Alþýðublaðið - 08.10.1969, Síða 16
- Alþýðu
blaðið
8. októb'er 1969
□ Mikið fjör er í slátursölu
þessa dagana, eins og vænta má
þar sem sláturtíðin stendur
sem hæst. í gær var allt slátur
uppselt í slátursölu SÍS á Kirkju
sandi, og var stanzlaus ös þai
frá því klukkan 9 um morgun-
inn, þegar biðröðin var lengst,
náði hún langt út á götu. SÍS
fær allt sitt slátur ofan úr
Borgarnesi, og fékkst því ekki
meira slátur í gær, en væntan-
lega hafa verið komnar nýjar
birgðir í morgun---Sláturfélag
Suðurlands hefur sláturútsölu
að Laugavegi 160 og einnig þar
var stanzlaus ös í gær, allt fram
til sex, en'bílar frá Sláturfélag-
inu höfðu varla við að flytja
slátrið á milli.
BLÓÐ, MÖR OG
HAUSAR
Við skruppum í gær upp í
slátursölu, en hún er til húsa
þar sem gamla verzlunin Ás
var eitt sinn. Fólk kom og fór,
fór inn í slátursöluna með alls
kyns ílát, brúsa, fötur og bala,
og kom út, með öll ílátin full
af blóði og hlaðið mör og haus-
um. — Við tókum tali Greip
Kristjánsson, er hann og kona
hans komu út úr slátursölunni.
— Takið þið slátur árlega,
Greipur?
— Já, og höfum gert allan
ókkar búskap, eða í 30 ár.
— Hvað tekurðu mikið yfir-
leitt?
I
ÞAÐ BORGAR SIG AÐ
TAKA SLÁTURí
DÝRTÍÐINNI
— Það er misjafnt, fer eftir
efnum og ástæðum. Maður tek-
ur meira í dýrtíðinni, það borg-
ar sig. Við geymum alltaf tölu-
vert, bæði súrt og líka í frysti,
og þá fullsjóðum við slátrið,
svo að ékki þarf nema að hita
það upþ áður en það er borðað.
Næst koma þau Álfheiður
Eiriarsdóttir og sonur hennar,
Jón Rafhar Jónsson.
— Hvað tekur þú mikið?
spyrjum við Álfheiði.
— Tólf slátur.
— Hefur þú tekið slátur oft?
— Allan minn búskap, 35
eða 36 ár. Reyndar er þetta i
annað sinn sem ég tek slátur
hérna, við erum frá Bolungar-
vík, en erum nú flutt til Hafn-
arfjarðar.
( /-:
KANN EKKI AÐ META
SÚRT SLÁTUR
— Hvernig geymir þú allt
þetta slátur?
Ég frysti það, sýri ekkert.
Loks hittum við Ásu Sverris-
dóttur, þar sem hún var að
Frh. á 15. síðu.
Ása Sverrisdótir kemur slátrinu fyrir í skottinu.
Greipur Kristjánsson, iögregluvarðstjóri, ber út b!ó5i5.
■ ■
59 milljónir
koma í hlut
(slendinga
Ungverjar styrkja
þýðingar úr ísl.
□ Reykjavík — KB.
Áhugi á íslenzkum fræðum er mikill í Ungverjaiandí
og er líklegt, að ungversk istjórnarvöld muni á næst-
unni auka stuðning sinn við þýðingar á íslenzkum
bókmenntum á ungversku, bæði fornum og nýjum.
íslenzk stjórnarvöld hafa á hinn bóginn boðið ung-
verskum stúdent eða kandidat styrk til íslenzkunáms
hér, en til þessa hefur aðeins einn Ungverji getað þýtt
bókmenntaverk úr íslenzku.
Reykjavík — KB.
□ Sérstök yfirdráttarheimild
íslendinga hjá AlþjóSagjaldeyr-
issjóðnum samkvæmt því nýja
kerfi sem tekur gildi um ára-
mótin nemur 670.700 dollur-
um eða um það bil 59 milljón-
um króna.
Frá þessu skýrði viðskipta-
málaráðherra, dr. Gylfi Þ. Gísla
son á blaðamannafundi í gær,
en hann er nýkominn heim af
fundi Alþjóðabankans og Al-
þjóða gjaldeyrissjóðsins, þar
sem ákveðið var að þetta nýja
kerfi tæki gildi nú um áramót-
in og að fullu á þremur árum.
Ráðherrann sagði að ákvörð-
un um þetta hefði verið tekin
á fundi í Ríó fyrir tveimur ár-
um, en með þessu kerfi væri
raunverulega verið að auka við
gullforða eða gjaldeyrisvara-
sjóð heimsins. Heildarupphæð
yfirdráttarheimildanna er 9,5
milljarðar dollara og kemur
kerfið til framkvæmda þannig,
að nú um áramótin verður yfir-
dráttarheimildin 3,5 milljarðar
en 3 milljarðar bætast við 1971
og 1972. Hlutur íslendinga
fyrsta árið verður rúmar 20
milljónir króna, en heimildir
einstakra aðildarþjóða fara eft-
ir framlagi hverrar um sig til
sjóðsins. Heildarupphæð kvóta
allra þjóða hjá sjóðnum er 21,5
milljarðar dollara, þar af er
okkar kvóti 15 milljónir eða
0,0706 af heildarupphæðinni.
Aiþýðuflokks-
fundur í Kópavogi
Alþýðuflokksfélag Kópavogs
heldur fund í Félagsheimili
Kópavogs fimmtudaginn 9. okt.
kl. 8 síðdegis (neðri salur). —
Fundarefni:
Menntamálaráðherra Gylfi
Þ. Gíslason ræðir um
stjórnmálaviðhorfin.
Fjölmennið stundvíslega.
Stjórnin.
Þetta kom fram á biaða-
mannafundi, sem dr. Gylfi Þ.
Gíslason menntamálaráðherra
hélt í gær, en þar skýrði hann
frá sex daga opinberri heim-
Frh. á 15. síðu.