Alþýðublaðið - 17.11.1969, Blaðsíða 3
Alþýðublaðið 17. nóvember 1969 3
í vikubyrjun
Fagætur
fyrirlestur
Skemmtilegri fyrirlesarar en
prófessor Jón Helgason í Kaup-
mannahöfn eru ekki á hverju
strái. Ég hugsa að þeir sem
hlýddu á mál hans í Háskóla-
bíói á laugardaginn eigi lengi
eftir að minnast þess sem við-
burðar, ánægjulegrar upplif-
unar. Og þó ræddi hann þar
um efni, sem auðvelt væri að
gera bæði þurrt og leiðinlegt,
— efni sem margir halda raun-
ar að hljóti alltaf að vera þurrt
og Ieiðinlegt. En í meðferð
prófessors Jóns öðlaðist fortíðin
nýtt líf; sú mynd sem hann
dró upp af Bimi Þorleifssyni á
Reykhólum, frænda hans og
fjandmanni, B.irni í Ögri, og
samtíð þeirra, var svo fersk
og safamikil, svo krydduð
kýmni og húin svo miklu lífi,
að hreinasta unun var á að
hlýða.
1 Fyrirlestur prófessors Jóns
var fluttur á samkomu er
haldin var til heiðurs Halldóri
Laxness á 50 ára afmæli hans
sem rithöfundar, „50 ára afmæli
bókar“, eins og s'káldið orðaði
það sjálft í ávarpi í fundarlok.
Á samkomunni var lesið upp
úr verkum skáldsins og einnig
var þar lesin merkileg ritgerð,
sem Kristján Karlsson hefur
ritað um íslandsklukkuna, en
hápunktur samkomunnar var
tvímaílalaust fyrirlestur pró-
fessors Jóns. Hann skýrði þar
frá því að nýlegar rannsókn-
ir hefðu leitt í ljós, að Björn
Þorleifsson á Reykhólum, sem
uppi var um aldamótin 1500,
sonarsonur Bjarnar hirðstjóra
er Englendingar drápu í Rifi,
hefði ritað postulasögur og
heilagramannasögur, sem varð-
veitzt hafa á bók í Stokkhólmi.
Rakti hann síðan æviferil höf-
undarins, skýrði frá langvinn-
um deilumálum hans og vék
síðan að efni sagnanna, sem
raunar eru ekki frumsamdar
í venjulegum skilningi, heldur
þýddar og endursagðar. En út
af fyrir sig var það ekki fróð-
leikurinn sjálfur, sem gaf er-
indinu mest gildi, heldur bún-
ingurinn og flutningurinn. Það
er mikill skaði að íslendingar
skuli ekki oftar verða þeirrar
ánægju aðnjótandi að heyra
prófessor Jón segja frá. Hann
þyrfti að koma hingað sem oft-
ast til fyrirlestrahalds.
En fleira er matur en feitt
ket, og kvöldi fyrr en pófessor
Jón Helgason talaði í Háskóla-
bíói var annar fyrirlestur
fluttur í Reykjavík, ánægju-
legur líka, en þó með öðru
móti. Þá talaði Magnús Már
Lárusson háskólarektor á veg-
um íslenzka mannfræðifélags-
ins um uppruna íslendinga.
Niðurstaða hans varð sú sem
vænta mátti, að um það efni
yrði að fara að öllu með gát;
heimildir leyfðu ekki að full-
yrt væri of mikið, sízt af öllu
væru fyrir hendi nægjanleg
gögn til stuðnings ýmsum
kenningum er komið hafa fram
um það efni. Hann lagði eink-
um á það áherzlu, að rannsókn-
ir. skorti enn um flest atriði
varðandi elztu sögu landsins,
Jón Helgason
einkum fornleifarannsóknir.
„Það vantar fleiri beinagrind-
ur“ voru niðurlagsorð hans í
erindinu.
Fjölmenni var við fyrirlest-
ur prófessors Magnúsar, og
höfðu þó margir farið fýluför
kvöldið áður til að heyra mál
hans. En þessi mikla aðsókn
sýnir að áhugi er talsverður á
sögulegum efnum hér á landi,
þótt hann beinist stundum
fullmikið inn á hliðarspor. Hitt
er okkur ekki með öllu vansa-
laust, hve hægt hefur miðað
við frumrannsóknir á ýmsum
þáttum íslenzkrar sögu, bæði
að fornu og nýju, og það er
með öllu óverjandi að enn þann
dag i dag skuli ekki hafa verið
skrifuð nothæf kennslubók í
íslands sögu fyrir framhalds-
skóla landsins. — KB.
MIKIÐ SALTAÐ
UM HELGINA
Rey%javík ÞG
□ Lítil síld veiddist í nótt,
og þeir Wáltar sem voru á
leið í land í morgun ytfirleitt
með atfla friá 5—20 tonn, og
marigir höfðu elklkert fengið
er síðast fréttist. Þó voru
tveir bátar með sæmilegan
afla, Ásberg m'eð 100 tonn
og Óskar Hal'ldórsson með
80 tonn. Stafar þetta af
bræliu á miðunumi og einnig
hefur síldin dýpkað talsvert.
í gær var ágæt veiði og
saltað talsvert á ölllum sölt-
unarstöðvuim sunnanlands.
20—30 skip löndluðu 30—150
tonnum, og voru miörg með
70—80 tonn. Hjá Bæjarút-
gerð Reyk'javikur var saltað
í tæplega 1000 tunnur um
heligi'na, en hjá Haraldi Böðv
arssyni á Akranesi var salt-
að í um 2000 tunnur, og eitt
hvað af smærri síld var fryst.
Hjá Sjöstjörnunni í Ketflavik
var saltað í 3—4000 tunnur,
en mikið var sa'ltað 4 öðrúm
söltunarstöðvum í Keflavák,
en þær eru 9 talsins. — í
Grindavík var líka saltað ;á
öfflum stöðvium, hjá Óskari'í
Arnarvík var sal’tað í um 700
tunnur. —
Fjölmennur Viet-
namfundur
□ Á laugardag var geysi-
fjölmennur fundur haldinn í
Háskólabíói að lokinni göngu
mótmælenda Vietnam stríðsins
um bæinn. 15. nóvember er al-
þjóðardagur friðarsinna um
allan heim til að mótmæla að-
gerðum Bandaríkjamanna í Vi-
etnam en í Bandaríkjunum
sjálfum standa mótmælaað-
gerðirnar yfir í tvo daga. Ætl-
unin er að bæta einum degi við
í hverjum mánuði og lengja
þannig tíma aðgerðanna í hvert
skipti unz stríðinu lýkur.
'Dagskrá fundarins var mjög
fjölbreytileg: Sigurður A.
Magnússon, ritstjóri, Rúnar
Hafdal íslenzkunemi, Rafn
Guðmundsson, Gestur Jónsson
og Geir Vilhjálmsson sálfræð-
ingur fluttu ávörp, á milli var
fléttað þjóðlagasöng Kristínar
Ólafsdóttur, og framlagi Trú-
brots, Óðmanna og Ríó tríós
til friðar í heiminum. í heild
fór fundurinn friðsamlega fram
og ræðumönnum og hljóm-
sveitum var fagnað með lang-
varandi lófataki.
11 innbrot og mikil spellvirki
gerð kunn um fimmleytið í
dag. Kærufrestur er til 8.
des. —•
Reyifejavflk ÞG
Elletfu innbrot voru framin
í Reykjavflk um helgina og
tjón unnin fyrir hundruð þús
undir krióna.
Miest várð tjónið er brot-
izt var á 1 augarda'gskvöldið
inn í Vogaskóla og gengið
berserksgang .í þyi að brjóta
upp allar hurðir og hirzlur,
sem læstar voru. Er talið að
slkað nn, sem unnin var nemi _____________________
hiundruðum þúsu'nda. Þá var /* < ■
brotinn iupp sýningarkassi ö6aí0IÍHÍf
sikart'gripav'erzliunar að
Hverfis'götu 16 og stolið skart
gripum fyrir tugi þúsunda,.
Hin innlbrotin 9 voru í
verzlanir, og ta'l'sverðlu var
stolið atf sígaret'tum. —
□ Úrsl'it á 16: getraunaseðl
inum eru sem hér segir: —
xxl 111 12x 111. Úrsliit1 verða
Unnu aftur
□ í öðrum aukaleik er ís-
'lenzika liðið lók við Berm-
udamenn fyrir skömmiu sigr-
aði landinn 3:0. Úrslitin í
fyrri aukalefk urðu 2:0, en
landsleiknum tapaði flsle'nzka
liðið 3:2. —
pmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmnmmmmr
rrsr"
Sérfilboð
Tvær bækur ókeypis ; ^ ^ ^
ÍSLENDINGASÖGUR með núfíma sfafsefningu
Ísl«ndíngatögur með nútíma sfafsefningu, ótfa bíndp *Mt aukabíndi með nafnaskró
og atriðiíoríitífkrá, en slík skrá hefur ekki til þessa fylgf neinni útgáfu Islendinga-
sagna, fáið þér á 25% lœgra verði en búðarverð bókanna er, ef þér gerist áskrif-
andi að þessu heildarsafni. Bœkurnar eru í átgáfu Gríms M. Heigasonar og Vésteins
Olasonar, og koma tvö bindi út árlega*
Þér fáið öil níu bindín á minna verSi en sjö bindi kosfa í búS,
ef þér gerist nú áskrifandi að íslendingasögum með nútíma
stafsetningu! Þér fáið því sem svarar tvö bindi ókeypis! —
Alllir Ijúka iofsorði á þessa útgáfu íslendingasagna. —
UUJUJUJUJUJUIUIUSUUIUJUU»U)UlUiLJUJUJUJUIUIUiUIUSUJUJUUUUJUSUU!U!UiUIUIU>USUJUU!UIUIUJUJUUO
SKU6GSJA - BOKABUÐ OIIVERS STEINS
Strandgötu 31, Hafnarfirði
Já, ég óska að gerast áskrifandi að íslendíngasögum I—IX með
nútíma stafsetningu, i útgáfu Gríms M. Helgasonar og Vésteins Ólasonar,
á áskriftarVerði sem er 25% lœgra en verð bókanna er f iausasölu í búð.
Q Askriftarverð I. bindis er kr. 484,00 (búðarverS er kr. 645,00) innb.
□ Áskriftarverð II. bindis er kr. 524,00 (búðarverS er kr. 698,75) innb.
□ ÁskriftarverS III. bindis er kr, 524,00 (búSarverS er kr. 698,75) innb.
Eg óska að iá bmkurnar:
□ gegn póstkröfu
□ sœkja þœr til
StaSa
forlagsins
□ greiSsla hér me'S
Heimili
sfmí