Fregnir - 01.07.1994, Page 12
FREGNIR
í máli Hedde Mortensen frá Dansk Biblioteks Center A.S. kom fram að
það væri bæði kostnaðarsamt og tímafrekt að fara í gegnum ISO 9000
ferlið en taldi það borga sig.
Synn0ve Ulvik lýsti athyglisverðri könnun sem gerð var á gæðum aug-
lýstrar upplýsingaþjónustu á almenningsbókasöfnum í Noregi. Ferðast
var um til að kanna þjónustuna á hverjum stað og bókaverðir ekki látnir
vita að um könnun væri að ræða. Þannig var hægt að komast að því
hvemig svaranna var aflað. í stuttu máli sagt voru gæðin vægast sagt lít-
il. Meðal annars kom fram að margir bókaverðir vissu ekki hvert þeir
áttu að leita ef svarið var ekki að finna á safninu og þó svo væri voru
þeir tregir til þess. Treyst var um of á að svarið væri að finna í tölvunni
og jafnvel kom það fyrir að bókavörður var kominn með rétta uppfletti-
ritið í hendur en kunni ekki að leita í því. Hér er ekki hægt að gera efni
fyrirlestra betri skil en þátttakendur eiga að fá þá senda og er þá hægt að
leita til okkar um nánari upplýsingar.
Á lokadegi ráðstefnunnar var haldinn fundur um þátttöku Norðurlanda í
alþjóðlegu samstarfi á bókasafna- og upplýsingasviði. Menn voru á einu
máli um að norræn samstaða væri mikilvæg á þessu sviði og að athuga
þyrfti hvort ekki væri hægt að samhæfa kraftana betur. Til þess þarf að
kortleggja þátttökuaðila í hverju landi. Raddir heyrðust um að evrópsk
félög eins og LIBER og EBLIDA yrðu okkur sífellt mikilvægari á
kostnað til dæmis IFLA, sem einkum beindi kröftum sínum að þróunar-
löndunum.
Á stjómarfundinum var ákveðið að framvegis skyldi velja formann og
stjómarmenn til þriggja ára í stað tveggja áður og að sömuleiðis verði
þing þetta haldið á þriggja ára fresti. Næsta þing átti að vera á íslandi en
áhugi var á að halda það í Hindsgavl í Danmörku árið 1997 þar sem
NVFB var stofnað, því þá eiga samtökin 50 ára afmæli. Það verður því á
íslandi árið 2000.
Ólöf Benediktsdóttir
12