERRARNIR Knattspyrnukappinn á myndinni (sá, sem er ber nið- ur að mitíi heitir Gerhard Miiiier. Hann hefur vakið mesta athygli í þýzku knattspyrnunni í ár, og er lík- legur til að vera kjörin.i knattspyrnumaður ársins í ‘V-Þýzkalandi. II im skeraði flest mörk í „Bundes“ liga,“ 1. deildmni, eða 30, 7 í bikar'keppninni og 12 fyrir laiidsliðið. Miiller er 24 ára gamall og leikur fyrir FC Bayem Miinchen.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.