Alþýðublaðið - 01.11.1969, Blaðsíða 14
14 Alþýðublaðið 1. nóvember 1969
EFTIR FRANCES OG
RICHARD LOCKRIDGE
Smáauglýsingar
STÚLKAN I
GULU
KÁPUNNI
aði í framan.
— En Alice, hvernig væri, að ég æki strax af stað
og svo hittumst við heima hjá mér eftir svona einn
eg hálfan tíma? Væri það í lagi?
j — Já, ætli það ekki. Við sjáumst þá aftur heima
fijá þér. Rödd hennar varð aftur flauelsmjúk: — Er
þér alveg batnað, Loren? Það er allt í lagi nreð þig
núna? Hvers vegna fórstu eiginlega svona snögg-
lega?
.— Ég segi þér það, þegar við hittumst, sagði
Loren og lagði á.
Nú komst aðeins ein hugsun að hjá henni: Að kom
ast eins fljótt og hægt væri heim í íbúðina sína við
10. stræti og tala við Alice JackSon.
— Charles! Hún fann kjallarameistarann í garð
inum. Hann var einmitt að slá grasflötina. Þegar
Loren nálgaðist, slökkti hann á vélinni. — Ef Pet-
ei Sayers hriiígir eða kemur, þá segið honum, að ég
sé 'arin heirn, og fað væri gott, ef hann hringdi til
mín eða....
Eða ætti ég að biðja Peter að koma til mín?
Mig langar ekki til að vera ein með þessari Alice
Jackson svo mikið sem eina mínútu.
— Nokkuð fleira? spurði Charles og ýtti strá-
hattinum aftur á hnakka.
— Nei, sagði hún, ekkert annað.
— Ég verð að reyna að komast til botns í þessu
ein, ákvað hún og gekk út að bílnum sínum.
Hún settist við stýrið, kom bílrrum í gang og ók
af stað. Mölin þeyttist undan hjólunum um leið og
hann þaut af stað.
Skrifstofur Intercontinental Lead voru á 12. hæð- í
skýjakljúfi einum í verzlunrahverfi New York borgar.
Eftir að Peter Sayers hafði beýgt af Broadway inn
í Wall Street, og numið staðar þar, sá hann, að þar
hafði ekki verið lagt einum einasta bíl. Hann undr.
aðist það dálítið.
Sennilega hafa Snyder og Perkins komið í leigu-
bíl, hugsaði hann. En það var heldur ótrúlegt, með
Perkins að minnsta kosti, og hann þekkti hann nógu
vel til að vita, að han kom aldrei án einkabílstjóra.
Peter gekk inn í forsal háhýsisins og litaðist um1.
Einkennisklæddur maður sat í húsvarðarklefanum og
leit undrandi á Peter. Þegar Peter gekk að lyftunni
kom maðurinn út úr klefanum á eftir honum.'
—Á 12. hæð, sagði Peter.
Þeir héldu upp.
Á leiðinni upp fann Peter, að maðurinn hortði
.rannsakandi á hann.
—Gerið svo vel, herra minn.
Maðurinn opnaði fyrir honum lyftudyrnar.
Peter steig út. Beint á móti lyftunni voru skrif-
stofurnar. Þær voru merktar með stærðar látúns-
plöíu.
Meðan Peter reyndi að opna hurðina og hringdi
svo, stóð sá einkennisklæddi við lyftuna og beið.
Peter hringdi aftur.
Sá einkennisklæddi ræskti sig.
— Hvert ætlið þér eiginlega?
Peter sneri sér að honum.
— Ég er kominn til að hitta hr. Snyder og hr.
Perkins. Þeir áttu von á mér.
—Það er sunnudagur í dag. Og enginn á skrif-
stofunum.
— En.... Peter horfði ráðþrota á hurðina. —
Einkaritari Perkins hringdi í mig fyrir klukkutíma.
Hún sagði, að ég ætti að hitta hr. Perkins á skrif-
stofunni.
— Það er sunnudagur í dag. Ég var að enda við
að segja yður það. Hvorki hr. Perkins né eirikaritari
hans hafa látið sjá sig hér í dag.
—Gott og vel, sagði Peter og fór innr í lyftuna.
— Get ég fengið að hringja hérna?
Þegar lyftan var komin niður á neðstu hæð og
maðurinn hafði opnað, benti hann á símaklefa.
Hann stóð kyrr og horfði á Peter hringja.
—Hvar er nú miðinn með símanúmerinu?
Peter leitaði í öllum vösum. Loksirrs fann hann
miðann, sem Charles hafði látið hann hafa.
Það leið langur tími þar til svarað var.
Það var karlmannsrödd að þessu sinni.
— Þeta Ter Peter Sayers, sagði hann.
Stutt þögn.
— Nú, já, rumdi í hinum enda símalínunnar.
— Get ég fengið að tala við hr. Perkins?
—Hvern segið þér?
— Hr. Perkins eða hr. Snyder.
— Hér eru engir með þeim nöfnum. Þetta er í
Barnettsapóteki.
Peter starði á miðann. Hann athugaði, hvort hann
hefði farið stafafeil.
Svo sagði hann:
— Fyrir andartaki hringdi ég í þetta númer. Þá
anzaði stúlka. Hún sagðist vera að hringja fyrir hr.
Perkins.
— Hér er engin stúlka, anzaði hinn. — Þér ættuð
bara að vita, hvað ég er feginn því, að hér skuli
ekki vera neinn andskotans kvenmaður... .Þér haf
ið fengið skakkt númer. ,
Það heyrðist smellur á línunni.
Peter lagði tólið hægt á. 7
I
I
I
!
I
i
TRÉSMÍÐAÞJÓNUSTA
Látið fagmaxin annast vlðgerðir og vlðliald á trévwU
húseigna yðar, ásamt breytingum á nýýu og ddra
húsnæði. — Sími 41055.
VOLKSWAGENEIGENDUB!
Höfum fyrirliggjandl: Brettl — Hurðir — Véliarlok
— Gejrmslulok á Volikswagen í allQestum lltum.
Skiptum á eiiium degi með dagsfyrirvara fyrir' á-
kveðið verð. — Reynlð viðskiptin.
Bílasprautun Garðars Sigmundssonar, Skipholtl 25,
Símar 19099 og 20988.
NÝÞJÓNUSTA í HEIMAHÚSUM
Tek að mér allar viðgerðir og felæðningar á
bólstruðum húsgögnum í heimhúsum. — Upp
lýsingar í síma 14213 kl. 12—1 og 7—8 á
kvöldin.
AGNAR ÍVARS, húsgagnabólstrari.
PÍPULAGNIR
Tek að mér viðgerðir og uppsetningu á hrein
lætistækjum, frárennslis- og vatnslögnum.
Guðmundur Sigurðsson
Sími 18717
PÍPULAGNIR. - Skipti hitakerfum. Ný-
lagnir, viðgerðir, breytingar á vatnsleiðslum
og hitakerfum. Hitaveitutengingar. Þétti
heita og kalda krana. Geri við wc^kassa. —
Sími 71041. — Hilmar J. H. Lúthersson,
pípulagningameistari.
Jaröýtur - Traktorsgröfur
Höfum til leigu litlar og stórar jarðýtur traktorsgröf-
ur og bílkrana, til allra framkvæmda, Innan og utan
borgarlxmar.
Heimasímar 83882 — 33982.
Jarðvinnslan sf.
Síðumúla 15 — Símar 32480 — 31080.
__________________________________________I
MATUR OG BENSÍN
allan sólarhringinn.
VEITINGASKÁLINN, Geíthálsl