Alþýðublaðið - 22.08.1969, Síða 8
8 Alþýðublaðið 22. ágúst 1969
□ — Pétur, hvaSan hefur hú þetta suðræua útlit?
[ Og Pétur Einarsson, Ieikari, svarar: — Fólk hefur éinkum skýrt bað á tvenn-
? an hátt. Annars vegar, að þetta sé frá Tyrkjaráninu komið. Þá tilgátu hef ég af-
sannað; mín ætt var ekki til í Vestman^raeyjum þá.
| Hins vegar, að Fransmenn á Austfjörðum eigi einhverja hluídeild í mér — þá
kenningu hefur mér ekki tekizt að afs.:nna enn.
fr — Hvað ertu að teikna
! þarna?
— Uppdrátt að senu í fyrsta
t>ætti barnaóperunnar Apaspil.
■— Áttu að stjórna því?
■— Já, fyrir sjónvarpið.
— Hefurðu áður fengizt við
! leikstjórn?
! — Já, ég hef meðal annars
' stýrt tveimur barnaleikritum,
Rabba rafmagnsheila hjá Leik-
félaginu og Nýju fötum keisar-
ans hjá sjónvarpinu. Núna er
ég að stjórna þremur einþátt-
ungum fyrir Litla leikfélagið,
einþáttungum eftir Nínu Björk
Árnadóttur og Þór Rögnvalds-
son.
f — Hvers konar leiklistar-
yinna finnst þér skemmtilegust?
— Eg get ekki gert upp á
fnilli hinna ýmsu greina á þann
hátt. Ég er ánægður í hlutfulli
við, hvað mér finnst mér hafa
tekizt vel — og það kemur
ekki málinu við, hvað 'ég er að
gera.
■Hitt er svo annað, að hingað
til hef ég verið ánægðari með
það sem ég hef leikið heldur
en leikstýrt til dæmis, en ég
er núna eiginlega að læra leik-
stjórn af reynslunni. Ég binri
mig ekki við ákveðna aðferð,
svo að það er mér mögulegt að
læra á þennan máta — af
reynslunni.
— En hvað er að segja um
þitt léiklistarnám í skólum?
— Fyrst lærði ég hér hjá
Leikfélaginu og útskrifaðist
þaðan, en fór síðan til Banda-
ríkjanna og lærði við leiklistar-
deild háskólans í Georgíu. Þar
valdi ég úr það námsefni, sem
mér leizt bezt á — beztu
kennslufögin að segja.
Leiklistarkennslan þar var
nefnilega alveg sorgleg — svo
ég forðaðist hana, en allt við-
víkjandi tækni og ýmsar aðrar
greinar var mjög fullkomið.
— Nú telja sumir, að dvöl
fólks í leikskólum sé því frem-
ur til ills en góðs. Hvað vilt
þú um það segja?
— Ég er sennilega núna fyrst
að jafna mig eftir að hafa verið
í leikskóla.
— Hvernig þá?
— Leikurinn verður of með-
vitaður við að vera í leikskóla.
En þetta þýðir. ekki, að ég.sjái
eftir að hafa lærf — h’ef ‘sénni-
lega bara haft ; gott af þessú
„meðvitaða“ tímabili, sem ég
er núna fyrst að losna úr.
Svo gæti það aftur hent mig
að staðna næstu tuttugu þrjátíu
árin.
— Hvað gætirðu gert til að
koma í veg fyrir það?
— Ekkert. Þetta fer bara eft-
ir innstillingunni. En allir sem
eitthvað fást við list eiga yfir v
höfði sér að staðna. Málarar '
eiga til dæmis sín tímabil, sem
standa kannski nokkur ár hvert,
en að þeim tíma liðnum skipta
þeir, þó ekki sé nema um efni;
þá losnar eitthvað nýtt úr þeim.
— Hvernig hlutverk finnst
þér mest spennandi að vinna?
— Það eru hlutverk, sem mér
finnast ekki liggja beint fyrir
mér —- opin, þegar ég l?s þau
og hef fyrstu kynni mín af þeim.
Þá verða þau eins og áskorun
um að fá það út úr þeim, sem
ætlazt er til.
— Skipta leikdpmar og um-
sagnir þig miklu máli?
„ — Mér finnst, að það skipti
mig voðalega litlu máli. Þetta
er frékar spurning um, hvað
mér finnst,
, . • í)r • ; ! i . • - : . ' V * ‘ .Í
— Nu ert þú talsvert undir
; sbiásjáhní; Pétur. Þú ert'kalldð-
ur einn okkar efnilegasti ungi
leikari — og vaxandi í listinni.
Hvernig áhrif hefur það á þig?
— Ég er ekki svo voðalega
hræddur við þessa smásjá. Það
er mín eigin smásjá, sem ég ótt-
ast.
— Kemur yfirleitt nokkurn
tímann fyrir, að alveg óvænt
fólk sé valið í hlutverk hjá leik-
húsunum — bara eitthvert fólk
af götunni, sem leikstjóri hef-
ur fengið augastað á?
— Þetta kemur aldrei fyrir,
og það er galli. En leikhúsfólk
virðist ganga með þá fáránlegu
grillu, að enginn geti leikið,
nema hann hafi verið í leik-
skóla. Ég held það gæti orðið
íslenzku leikhúsunum til mik-
ils góðs, ef fólk af götunni —
ótruflað af leikhústradisjóninni
— yrði tekið inn í þau.
— Hvað hefurðu um íslenzka
leikara og leikhús að segja?
— Hvort tveggja er stein-
dautt, eða svo gott sem.
. — Aí hverju?
— Þetta er mikið okkur leik-
urunum sjálfum að kenna. —
Leikarar eru orðnir að sérstöku,
einangruðu fyrlrbæri í þjóðfé-
íágirtu'. Þéir þeklíjá ékki'þjóð-
félagið og hafa ekki áhuga á
því — þjóðfélagið þekkir þá
ekki og hefur ekki áhuga á
þeim. Leikarar hér taka sig nú
svo hátíðlega, telja sig svo
merkileg fyrirbæri, eru svo ó-
skaplega gáfaðir.
— Geturðu ekki átt von á
því, Pétur, eftir að hafa viðhaft
þessi ummæli opinberlega, að
þegar skyggja tekur, ráðist all-
ir leikarar bæjarins á þig, dragi
þig út í port og lemji þig fyrir
að hafa sagt þetta?
— Nei, segir Pétur. — Þeirra
aðferð er allt önnur. Ef þeir
tækju þetta mjög nærri sér og
ætluðu að klekkja á mér, þá
mundu þeir gera það á allt
annan hátt.
— Hvað þá? Mundu þeir bak-
tala þig?
— Kannski eitthvað í þá átt-
ina. Ég hef orðið að ganga í
gegnum hliðstæða hluti og tel
mig þó hafa sloppið vel.
En þetta er alltaf reyndin. Ef
leikhúsfólk hér er ekki á sama
máli, þá fer það út í bak-
nag í stað þess að útkljá málið
beint. i’-
Ánnars held ég það ætti ekki
aðmióðga néinn að segja, áð ís-
lenzkir leikarar og.deikhús séu