Alþýðublaðið - 16.09.1969, Blaðsíða 16
Alþýðu
blaðið
Afgreiðslusími: 14900 Auglýsingasími: 14906
Ritstjómarsímar: 14901, 14902 Pósthólf 320, Reykjavík
Verð í lausasölu: 10 kr. eintakið
Verð í áskrift: 150 kr. á mánuði
VERKALÝÐSHREYFIN6INI REYKJAVlK OG HAFNARFIRÐI:
Vilja m. a. fá 200 milljónir í íbúðabyggingar
Slöðvun ísfisksölu erlendis
Aðsfoð við línuveiðar
Aukna aðstoð við skipasmfða stöðva r
Verkalýðsfélögin í Reykjavík og Hafnarfirði lita
alvarlegum augum á horfurnar í atvinnumálum í vet-
ur. Telja verkalýðsfélögin, &ð atvinnuleysi á þétt-
býliijsvæðinu suðvestanlands muni magnast á næstu
vikum og mánuðum, ef ekki verði gripið til róttækra
ráðstafana til að tryggja fjármagn til framkvæmda
á höfuðborgarsvæðinu. Á ráðstefnu verkalýðsfélag-
anna í Reykjavík og Hafnarfirði um helgina var kjör-
ín níu manna nefnd til að ganga á fund forsætisráð-
herra með kröfugerð ráðstefnunnar um atvinnumál.
Nefndin gekk á fund Bjarna Benediktssonar, forsæt-
isráðherra, í gær og átti vinsamlegar viðræður við
hann um álit verkalýðshreyfingarinnar á ástandinu
og yfirvofandi ástandi í atvinnumálum á höfuðborg-
.arsvæðinu.
veginn hrokkið til. Eigi að
tryggja atvinnuöryggið á nýj-
an leik, þarf róttækari og um-
fangsmeiri aðgerðir, og það
markmið er svo mikilvægt, að
fyrir því verða hvers konar
minni háttar sjónarmið að
víkja.“
Sú kröfugerð, sem níu manna
nefnd verkalýðsfélaganna af-
henti forsætisráðherra í gær,
fjallar um það, hvernig verka-
lýðshreyfingin telja, að leysa
megi vanda næstu vikna og
næstu mánaða. Hins vegar mun
15 manna nefnd, sem kjörin
var á ráðstefnu verkalýðsfélag
anna í Reykjavík og Hafnar-
firði, vinna að tillögugerð um
framtíðarlausn á atvinnumál-
unum a.m.k. miðað við næstu
ár.
Er níu manna nefndin hafði
rætt við forsætisráðherra, efndi
hún til fundar með blaðamönn-
um, og gerðu fulltrúarnir þar
grein fyrir sjónarmiðum sín-
um. Lögðu fulltrúarnir áherzlu
á, að þessar tillögur væru að-
eins gerðar til lausnar brýnasta
vandanum, sem steðjaði að
þessar vikurnar og mánuðina.
Kröfur verkalýðsfélaganna
eru í meginatriðum sex talsins,
en auk þess fylgja greinar-
gerðir um fjái'festingarfram-
kvæmdir ríkis og bæjarfélaga,
fjárfestingaframkvæmdir einka
aðila og fyrirtækja og fjárfest-
ingarframkvæmdir í Hafnar-
firði.
\
200 MILLJÓNIR GÆTU
GERT MIKIÐ
Fyi’sta krafan er um íbúða-
húsbyggingar. Þar segir: „Þeg-
ar í stað verði tryggðar a.in.k.
200 milljónir króna til viðbót-
ar við veðlánakei'fið til íbúða-
húsabyggingar, og komi sú upp
hæð til úthlutunar þegar í
haust, og verði úthlutun hagað
þannig, að sem mest af því
komi til atvinnuaukningar.11
Þessari kröfu fylgir allítarleg
greinargerð. Þar segir m. a., að
þessi tillaga sé aðeins bráða-
birgðaráðstöfun, en hún myndi
verða mjög áhrifarík gegn at-
vinnuleysi.
I
i
SKATTLAGNING Á
SÖLU EKLENDIS?
í annarri tillögunni er þess
farið á leit, að ríkisstjórnin
beiti sér fyrir stöðvun ísfisk-
sölu togara og bát.a á erlend-
um markaði með stöðvun út-
flutningsleyfa, og leggi skipin
þess í stað afla sinn upp til
vinnslu hérlendis.
Verði í'íkisstjórnin ekki við
þessari kröfu, er lagt til, að 15
% skattur verði lagður á brúttó
sölu hvers skips, þegar það
landar erlendis; þó verði hlut-
Framh. á bls. 4
! VILJA FJÖLÞÆTTARI
f IÐNÞRÓUN
1 í formálsorðum kröfugerðar-
innar segir m. a. „Nú er svo á-
sbatt, að atvinnuástandið er ó-
vissara á höfuðborgarsvæðinu
en í nær öllum öðrum lands-
hlutum, og úr því verður að
bæta með því að beita nú-
tímalegri hagstjórn og áætlana
gerð til þess að tryggja jafn-
' vægi í atvinnuþróun, þar á
meðal eðlilegt hlutfall milli
framleiðsluatvinnuvega og
þjónustugreina. Sérstaklega
ber að leggja áherzlu á fjöl-
þætta iðnþróun á höfuðborgar-
svæðinu, því að fjölmennið er
' forsenda fyrir stórum iðnfyrir-
tækjum og þeim vísindarann-
sóknum og tilraunum, sem
náuðsynlegar eru, ef árangur
1 á að nást.“
i
RÓTTÆKARI OG UM-
SVIFAMEIRI
AÐGERÐIR
’ Þá segir ennfremur í formáls
' orðunum; „Reynslan hefur
þegar sannað, að þær ráðstaf-
anir, sem gripið hefur verið til
af stjórnarvöldum, hafa engan