Alþýðublaðið - 22.08.1969, Qupperneq 2

Alþýðublaðið - 22.08.1969, Qupperneq 2
2 Alþýðdblaðið 22. ágúst 1969 Sáttafuiufair : á sannudag Prentarafélagið hélt ffund í gær til að ræða samningamál- in, og var myndin hér til hlið- ar tekin utan við Iðnó rétt áð- ur en fundurinn hófst. Annar fundur í félaginu hefur verið boðaður á sunnudagskvöld, og mun hann taka endanlega á- kvörðun um það, hvort af verkfallinu verður eða ekki. Hafi sáttatilboð komið fram fyrir þann fund, mun það verða tekið til meðhöndlunar þar. Sáttasemjari hélt fund með bókagerðarmönnum í gær- kvöldi, og var annar fundur boðaður á sunnudagskvöld. —■ Ekkert hefur enn gerzt, sem bent gæti til þess að miði í samkomulagsátt, en til þess að ekki komi til verkfalls eftir helgina þurfa samningar að hafa tekizt fyrir kl. 8 á mánu- dagsmorgun. — Svar læknadeildar komið □ í gær gekk forseti læknadeildar, prófessor Ól'afur Bjarnason, á fund menntamálaráðherra og flutti hon um svar deildarinnar við þeim tilmælum ráðherrans, að deildin tæki í haust við öllum þeim stúdentum, sem óskað hefðu að hefja nám í læknisfræði. Sam- þykkir deildin að fallast á tilmæli ráðherra og að einkunnatakmörkun á fjölda þeirra stúdenta, sem óska að hefja nám í lækknisfræði á vetri komanda yrði hví aflétt. Mun stúdentum, sem ekki höfðu tilskylda stúdentsprófs- einkunn við innritun í lækna- deild í haust til inngöngu í deildina því gefinn kostur á innritun og nýr skrásetningar- frestur auglýstur. Með samvinnu læknadeildar og forsvarsmanna læknadeild- ar er mál þetta því farsællega til lykta leitt og fregnir Tímans og Þjóðviljans af afstöðu lækna deildarinnar því ekki reynzt á rökum reistar enda virðast öll afskipti þessara blaða af lækna deildarmálinu frekar hafa ver- ið í þeim anda að torvelda lausn málsins en hitt. f sameiginlegri fréttatilkynn- ingu menntamálaráðuneytisins og háskólans segir jafnframt, að menntamálaráðherra muni leggja fyrir forseta íslands nýja reglugerð um kennslu- hætti og starfsskipulag lækna- deildar er taki gildi þegar haust '.ð 1970. Hefur þessi nýja náms tilhögun verið í undirbúningi um nokkurra ára skeið og gérir m.a. ráð fyrir því, að lengja árlegan námstíma við deildina í níu mánuði en fækka náms- árum úr sjö í sex, miðað við eðlilegan námshraða. — NEW YORK í MORGUN (ntb): Óttazt er, að a.m.k. 40 manns hafi látið lífið í mikl- um flóðum í ríkinu Virginíu í Bandaríkjunum að undanförnu. Eru þau af völdum hvirfilvinds ins „Kamillu“, sem þar hafði „viðdvöl“ á leið sinni austur á bóginn, eftir að hafa gengið berserksgang í ríkjunum Miss- issippi og Louisiana. V- 1 Clcsa í Jenisalem □ JERÚSALEM f MORGUN (ntb-reuter); ísraélska Jjií.nda- mæralögreglan hleypti af all- mörgum viðvörunarskotum í gamla borgarhlutanum í Jerú- salem í gær til að dreifa um 800 arabiskum andmælendum, eftir að hin fræga E1 Aqsa- moska hafði verið eyðilögð að miklum hluta í eldi þá um dag- i'nn. f morgun var komin á kyrrð í Jerúsalem, en hliðum gamla borgarhlutans hafði ver- ið lokað. — TRÉSMIÐJAN VÍÐIR AUGLÝSIR: Hjónarúm með dýnu og náttborðum kr. 14.500,— Fjölbreyttasta húsgagnaúrvalið, sem völ er á, á einum stað, er hjá TRÉSMIÐJUNNI VÍÐI. Kynnið yður verð og gæði Verzlið þar sem úrvalið er mest og kjörin bezt. TRÉSMIÐJAN VÍÐIR Laugavegi 166 — Símar 22229 — 22222.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.