Alþýðublaðið - 12.08.1969, Blaðsíða 11

Alþýðublaðið - 12.08.1969, Blaðsíða 11
Alþýðdblaðið 12.igúst 1969 II Síður upp úr? Framhald úr opnu. anna. Og vig þe|tta bætist að Zambía getur elklki sniðgíenjg- ið það sem gerist við landa- mæri rílkisins. Þar er dag- leiga lagður grundvöillur að átclkum, sem hljóta að verða fcynþát't'astríð. (A-Pressen/Per Aasen) STEFNA Framhald ?.. sí5u. að sig frá Víetnam. Og af heim sókn Nixons til Saigon að dæma er ekki mikil ástæða til bjartsýni í því efni. En maður verður að vona, að viðurkenn- ing Nixons á hinu rétta eðli Víetnam-deilunnar geti orðið til þess ásamt öðru, að Banda- 'ríkin losni af þeim öngli, sem þau þó virðast hafa gleypt. HÓTELEIGANDI Framhald i bls. 6. fyrir rúmu ári síðan, þegar'ég ’ keypti hótelið, sagði Bill Heyd en. —. Og ég geymdi þau, með an ég auraði mér saman fyrir úrvinnslu á þeim. Ef frekari boranir leiddu í ' ljós jarðlög með gulli í á eign- arlóð Heydens, væri ekkert lík ' legra en hóteleigandinn yrði milljónamæringur, en einnig getur verið, að hér sé um að ræða einangrað svæði, án alls sambands við gullæð. Og víst er, að undir öllum kringum- stæðum er mjög kostnaðarsamt að bora eftir gulli. —■ HÁSKÓLINN Framhald bls. 7. unni, að ýmsir kennarar við Háskóla íslands, einkum þeir yngri, sem menntazt hafa við erlenda háskóla, hafi að vísu gert tilraunir með nýjar að- ferðir í kennslu sinni, en þær hafi ekki gefizt vel, þar sem stúdentar við HÍ hafi ekki enn gert sér fulla grein fyrir mik- ilvægi þess, að þeir séu virkir þátttakendur í kennslunni. Benti þessi reynsla til þess, að byrja þyrfti að breyta kennslu háttunum miklu neðar í skóla- kerfinu. Það var álit ráðstefnunnar, að öll tilhögun prófa við Há- skóla íslands væri gamaldags orðin og úr sér gengin og hið sama gilti um einkunnakerfið, enda væri það ekki lengur not að við háskóla erlendis. Þótti þátttakendum á ráðstefnunni það fráleit skipan mála, að fella niður kennslu, á meðan próf fara fram. Próf tækju að jafnaði um 30 daga á hverju ári, en mestan þann tíma væri kennsla felld niður. Álitu, þeir skynsamlegra að flytja prófin inn á sjálft kennsluárið og dreifa þeim meira en nú er gert. Væri unnt að skipuleggja próf við háskólann miklu bet- ur en gert er, þannig að kennsla þyrfti aldrei að falla niður ,á meðan á þeim stend- ur. EINKUNNAKERFI GAMALDAGS Kom fram á blaðamanna- fundinum í gær, að það hafi verið samdóma álit allra á ráð- stefnunni, að haga yrði kennslu í raunvísindagreinunum, sem kenndar eru í verkfræðideild, þannig að hún miðaðist við þrjá möguleika — að nemand- inn sé að búa sig undir fjöl- þætt kennslustörf, að hann sé að búa sig undir hagnýt störf í atvinnulífinu, t. d. hjá rann- sóknarstofnunum, eða þá að hann sé að undirbúa sig undir frekara sérnám erlendis að BA prófi loknu. Þá mun hafa þótt eðlilegt að undanskilja nem- endur í þessum greinum frá skyldu þeirri, sem hvílir á þeim sem ljúka BA-prófi og ætla sér að starfa við kennslustörf, að þeir ljúki prófi í uppeldis- og kennslufræðum, en það nám mun taka u. þ. b. 1/4 heildar- námstímans. Þá þótti koma til álita að prófið yrði ekki nefnt BA-próf, heldur BS-próf eins og t. d. í Bandaríkjunum. Þ J ÓÐFÉL AGS VÍSINDI Það sjónarmið átti talsverðu fylgi að fagna á ráðstefnunni, að kennsla í líffræði fyrir læknanema og þá, sem væru að búa sig undir BA-próf í líf- fræði í verkfræðideild, yrði sameiginleg fyrsta árið. Miklar umræður urðu á ráð stefnunni um kennslu í þjóð- félagsfræðum við Háskóla ís- iands og hvernig henni yrði skynsamlegast háttað. Kom fram ýmis sjónarmið í þessu efni, einkum um það, hvern- ig hefja skyldi kennsluna í þessum fræðum, hvaða hlut- verki þessi kennsla ætti að þjóna og við hvaða störf skyldi miðað í þjóðfélaginu. HÁSKÓLI OG PÓLÍTÍK Miklar umræður urðu á ráð stefnunni um þann málaflokk, sem nefndur var „háskólapóli- tík“. Meðal atriða, sem fram komu í þeim umræðum og þátt takendur skýrðu frá á blaða- mannafundinum í gær, voru þessi; „Pólitík og þátttakend- ur eru óaðskiljanleg fyrirbæri, en hér er ekki átt við flokka- pólitík — heldur alla stjórn- un“ — „það er ekki ástæða til að hefta neinn nemanda í námi eða takmarka inngöngu nem- anda í neina deild háskólans. Þó að við séum reyndar ekki búnir að gera okkur grein fyr- ir því, hvernig framtíðarþjóð- félagið á að vera, vitum við, að háskólinn er gamáldags eins og þjóðfélagið allt“. „Háskólanum ber að hafa tengsl við þjóðfélagið, nemend- ur og kennarar þurfa að hafa nánara samband við aðrar stéttir þjóðfélagsins." UMRÆÐUR FYRIR OPNUM TJÖLDUM „Við viljum, að allar umræð ur um háskólann fari fram fyr- ir opnum tjöldum, og að af- numin verði þagnarskylda þeirra, sem sæti eiga í deild- arráðum og háskólaráði. Um- ræður um einstök innri mál há skólans eiga að vera opinberár og allur almenningur á að geta tekið þátt í þeim. Háskólinn á að vera virk stofnun, sem hvet ur til umræðna um þjóðfélags- leg málefni. Það er ekkert að- alatriði að vita fyrir fram, hvernig umræðurnar þróast, en hins vegar er nauðsynlegt að þær fari fram.“ SMURT BRAUÐ Snittur -- Öl — Gos Opið frá kl. L. Lokað kl. 23.15 Pantið tímanlega I veizlur. Brauðstofan — Mjólkurbarinn Laugavegi 162. Sími 16011 VELJUM fSLENZKT-^*«|^ ÍSLENZKAN IÐNAÐ y AXMINSTER býSur kjör við allra hœfi GRENSASVEGI8 SIMI 30676 FÓSTRUR Mýrarhúsaskóli ós'kar eftiir fóstru til starfa við' 6 ára deild skólans. Upplýsingar í síma 14791. Skólastjóri. Ferðafólk - Ferðafólk Staðarskáli er í þjóðbraut mi'lli Suður-, Norð ur- og Austurlands. — Höfum ávallt á boð- stólum m-a. Hamborgara með fröniskum kart- öflum, bacon og egg, skinku og egg, heitar pylsur, smurt bauð, kaffi, te, mjólk og köktir, ávexti, ís, öl, gosdrykki, tóbak, sælgæti og fl. Myndavélar, filmur og sólgleraugu í úrvali. Tjöld, svefnpoka, gastæki og ýmsan ferða- fatna-ð. Benzín og olíur á bílinn. — Verið velkomin. Frá Maisveina og veit- ingaþjónaskólanum Innritun á fyrra kennslutímabil skólans, sem ■er frá 1. september ti'l 22. desember ióg s'einna kennslu'tímabil skólans, sem er frá 3. janúar til 30. apríl, fer fram í skrifstofu skólans í Sjclmannaskólanum 14. og 15. ágúst fcl. 15— 17- — Við innritun þurfa nemendur að bafa með sér nafnskrteini. Inn’Gkutpróf í íslenzku 'Og reikningi fyrir þá, sem ekiki hafa lokiö miðskólaprófi, verður mánudaginn 4. sepem'ber kl. 15. Skólastjóri. 1 Alúðar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlá't og jarðarför EYJÓLFS BJARNASONAR, Norðurbraut 7, Hafnárfirði. Þuríður Biarnadóttir, Hrefna Eyjólfsdóttir, Sæmundur Björnsson, og dótíursynir-

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.