Alþýðublaðið - 01.11.1969, Blaðsíða 5
Alþýðublaðið 1. nóvember 1969 5
Útgcfandi: Nýja útgáfufclagið
Framkvæmdastjóri: Þórir Sæmundsson
Ritstjórar: Kristján Bcrsi Ólafsson
Sighvatur Björgvinsson (áb.)
Ritstjór larfulltrúi: Sigurjón Jóhannsson
Fréttastjóri: Vilhclm G. Kristinsson
Auglýsingastjóri: Sigurjón Ari Sigurjónsson
Prentsmiðja Alþýðublaðsins
Sterk rök
Á síðasta þingi Verkaanannasambands íslands, sem
nýlega er lokið, var meðal annars gerð samþykkt
þess efnis, að freilsta bæri þess að verkamannafélög-
in gerðu sérsamninga við atvinnurekendur.
Þes’si afstaða verkamannasam'bandsins er studd
mörgum, sterkum rökum. Það er á allra vitorði, sem
eitthvað 'hafa fylgzt ,með atvinnumálum á Íslandi síð-
ustu misseri, að verfkamenn og verkakonur hafa orð-
ið einna harðast úti af öllum launþegum í þeim at-
vi’nnuerfiðleikum, sem íslendingar hafa átt við að
etja á þessu tímabili.
í skýrslu Eðvarðs Sigurðssonar, formanns sam-
bandsins, var m.a. tekð frarn, að hlutur tv'eggja fé-
laga sambandsins, Dagsbrúnar og Framsóknar í
greiddum atvinnuleysisbótum fyrstu níu mánuði
þessa árs hafi numið um 44%, en þessi félög hafa
innan vébaridá sinna aðeins um f jórða hluta meðlima
ver'kalýðsfélaiganna 1 Reykjavík. Á árinu 1968 nam
hlutur Dagsbrúnar um helmimgi greiddra atvinnu-
leysisbóta
Þessar tölur sýna ljó'slega, hve atvinnuerfiðléikarn-
ir hafa bitnað Iþungt á félagsfólki verkamannasam-
bandsins, læ'gst launaða fólkinu á vinnumarkaðnum,
og hvaða ástæður liggja að baki þeirrar ákvörðunar,
sem þing verkamannasambandsins tók í kaup- og
kjaramálabaráttu sinni.
Wilson vex fylgi
Brezki verkamannaflokkurinn hefur undanfarin
ár farið með stjóm Stóra-Bretlands. Flokkurinn hef-
ur þar um margt átt erfitt hlutskipti og hann hefur
orðið að taka ýmsar ákvarðanir, sem fyriríram var
vitað, að ekki yrðu til að auka honum eða íorystu-
mönum hans vinsældir. En brezkir jafnaðarmenn
hafa ekki látið það hafa of mikil áhrif á sig; þeir
hafa gert það, sem þeir voru sannfærðir um, að óhjá-
kvæmilegt væri að gera. Trúin á það, hvað yrði fyrir
foeztu, er til lengdar léti, hefur hjá þeirn verið yfir-
sterkari umhugsuninni um stundarhag.
Aukako'sningar, sem fram hafa farið á kjörtímabil-
inu, hafa yfirleitt gengið Verkamannaflokknum í ó
hag. Upp á síðkaStið sjást þess þó merki, að þessi
þróun er að snúast við. í gærmorgun voru tilkynnt
úrslit í aukakosningum í fimm kjördæmum, og að
vísu tapaði Verkamannaflokkurinn þar fylgd, en þó
langtum minna en búizt hafði verið við fyrirfram.
En það, sem eykur þó riiest sigurmöguleika Verka-
mannaflokksins við næ’stu reglulegu þingkosningar í
IBretlandi er sú staðreynd, að flðkkurinn á sér mik-
Snn hljómgrunn hjá ungu fólki. Btetar hafa nýskeð
lækkað fcosningaaldurinn niður í 18 ár, og af þeim
Ikjósendum, sem bætast við á þes'sum aldri, hefur veru
legur hluti þjóðfélagsskoðanir, sem í grundvallarat-
yiðum eru í anda Verkamannaflokksins.
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
BRIDGE
Umsión: Hallur Símonarson
Ég er að hugsa um að bregða
svolítið út af venjunni hér í
þáttunum og leggja fyrir ykkur
tvö létt dæmi, eða ef til vill
getum við kallað þau þrautir,
sem ég vona að þið leysið áð-
ur en þið lesið síðari hluta
þessa þáttar. Það er ágætt að
reyna hæfni sína við slík spil
— og ef þið leysið þau bæði á
nokkrum mínútum, þá er lítið
við úrspil ykkar að athuga. Og
þá er það fyrra spilið.
Norður
S G4
H DG985
T 763
L ÁG7
S Á
H ÁK6432
T ÁD5
L KD4
Suður
Suður spilar sex hjörtu á
þessi spil. Útspil hjá Vestri er
spaðakóngur. Hvernig á Suður
að spila? Gefið ykkur góðan
tíma, ekkert liggur á.
Dæmi nr. 2 er þannig:
Norður
S 7642
H ÁG6
T Á83
L 964
S ÁKD108
H 1093
T 4
L KG102
Suður
Suður opnar á einum spaða,
Vestur tvo tígla og Norður
tvo spaða. Austur passar og
Suður stekkur í fjóra spaða.
Vestur spilar út tígulkóng —
og þess má geta, að Austur á
þrjú tromp. Hvernig á Suð-
ur að spila? — Aðalatriði er
að vinna sögnina — það er
að fá tíu slagi.
Jæja, ég vona að þið séuð
búin að athuga spilin vel og
mynda ykkur ákveðnar skoð-
anir hvernig bezt sé að spila
þau. Ef svo er, getum við les-
ið áfram.
Svar við spili nr. 1.
Suður spilar sex hjörtu og út-
spil var spaða kóngur. Eftir að
hafa tekið á spaðaásinn tekur
Suður trompin og síðan tekur
hann á kóng og drottningu í
laufi og spilar laufa fjarkanum
og tekur á ásinn í blindum. Þá
er spaðagosa spilað og ef Aust-
ur getur ekki látið drottning-
una á hann, gefur Suður ein-
SKÁK
Umsión: Ingvar Ásmundsson
□ Eftirfarandi skák tefldi Guð
mundur Sigurjónsson við Tékk
ann Smejkal á svæðismótinu
í Austurríki, en frammistaða
hans þar hefur vakið mikla at
hygli.
Hvítt: Guðmundur Sigurjónss.
Svart: Smejkal, Tékkóslóvakíu
1. e2—e4 e7—e5
2. Rgl—f3 Rb8—c6
3. Bfl—b5 a7—a6
4. Bb5-.-a4 Rg8—f6
5. 0—0 Bf8—e7
6. Hfl—el b7—b5
7. Ba4—b3 d7—d6
8. c2—c3 0—0
9. h2—h3-
(Fram að þessu fylgir skákin
algengasta afbrigðinu í
spænska leiknum en næsti leik
ur svarts er upphaf á afbrigði
■sem verið hefur í tízku um
nokkurra ára skeið).
9. ---- h7—h6
10. d2—d4 Hf8—e8
11. Rbl—d2 Be7—f8
12. Rd2—fl
(Svartur beinir spjótum sín
um að peðinu á e4, en það er
óbeint valdað því 12. — e5xd4
13, cxd4 Rxe4 svarar hvítur
með 14. Bd5 og vinnur mann).
12.------- Bc8—d7
(Svartur hótar nú að drepa
faldlega niður tígul fimmið, og
Vestur fær slaginn á spaða
drottningu. Og nú er Vestur í
laglegri klemmu. Hann verður
annað hvort að spila tígli upp
í gafall Á og D Suðurs
eða öðrum hvorum svarta litn-
um í tvöfalda eyðu. í því til-
felli trompar Suður í blindum
og kastar tígul drottningu að
heiman. Einfalt og gott og ör-
uggt.
I.
Svar viS spili nr. 2.
Suður spilar fjóra spaða og
Vestur spilar út tígul kóng,
sem tekinn er með ásnum. Og
nú er spurningin. Á Suður að
reyna laufa-svíningu meðan
hann er inni á tígulás? Eða
á hann fyrst að taka trompin.
og reyna síðan tvöfalda svín-
ingu í hjartanu?
Og svarið er. Hann á'hvor-
ugt að gera. Laufa-svíningin er
hættuleg, því Vestur gæti átt
Á og D fimmtu í laufi, og Aust-
ur hefði því möguleika: á að
trompa lauf. Og tvöfalda svín-
ingin í hjartanu getur vel mis-
heppnazt — þrátt fyrir sögn.
Vesturs — og Austur átt bæði
K og D í hjartanu.
Nei, það sem Suður á að gera
— og það vona ég að þið hafið
gert — er að telja slagi sína.
Hann getur fríað tvo laufaslagi
án svíningar og á fjórða;lauíið
er hægt að kasta hjarta úr
blindum. Þá gefur Suður að-
eins tvo laufaslagi og einn á
hjarta.
Framh. á bls. 4
(Þetta er ekki fallegur leikur
en ekki er auðvelt að benda á
góða leiki, en svartur hefði get
að komið í veg fyrir opnun b-
línunnar með 22. — cxb3)
á d4).
13, Rfl—g3 Rc6—a5
14, Bb3—c2 c7—c5
15, b2—b3 Rb8—c6
(Nú hefði verið eðlilegra, að
svgrtur léki 15. — c5xd4 16.
cxd4 Rc6 17. d5 Rb4 til þess
að skapa sér möguleika til gagn
aðgerða á drotningarvængnum)
16, d4—d5 Rc6—e7
17, Bcl—e3 g7—g6?
(Þessi leikur veikir svörtu
kóngsstöðuna og tekur g6 reit
inn af riddaranum á e7 með
þeim afleiðingum, að svörtu
mennirnir troða nú hver öðr-
um um tær. Eftir 17. — Rg6
hefði svartur átt þrengra tafl
en vel teflandi.)
18, Ddl—d2 Kg8—h7
19, Rf3—h2!
(Hvítur leikur riddaranum
burt af f-línunni til þess að
geta ráðizt á víglínu svarts á
miðborðinu með f2—f4)
19. — Bf8—g7
20. f2—f4 e5xf4
21. Be3xf4 c5—c4
(Þessi leikur veikir enn sv.
stöðuna, þar eð hann tekur
valdið af d4 reitnum en hann
valdar d6-peðið óbeint því 22.
Bxd6 strandar á 22. Db6f)
22. Rh2—í3 Bd7—c8
23. Kgl—hl
24. b3xc4!
25. Hal—bl
26. Hbl—b4
27. Bc2—a4
Re7—g8
b5xc4
Ha8—a7
Ha7—c7
Bc8—d7
(Örvænting svarts leynir sér
ekki, en staða hans er ekki
björguleg eftir 27. — Hf8 28.
Rd4) |,
28. Bf4xd6 Bd7xa4
29. Bd6xc7 Dd8xc7
(Ef hvítur drepur á a4 og
svartur á g3 fengi svartur
möguleika á gagnaðgerðum á
svörtu reitunum á kóngsvængn
um, en Guðmundur kemur í
veg fyrir þetta.)
30. e4—e5! Ba4—d7
31. d5—d6 Dc7—c6
32. e5xf6 He8xelf
33. Dd2xel Rg8xf6
Framhald á bls. 3. J