Alþýðublaðið - 12.08.1969, Blaðsíða 7
ATiþýðufol'aðlð 12, ágúst 1969 7 \
RÁÐSTEFNA UM HÁSKÓLAMÁL
ÞatttaKendur á Siáskólaráðstefnunni, sem skýrðu frá sjónarmiðum sínum varðandi háskólann á blaðamannafundinum í gar.
□ Við viljum, að allar umræður um háskólann fari
fram fyrir opnum tjöldum, og að afnumin verði þagn
arskylda þeirra, sem sæti eiga í deildarráðum c? há-
skólaráði. Háskólinn á að vera virk stofnun, sem hvet
ur til umræðna um hvers konar þjóðfélagsleg mál-
efni. Það er ekkert aðalatriði að vita fyrir fram,
hvernig umræðurnar þróast,“ sögðu þátttakendurnir
á nýafsíaði mi ráðstefnu um háskólamál á blaðamanna
fundi í gær. Ráðstefna i var haldin að frumkvæði
Verðandi, félags vinstri sinnaðra stúdenta í Háskóla
íslands, cg í samráði við einstaklinga í SÍSE, sam-
bandi ísienzkra stúdenta erlendis, og Félagi háskóla-
kemiara.
Nokkrir þátttakendur á ráð-
stefnu þessari efndu til fund-
ar með blaðamönnum í gær og
gerðu grein fyrir ráðstefnunni,
sem stóð yfir í tvo daga um
síðustu helgi, og sjónarmiðum
sínum. Verður hér stiklað á
stóru en ieitazt við að gera
gfein fyrir hugmyndum þeirra
aðila, sem hér eiga hlut að
máli.
Aðalmálaflokkarnir, sem
fiallað var um á ráðstefnunni
voru: Skipulagsmál Háskóla
fslands, kennslumál og fyrir-
komulag prófa, kennsla í raun
vísindum við HÍ, kennsla í fé-
lagsvísindum við HÍ og háskóla
.pólitík. Um 80 þátttakendur
tóku þátt í ráðstefnunni fyrri
daginn en um helmingi færri
síðari daginn. Skiptust þátt-
takendur niður í fimm umræðu
hópa fvrri daginn, en tvo hópa
hibn síðari. Fóru umræðurnar
fram bæði í hópum og sameig-
injlega.
NVIlt MENNINGAR-
STRAUMAR
Var lögð áherzla á það á
blaðamannafundinum, að hóp-
arnir hefðu ekki skipzt niður í
framsögumenn og „passíva1' á-
heyrendur. í fyrstu hefði mátt
greina nokkuð öryggisleysi hjá
ýmsum þátttakendum, en tek-
izt hefði að yfirvinna það og
ná mjög almennri þátttöku í
öllum samræðum á ráðstefn-
unni. Megintilgangurinn með
henni væri að vekja umræður
og skoðanaskipti um háskóla
og opna nýjum menningar-
straumum leið inn í Háskóla
íslands og til stúdenta og kenn
ara, sem þar störfuðu.
FALLA INN í GAMALT
ÞJÖÐSKIPULAG
Það sjónarmið kom fram á
ráðstefnunni, að Háskóli ís-
lands væri stöðugt að verða
fullkomnari framleiðsluvél,
sem framleiddi ákveðinn fjölda
fólks árlega, sem hentaði ríkj-
andi þjóðskipulagi. Var á það
bent, að Háskóli íslands væri
fyrst og fremst embættismanna
skóli, sem hefði því hlutverki
að gegna að viðhalda 19. aldar
embættismannastétt, sem félli
inn í gamalt og úr sér gengið
þjóðskipulag.
STÚDENTAR ERU
STÉTT
Kerfið, sem öll kennsla í Há-
skóla íslands byggist á, væri við
það miðuð, að nemendur væru
óvirkir — „passívir“. Kennar-
arnir væru rikjandi í kennsl-
unni og nemendur ættu þdss
ekki kost að mynda sér sjálf-
stæða skoð\m á því námsefni,
sem um væri veríð að fjalla.
Ýrðu stúdentar að bindast sam
tökum um að brjóta þetta form
niður. Þeir yrðu að gera sér
grein fyrir því að þeir væru
stétt, en háskólakennararnir
væru önnur stétt, en hins veg-
ar bæri nauðsyn til, að bæði.
nemendur og kennarar ynnu
saman að viðfangsefnunum, þó
að búast mætti-við því að til
árekstra geti komið vegna ó-
líkra hagsmuna þessara tveggja
stétta.
ÚRELT KENNSLU-
SKIPULAG
í umræðunum um kennslu-
málin og skipulag þeirra var
því haldið fram á ráðstefnunni,
að skipulag kennslumála í Há-
skóla íslands væru úrelt orð-
in og væri með allt öðrum hætti
en í háskólum víðast hvar er-
lendis. í flestum háskólum er-
lendis færi kennslan fram að
verulegu leyti í litlum umræðu
hópum og væri lögð rík áherzla
á það, að nemendur ræddu
námsefnið fram og aftur, rök- t
' ræddu það og þeir gætu dreg-
ið rökréttar ályktanir út frá q
gefnum forsendum. Þá væri >
það mjög mikilvægur þáttur í
kennslunni við háskóla í Þýzka “
landi og Bandaríkjunum, að ;5
þeir nemendur, sem lengra eru
komnir í námi sínu, taki þátt í
kennslunni með þeim, sem
skemmra eru komnir.
Við Háskóla fslands tíðkast
hins vegar, að kennslan færi
fram nær eingöngu með fyrir-
lestrum, þar sem kennarinn eða
prófessorinn stiilti sér upp
gegnt nemendunum, sem tækju
,.þassívt“ við „sannleika“ læri- í
föðurins.
TILRAUNIR HAFA
MISTEKIZT I
Þá kom það fram á ráðstefn- ,
Framhald á bls. 11. .